Beint í efni

Lyngás 1, breyting á dsk Ása og Grunda

Málsnúmer 1509073

Ferill máls

Bæjarstjórn Garðabæjar

01

7. (790). fundur

Bæjarstjórn samþykkir samkvæmt 3. mgr. 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 tillögu skipulagsnefndar að breytingu á deiliskipulagi Grunda og Ása vegna lóðarinnar við Lyngás 1. Í umfjöllun skipulagsnefndar hafa athugasemdir verið yfirfarnar og í tillögunni felst breyting frá auglýstri tillögu þar sem gert er ráð fyrir lækkun hússins við Stórás um eina hæð.

Bæjarráð Garðabæjar

02

11. (1728). fundur

Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja samkvæmt 3. mgr. 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 tillögu skipulagsnefndar að breytingu á deiliskipulagi Grunda og Ása vegna lóðarinnar við Lyngás 1. Í umfjöllun skipulagsnefndar hafa athugasemdir verið yfirfarnar og í tillögunni felst breyting frá auglýstri tillögu þar sem gert er ráð fyrir lækkun hússins við Stórás um eina hæð.

Skipulagsnefnd Garðabæjar

03

6. fundur

Lögð fram öðru sinni að lokinni kynningu tillaga að breytingu deiliskipulags Ása og Grunda sem nær til lóðarinnar Lyngás 1. Einnig lögð fram erindi með athugasemdum við breytinguna.
Lögð fram tillaga lóðarhafa að breytingu á breytingartillögunni sem gerir ráð fyrir því að húsið H, sem liggur að Stórási, verði 3 hæðir í stað 4 hæða, lækki úr 38,7 mys samkvæmt kynntri tillögu í 35,9 mys eða um 2,8 metra. Einnig leggja lóðarhafar til að efsta hæð húss F við Hafnarfjarðarveg lengist um 7 metra til suðvesturs.

Skipulagsnefnd samþykkir breytingartillöguna í samræmi við 3.mgr.41.gr.Skipulagslaga með þeirri breytingu að húsið H lækki úr 5 hæðum í 4 og að hámarkshæð þess verður í 35,9 mys sem er lækkun frá auglýstri tillögu um 2,8 m. Tillögu um stækkun 4 hæðar húss F er hafnað.

Skipulagsnefnd Garðabæjar

04

4. fundur

Lögð fram tillaga að breytingu deiliskipulags Ása og Grunda sem nær til lóðarinnar Lyngás 1 að lokinni kynningu sem stóð frá 9.desember 2015 til 20.janúar 2016. 4 athugasemdabréf hafa borist undirrituð af 63 íbúum sem mótmæla hækkun húsanna.
Skipulagsnefnd vísar tillögunni til frekari skoðunar hjá tækni-og umhverfissviði.

Bæjarstjórn Garðabæjar

05

16. (780). fundur

Bæjarstjórn samþykkir tillögu skipulagsnefndar að auglýsa tillögu að breytingu á deiliskipulagi Ása og Grunda samkvæmt 1. mgr. 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010, sbr. 1. mgr. 43. gr. sömu laga. Tillagan gerir ráð fyrir fjölgun íbúða á lóðinni við Lyngás 1 úr 119 í 138 eða um 19 og að fallið verði frá gerð skipulagslýsingar.

Bæjarráð Garðabæjar

06

41. (1709). fundur

Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu skipulagsnefndar að auglýsa tillögu að breytingu á deiliskipulagi Ása og Grunda samkvæmt 1. mgr. 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010, sbr. 1. mgr. 43. gr. sömu laga. Tillagan gerir ráð fyrir að fjölga íbúða á lóðinni við Lyngás 1 úr 119 í 138 eða um 19 og að fallið verði frá gerð skipulagslýsingar.

Fylgiskjöl

Skipulagsnefnd Garðabæjar

07

14. fundur

Lögð fram öðru sinni tillaga að breytingu á deiliskipulagi Ása og Grunda sem nær til lóðarinnar Lyngás 1. Tillaga gerir ráð fyrir því að íbúðum verði fjölgað úr 119 í 138 eða um 19. Með vísan í bókun skipulagsnefnar frá 8.október samþykkir skipulagsnefnd kynningu tillögunnar í samræmi við 1.mgr. 43 gr. og 41.gr. Skipulagslaga. Fallið verði frá forkynningu í samræmi við 3.mgr. 40.gr. sömu laga þar sem að allar meginforsendur liggja fyrir í aðalskipulagi.

Bæjarráð Garðabæjar

08

34. (1702). fundur

Bæjarráð vísar bréfinu til nánari skoðunar bæjarstjóra og til kynningar í skipulagsnefnd.

Fylgiskjöl