Beint í efni

11. (1728). fundur

22.03.2016
Bæjarráð Garðabæjar

11. (1728). fundur

Bæjarráð Garðabæjar

í fundarsal bæjarráðs í Ráðhúsi Garðabæjar við Garðatorg

22.03.2016

Kl. 08:00 - 09:00

Um fundinn

Nefndarmenn

  • Áslaug Hulda Jónsdóttir - formaður
  • Sigurður Guðmundsson - aðalmaður
  • Sturla D Þorsteinsson - aðalmaður
  • Halldór Jörgen Jörgensson - aðalmaður
  • María Grétarsdóttir - aðalmaður
  • Steinþór Einarsson - áheyrnarfulltrúi

Starfsmenn

  • Guðjón Erling Friðriksson - bæjarritari
  • Eysteinn Haraldsson - bæjarverkfræðingur
  • Bergljót K Sigurbjörnsdóttir - félagsmálastjóri

Ritari

  • Guðjón Erling Friðriksson,

Dagskrá

Málsnúmer 1602055

01

Hraungata 24 - Umsókn um byggingarleyfi

Bæjarráð samþykkir afgreiðslu byggingarfulltrúa að veita byggingarleyfi vegna byggingar parhúss á lóðinni við Hraungötu 24.

Málsnúmer 1602054

02

Hraungata 26 Umsókn um byggingarleyfi

Bæjarráð samþykkir afgreiðslu byggingarfulltrúa að veita byggingarleyfi vegna byggingar parhúss á lóðinni við Hraungötu 26.

Málsnúmer 1601109

03

Afgreiðsla skipulagsnefndar varðandi breytingu á deiliskipulagi Arnarness vegna lóðarinnar við Blikanes 14.

Með vísan til niðurstöðu í úrskurði úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála þar sem felld er úr gildi ákvörðun um samþykkt deiliskipulags fyrir Arnarness er málinu vísað að nýju til meðferðar skipulagsnefndar.

Málsnúmer 1509073

04

Afgreiðsla skipulagsnefndar varðandi breytingu á deiliskipulagi Ása og Grunda vegna lóðarinnar við Lyngás 1.

Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja samkvæmt 3. mgr. 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 tillögu skipulagsnefndar að breytingu á deiliskipulagi Grunda og Ása vegna lóðarinnar við Lyngás 1. Í umfjöllun skipulagsnefndar hafa athugasemdir verið yfirfarnar og í tillögunni felst breyting frá auglýstri tillögu þar sem gert er ráð fyrir lækkun hússins við Stórás um eina hæð.

Málsnúmer 1511054

05

Afgreiðsla skipulagsnefndar varðandi breytingu á deiliskipulagi Molduhrauns vegna Suðurhrauns 6 og 10.

Bæjarráð samþykkir með vísan til 3. ml. 3. mgr. 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 að tillaga breytingu á deiliskipulagi Molduhraun vegna lóðanna við Suðurhraun 6 og 10 verði send til meðferðar Skipulagsstofnunar enda voru ekki gerðar neinar athugasemdir við tillöguna í athugasemdafresti auglýsingar.

Málsnúmer 1511337

06

Afgreiðsla skipulagsnefndar varðandi breytingu á deiliskipulagi vesturhluta Urriðaholts vegna lóðanna nr 1-3 og 5-7 við Mosagötu 1-7.

Bæjarráð samþykkir með vísan til 3. ml. 3. mgr. 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 að tillagan að breytingu deiliskipulags vesturhluta Urriðaholts vega lóðanna nr. 1-3 og 5-7 við Mosagötu verði send til meðferðar Skipulagsstofnunar enda voru ekki gerðar neinar athugasemdir við tillöguna í athugasemdafresti auglýsingar.

Málsnúmer 1510204

07

Afgreiðsla skipulagsnefndar varðandi breytingu á deiliskipulagi Urriðaholts norður 2, Brekkugata/Mosagata.

Bæjarráð samþykkir með vísan til 3. ml. 3. mgr. 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 að tillaga að breytingu á deiliskipulagi 2. áfanga norðurhluta Urriðaholts vegna færslu á legu Mosagötu o.fl. verði send til meðferðar Skipulagsstofnunar enda voru ekki gerðar neinar athugasemdir við tillöguna í athugasemdafresti auglýsingar.

Málsnúmer 1602229

08

Afgreiðsla skipulagsnefndar um fyrirspurn til skipulags- og byggingarfulltrúa vegna lóðarinnar við Sunnuflöt 44.

Lögð fram.

Málsnúmer 1601099

09

Afgreiðsla skipulagsnefndar um tillögu að íbúðarhúsum í landi Eyvindastaðalands.

Lögð fram afgreiðsla skipulagsnefndar þar sem hafnað er erindi um að byggja sex raðhús á óbyggðu landi við Bessastaðatjörn milli Asparvíkur og Stekks.

Málsnúmer 1406359

10

Tilkynning frá úrskurðarnefnd umhverfis- og auðlindamála um úrskurð í kærumáli vegna deiliskipulags Arnarness, dags. 17.03.16.

Lagður fram úrskurður úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála í kærumáli um deiliskipulag Arnarness þar sem í úrskurðarorði er felld úr gildi ákvörðun bæjarstjórnar Garðabæjar frá 3. apríl 2014 um að samþykkja deiliskipulag fyrir Arnarnes.

Fylgiskjöl

Málsnúmer 1603252

11

Tillaga garðyrkjustjóra um gjaldskrá skóla- og matjurtagarða Garðabæjar árið 2016.

Bæjarráð samþykkir tillögu garðyrkjustjóra um gjaldskrá skólagarða og matjurtargarða sumarið 2016.

Skólagarðar kr. 4.500.

Matjurtargarðar kr. 4.500.

Fylgiskjöl

Málsnúmer 1601592

12

Úthlutun úr Þróunarsjóði grunnskóla í Garðabæ 2016.

Lögð fram afgreiðsla skólanefndar um úthlutun úr Þróunarsjóði grunnskóla.

Skólanefnd hefur fjallað um allar umsóknir og leggur til að úthlutað verði kr. 19.892.851 úr sjóðnum til 21 verkefnis.

Bæjarráð staðfestir tillögur skólanefndar um úthlutun styrkja, sbr. 4. gr. reglna um Þróunarsjóð grunnskóla.

Fylgiskjöl

Málsnúmer 1603238

13

Bréf Alþingis varðandi tillögu til þingsályktunar um mótun stefnu til að draga úr notkun á skaðlegum efnum í neysluvörum 247. mál., dags. 16.03.16.

Málsnúmer 1603194

14

Ársreikningur Sorpu 2015

Málsnúmer 1602226

15

Umsögn fjölskylduráðs varðandi beiðni um frávik frá reglum um leikskólavist vegna skiptrar búsetu barna.

Málsnúmer 1603237

16

Bréf Sjúkraliðafélags Íslands um boðun verkfalls, dags. 17.03.16.

Lagt fram bréf Sjúkraliðafélags Íslands þar sem boðað er til verkfalls sjúkraliða sem starfa á Ísafold frá og með 4. apríl nk.

Fylgiskjöl

Málsnúmer 1509343

17

Tillaga um útboð vegna endurnýjunar á yfirborði gervigrasvalla.

Bæjarráð samþykkir að fela bæjarverkfræðingi að útbúa gögn til að bjóða út endurnýjun á gervigrasi æfingavalla og battavalla á íþróttasvæði við Ásgarð.

Málsnúmer 1512038

18

Fyrirspurn bæjarfulltrúa Maríu Grétarsdóttur um upplýsingar í ársreikningi Garðabæjar 2015.

Lögð fram svör við fyrirspurnum.

Fylgiskjöl

Málsnúmer 1409021

19

Bréf Jöfnunarsjóðs um framlög á árinu 2015, dags. 08.03.16.

Málsnúmer 1507128

20

Bréf Jöfnunarsjóðs um framlög vegna þjónustu við fatlað fólk á árinu 2015, dags. 08.03.16.