Beint í efni

7. (790). fundur

07.04.2016
Bæjarstjórn Garðabæjar

7. (790). fundur

Bæjarstjórn Garðabæjar

í Safnaðarheimilinu Kirkjuhvoli

07.04.2016

Kl. 17:00 - 19:00

Um fundinn

Nefndarmenn

  • Sigríður Hulda Jónsdóttir - forseti bæjarstjórnar
  • Áslaug Hulda Jónsdóttir - aðalmaður
  • Sigurður Guðmundsson - aðalmaður
  • Gunnar Valur Gíslason - aðalmaður
  • Jóna Sæmundsdóttir - aðalmaður
  • Gunnar Einarsson - aðalmaður
  • Sturla D Þorsteinsson - aðalmaður
  • Guðrún Elín Herbertsdóttir - aðalmaður
  • Halldór Jörgen Jörgensson - aðalmaður
  • Steinþór Einarsson - aðalmaður
  • María Grétarsdóttir - aðalmaður

Ritari

  • Guðjón Erling Friðriksson,

Fundurinn er hljóðritaður [line][line]Sigríður Hulda Jónsdóttir, forseti bæjarstjórnar setti fund og stjórnaði[line][line]Fundargerð bæjarstjórnar frá 17. mars 2016 er lögð fram.[line][line]Guðrún Elín Herbertsdóttir, kvaddi sér hljóðs með vísan til umræðu um átak í viðhaldi og endurnýjun gatna og lagði fram eftirfarandi tillögu.[line][line]Björt framtíð leggur til að útbúin verði áætlun um væntanlegt viðhald og malbikun gatna í Garðabæ fyrir árið 2016. Áætlunin skal birt á vef Garðabæjar, tímanlega áður en framkvæmdatímabil hefst. Þannig verða íbúar bæjarins vel upplýstir um hvaða götur eigi að lagfæra og hvenær.[line][line]Greinargerð:[line]Allir eru sammála um það að göturnar koma mjög illa undan vetrinum. Fagna ber nýsamþykktu átaki SSH í viðhaldi og endurnýjun gatnakerfisins. Nú er viljinn og tækifærið hjá Garðabæ til staðar til að leggja meiri pening og skipulag í þessi mál. Liður í því er að halda íbúum bæjarins upplýstum um framkvæmdaáætlun. Þannig geta íbúar komið tímanlega með athugasemdir ef einhverjar eru.[line][line]Áslaug Hulda Jónsdóttir, kvaddi sér hljóðs vegna sama máls og lagði fram eftirfarandi tillögu.[line][line]Bæjarstjórn samþykkir að fela bæjarstjóra að tryggja að upplýsingar um ástand gatna og göngustíga í bænum ásamt áætlun um framkvæmdir og lagfæringar séu aðgengilegar á vef bæjarins. Jafnframt að íbúar geti á einfaldan og rafrænan hátt komið með ábendingar og beiðnir um lagfæringar á götum og göngustígum.[line][line]Greinargerð:[line]Nokkur umræða hefur átt sér stað um slæmt ástand gatna og stíga á höfuðborgarsvæðinu. Götur og stígar Garðabæjar eru líkt og götur annars staðar á svæðinu, margar illa farnar eftir veturinn. Mikilvægt er að íbúar séu upplýstir um ástand mála og hvernig bregðast eigi við því. Gera þarf samantekt um ástand gatna og stíga og birta á vef bæjarins. Einnig er nauðsynlegt að birta áætlun um fyrirhugaðar framkvæmdir við viðhald gatna og stíga ásamt áætlun um sópun gatna.[line]Gætt sé að því að upplýsingar séu uppfærðar jafnóðum eins og þörf er á og íbúar upplýstir á annan hátt eftir atvikum. Jafnframt er mikilvægt að íbúar geti á einfaldan og rafrænan hátt komið með ábendingar og beiðnir um lagfæringar á götum og göngustígum.[line][line]Gunnar Einarsson, ræddi framkomnar tillögur og lagði til við bæjarstjórn að samþykkja báðar tillögurnar.[line][line]Framkomnar tillögur samþykktar samhljóða.[line]

Dagskrá

Málsnúmer 1603033F

01

Fundargerð bæjarráðs frá 22/3 ´16.

Fundargerðin sem er 20 tl. er samþykkt samhljóða.

Málsnúmer 1603045F

02

Fundargerð bæjarráðs frá 5/4 ´16.

Steinþór Einarsson, ræddi 1. tl., kynningu á hönnun yfirborðsfrágangs á Garðatorgi

Gunnar Valur Gíslason, ræddi 13. tl., ársreikning Strætó bs. Gunnar Valur fjallaði sérstaklega um athugasemd 16, - dómsmál.

Gunnar Einarsson, ræddi 1. tl., kynningu á hönnun yfirborðsfrágangs á Garðatorgi.

Sigríður Hulda Jónsdóttir, ræddi 1. tl., kynningu á hönnun yfirborðsfrágangs á Garðatorgi.

Jóna Sæmundsdóttir, ræddi 13. tl., ársreikning Strætó bs og vék að sömu aðstæðum sem einnig er lýst í ársreikningi Sorpu bs.

Steinþór Einarsson, ræddi að nýju 1. tl., kynningu á hönnun yfirborðsfrágangs á Garðatorgi.

Fundargerðin sem er 22 tl. er samþykkt samhljóða.

Málsnúmer 1603028F

03

Fundargerð afmælisnefndar Garðabæjar frá 16/3 ´16.

Sturla Þorsteinsson, kvaddi sér hljóðs og sagði frá tónleikum stórsveitar Tónleikskólans sl. þriðjudag. Sturla vildi vekja athygli á frábærum listamönnum sem eru nemendur og kennarar skólans.

Fundargerðin lögð fram.

Málsnúmer 1603014F

04

Fundargerð íþrótta- og tómstundaráðs frá 10/3 ´16.

Fundargerðin lögð fram.

Málsnúmer 1603006F

05

Fundargerð leikskólanefndar frá 21/3 ´16.

Fundargerðin lögð fram.

Málsnúmer 1603046F

06

Fundargerð nefndar um málefni eldri borgara í Garðabæ frá 30/3 ´16.

Sturla Þorsteinsson, ræddi 1. tl., drög að stefnu í málefnum eldri borgara.

Fundargerðin lögð fram.

Málsnúmer 1601037F

07

Fundargerð ungmennaráðs Garðabæjar frá 28/1 ´16.

Fundargerðin lögð fram.

Málsnúmer 1603015F

08

Fundargerð ungmennaráðs Garðabæjar frá 21/3 ´16.

Fundargerðin lögð fram.

Málsnúmer 1603026F

09

Fundargerð skipulagsnefndar frá 17/3 ´16.

Fundargerðin lögð fram.

Málsnúmer 1603037F

10

Fundargerð skipulagsnefndar frá 30/3 ´16.

Sigurður Guðmundsson, ræddi 1. og 2. tl., aðalskipulag og deiliskipulag Heiðmerkur og Sandahlíðar. Þá ræddi Sigurður 13. tl., úrskurð um gildi deiliskipulags Arnarness.

Fundargerðin lögð fram.

Málsnúmer 1603023F

11

Fundargerð stjórnar Hönnunarsafns Íslands frá 15/3 ´16.

Fundargerðin lögð fram.

Málsnúmer 1601548

12

Fundargerð samstarfsnefndar skíðasvæða höfuðborgarsv. frá 31/3 ´16.

Sigurður Guðmundsson, ræddi rekstur skíðasvæða og stefnumótun fyrir skíðasvæðin.

Steinþór Einarsson, ræddi sama mál og sagði að stutt væri síðan unnið hefði verið að stefnumótun fyrir Bláfjallasvæðið eingöngu.

Gunnar Einarsson, ræddi sama mál og sagði frá vinnu við stefnumótun sem gerð var fyrir Bláfjallasvæðið. Bæjarstjóri fjallaði um stöðu skíðasvæðanna nú í vetur.

Sigurður Guðmundson, tók til máls að nýju.

Halldór Jörgensson, ræddi stöðu skíðasvæðanna og tók undir skoðanir um að unnin verði stefnumótin fyrir skíðasvæðin.

Fundargerðin lögð fram.

Málsnúmer 1601267

13

Fundargerð Strætó bs. frá 11/3 ´16.

Gunnar Valur Gíslason, ræddi 2. tl., akstursútboð og 4. tl., farþegatalningu.

Jóna Sæmundsdóttir, ræddi 5. tl., önnur mál, minnisblað um reynslu Strætó bs. af metan- og vetnisvögnum.

Steinþór Einarsson ræddi sama mál.

Fundargerðin lögð fram.

Málsnúmer 1501328

14

Fundargerð stjórnar Reykjanesfólkvangs frá 16/3 ´16.

Jóna Sæmundsdóttir, ræddi 2. tl., landvörslu og álag vegna aukningar ferðamanna.

Steinþór Einarsson, ræddi sama mál og vék að stöðu fólkvanga og hugsanlega sameiningu Reykjanesfólkvangs og Bláfjallafólkvangs.

Gunnar Einarson, bæjarstjóri ræddi sama mál.

Fundargerðin lögð fram.

Málsnúmer 1602102

15

Fundargerðir Heilbrigðisnefndar Hafnarfjarðar og Kópavogssvæðis frá 7/3 og 30/3 ´16.

Fundargerðirnar lagðar fram.

Málsnúmer 1503196

16

Lántaka samkvæmt fjárhagsáætlun 2016.

Bæjarstjórn samþykkir að taka tilboði í lántöku að fjárhæð kr. 720.000.000 að nafnvirði, verðtryggt með 3,15% ávöxtunarkröfu. Bæjarstjórn samþykkir útgáfulýsingu, dags. 7. apríl 2016 fyrir nýjan skuldabréfaflokk sem auðkenndur verður Gard 16 01. Skuldabréf samkvæmt flokknum eru gefin út rafrænt og skráð á NASDAQ OMX (Kauphöll Íslands).

Lántakan er samkvæmt heimild í fjárhagsáætlun Garðabæjar 2016 (2017-2019) sem samþykkt var í bæjarstjórn 3. desember 2015 og viðauka samþykktum á fundi bæjarstjórnar í dag.

Málsnúmer 1503196

17

Fjárhagsáætlun Garðabæjar 2016 - Viðauki nr. 1.

Bæjarstjórn samþykkir eftirfarandi viðauka nr. 1 við fjárhagsáætlun Garðabæjar árið 2016.

Lántökuheimild samkvæmt fjárhagsáætlun sem var kr. 600.000.000 verði kr. 720.000.000.

Í viðauka er gerð grein fyrir áhrifum á sjóðstreymisyfirlit en handbært fé í árslok hækkar úr kr. 14.113.000 í kr. 134.113.000

Málsnúmer 1512038

18

Ársreikningur 2015 - síðari umræða

Bæjarstjóri fjallaði um helstu niðurstöður ársreiknings og gerði grein fyrir breytingum sem gerðar hafa verið á ársreikningi frá fyrri umræðu í bæjarstjórn og vísaði til minnisblaðs KPMG, dags. 01.04.16.

Steinþór Einarsson, tók til máls um ársreikning 2015.

María Grétarsdóttir, tók til máls um ársreikning 2015.

Sigurður Guðmundsson, tók til máls og ræddi ársreikning 2015. Sigurður færði starfsmönnum bæjarins þakkir fyrir góðan árangur sem lýsir sér í jákvæðri rekstrarniðurstöðu ársins.

Gunnar Valur Gíslason, tók til máls og ræddi ársreikning 2015 og tók undir þakkir til starfsmanna bæjarins.

Gunnar Einarson, tók til máls að nýju.

Bæjarstjórn samþykkir við síðari umræðu ársreikning Garðabæjar fyrir árið 2015 samkvæmt 61. gr. sveitarstjórnalaga nr. 138/2011, sbr. 2. tl. 1. mgr. 18. gr. laganna.

Samþykktinni til staðfestingar er ársreikningurinn undirritaður af bæjarfulltrúum.