Ársskýrsla Garðabæjar 2015.
Ferill máls
Bæjarstjórn Garðabæjar
02
7. (790). fundur
Bæjarstjóri fjallaði um helstu niðurstöður ársreiknings og gerði grein fyrir breytingum sem gerðar hafa verið á ársreikningi frá fyrri umræðu í bæjarstjórn og vísaði til minnisblaðs KPMG, dags. 01.04.16.
Steinþór Einarsson, tók til máls um ársreikning 2015.
María Grétarsdóttir, tók til máls um ársreikning 2015.
Sigurður Guðmundsson, tók til máls og ræddi ársreikning 2015. Sigurður færði starfsmönnum bæjarins þakkir fyrir góðan árangur sem lýsir sér í jákvæðri rekstrarniðurstöðu ársins.
Gunnar Valur Gíslason, tók til máls og ræddi ársreikning 2015 og tók undir þakkir til starfsmanna bæjarins.
Gunnar Einarson, tók til máls að nýju.
Bæjarstjórn samþykkir við síðari umræðu ársreikning Garðabæjar fyrir árið 2015 samkvæmt 61. gr. sveitarstjórnalaga nr. 138/2011, sbr. 2. tl. 1. mgr. 18. gr. laganna.
Samþykktinni til staðfestingar er ársreikningurinn undirritaður af bæjarfulltrúum.
Bæjarráð Garðabæjar
03
12. (1729). fundur
Lagt fram minnisblað KPMG um breytingar á ársreikningi Garðabæjar frá fyrri umræðu.
Breytingarnar hafa engin áhrif á rauntölur ársreiknings og engin áhrif á rekstrarreikning fjárhagsáætlunar 2015. Breytingarnar hafa hinsvegar áhrif á áætlunartölur í skýringum og sjóðstreymi.
Bæjarráð vísar breytingunum til afgreiðslu við síðari umræðu um ársreikning sem fyrirhuguð er 7. apríl nk.
Lagðar eru fram skýrsla endurskoðenda til bæjarstjóra og skýrsla um stjórnsýsluendurskoðun. Þá er lagt fram svar við fyrirspurn bæjarfulltrúa Maríu Grétarsdóttur um ársreikning.
Fylgiskjöl
Bæjarráð Garðabæjar
04
11. (1728). fundur
Bæjarstjórn Garðabæjar
05
6. (789). fundur
Gunnar Einarsson, bæjarstjóri, fylgdi úr hlaði ársreikningi Garðabæjar fyrir árið 2015. Gerði bæjarstjóri grein fyrir helstu niðurstöðum reikningsins og lykiltölum.
Á fundinum er lögð fram sundurliðun ársreiknings og skýrsla endurskoðenda.
Bæjarstjóri lagði til að vísa ársreikningnum til síðari umræðu í bæjarstjórn.
María Grétarsdóttir, tók til máls og ræddi framkominn ársreikning Garðabæjar 2015.
Bæjarstjórn samþykkir að vísa ársreikningi Garðabæjar 2015 til síðari umræðu í bæjarstjórn.
Bæjarráð Garðabæjar
06
10. (1727). fundur
Magnús Jónsson, löggiltur endurskoðandi frá KPMG og Lúðvík Hjalti Jónsson, fjármálastjóri, mættu á fund bæjarráðs.
Magnús Jónsson gerði grein fyrir rekstri bæjarins á árinu 2015, efnahagsreikningi í árslok og skýringum í ársreikningi. Fjallað var um lykiltölur og helstu niðurstöður.
Bæjarráð samþykkir framlagðan ársreikninginn Garðabæjar 2015 samkvæmt 3. mgr. 61. gr. sveitarstjórnarlaga nr. 138/2011.
Ársreikningur er undirritaður og vísað til afgreiðslu bæjarstjórnar. Fyrri umræða í bæjarstjórn er fyrirhuguð á fundi bæjarstjórnar 17. mars og síðari umræða 7. apríl 2016.
Fylgiskjöl
Bæjarráð Garðabæjar
07
9. (1726). fundur
Á fund bæjarráðs komu Magnús Jónsson, löggiltur endurskoðandi bæjarins og Lúðvík Hjalti Jónsson, fjármálastjóri. Magnús gerði grein fyrir minnisblaði varðandi reikningsskilalega meðferð leigusamnings um hjúkrunarheimili.
Í minnisblaðinu er gerður samanburður á áhrifum þess að færa fasteign hjúkrunarheimilisins við Strikið 3 til eignar meðal varanlegra rekstrarfjármuna í B-hlutasjóði á kostnaðarverði og afskriftir og leigutekjur af eigninni í rekstrarreikning eða sem leigueign. Í tilviki leigueignar er samningur um leigu fasteignarinnar færður til eignar í efnahagsreikningi sem langtímakrafa og verðbættar leigugreiðslur færðar til tekna sem fjármagnstekjur. Í ársreikningi Garðabæjar hefur fasteignin verið færð meðal varanlegra rekstrarfjármuna.
Samkvæmt ofangreindum samanburði hefur leiguleiðin jákvæð áhrif á niðurstöðu rekstrarreikning Garðabæjar árin 2013 og 2014.
Bæjarráð samþykkir að tekin verði afstaða með viðauka á árinu 2016 til þess hvort breytt verði um reikningsskilaaðferð og leigusamningur um hjúkrunarheimilið færður til eignar í efnahagsreikningi sem lagtímakrafa.
Bæjarráð Garðabæjar
08
7. (1724). fundur
Bæjarráð samþykkir tillögu um afskriftir viðskiptakrafna samkvæmt framlögðum lista samtals að fjárhæð kr. 2.058.985.