Beint í efni

7. (1724). fundur

23.02.2016
Bæjarráð Garðabæjar

7. (1724). fundur

Bæjarráð Garðabæjar

í fundarsal bæjarráðs í Ráðhúsi Garðabæjar við Garðatorg

23.02.2016

Kl. 08:00 - 08:45

Um fundinn

Nefndarmenn

  • Áslaug Hulda Jónsdóttir - formaður
  • Sigurður Guðmundsson - aðalmaður
  • Sturla D Þorsteinsson - aðalmaður
  • Halldór Jörgen Jörgensson - aðalmaður
  • María Grétarsdóttir - aðalmaður
  • Steinþór Einarsson - áheyrnarfulltrúi

Starfsmenn

  • Gunnar Einarsson - bæjarstjóri
  • Guðjón Erling Friðriksson - bæjarritari
  • Eysteinn Haraldsson - bæjarverkfræðingur
  • Margrét Björk Svavarsdóttir - forstöðumaður fræðslu- og menningarsviðs
  • Bergljót K Sigurbjörnsdóttir - félagsmálastjóri

Ritari

  • Guðjón Erling Friðriksson,

Dagskrá

Málsnúmer 1511412

01

Umsókn um byggingarleyfi - Austurhraun 9

Bæjarráð samþykkir afgreiðslu byggingarfulltrúa að veita byggingarleyfi vegna stækkunar innra rýmis húsnæðis við Austurhraun nr. 9.

Málsnúmer 1410350

02

Umsókn um byggingarleyfi - Votakur 1

Bæjarráð samþykkir afgreiðslu byggingarfulltrúa um skráningu á viðbótarfermetrum samkvæmt reyndarteikningum fyrir einbýlishúsið að Votakri 1.

Málsnúmer 1602101

03

Umsókn um byggingarleyfi - Sunnuflöt 44

Bæjarráð samþykkir afgreiðslu byggingarfulltrúa að veita byggingarleyfi vegna gufubaðshúss o.fl. við einbýlishúsið að Sunnuflöt 44.

Málsnúmer 1602173

04

Umsókn um byggingarleyfi - Mávanes 25

Bæjarráð samþykkir afgreiðslu byggingarfulltrúa að veita byggingarleyfi vegna viðbyggingar við einbýlishúsið að Mávanesi 25.

Málsnúmer 1602263

05

Tilkynning frá fjármálaráðuneytinu um skipun starfshóps til að meta ábyrgð lífeyrisskuldbindinga vegna samrekstrar ríkis og sveitarfélaga, dags. 12.02.16.

Málsnúmer 1511121

06

Hugmyndir að hönnun fjölnotasalar fyrir bæjarstjórn o.fl.

Kynntar hugmyndir að hönnun fjölnotasalar fyrir fundi bæjarstjórnar o.fl.

Bæjarráð samþykkir að bæjarstjóri leiti samninga við Yrki-arkitekta um hönnun og gerð kostnaðaráætlunar vegna framkvæmda við fjölnotasal. Leitast skal við að leita hagkvæmra lausna við hönnun til að halda kostnaði í lágmarki. Framkvæmdir við innréttingar skulu boðnar út með opnu útboði.

Málsnúmer 1502284

07

Fundargerð 8. fundar verkefnastjórnar vegna byggingar golfskála, dags. 09.02.16.

Lögð fram.

Upplýst var um að 2. greiðsla framlags Garðabæjar 44,0 mkr kemur til greiðslu í mars í samræmi við samning aðila og heimild í fjárhagsáætlun fyrir árið 2016.

Fylgiskjöl

Málsnúmer 1512038

08

Ársreikningur 2015 - tillaga um afskriftir

Bæjarráð samþykkir tillögu um afskriftir viðskiptakrafna samkvæmt framlögðum lista samtals að fjárhæð kr. 2.058.985.

Málsnúmer 1602342

09

Bréf Alþingis um frumvarp til laga um félagsþjónustu sveitarfélaga (skilyrði fjárhagsaðstoðar), 458. mál., dags. 17.02.16.

Málsnúmer 1512265

10

Bréf starfshóps um æskulýðsmál varðandi niðurstöður ráðstefnunnar "Frítíminn er okkar fag", dags. 17.02.16.

Lagt fram og vísað til kynningar í viðeigandi fastanefndum bæjarstjórnar.

Fylgiskjöl

Málsnúmer 1602213

11

Tillaga að endurskoðun reglna um Þróunarsjóð leikskóla

Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja breytingar á reglum um Þróunarsjóð leikskóla.

Fylgiskjöl

Málsnúmer 1510187

12

Samkomulag ríkis og sveitarfélaga vegna atvinnumála fatlaðs fólks

Lagt fram til kynningar.

Fylgiskjöl

Málsnúmer 1510181

13

Bréf SSH um tillögu samráðshóps um breytingu á opnunartíma þjónustuvers vegna ferðaþjónustu fyrir fatlað fólk á höfuðborgarsvæðinu, dags. 12.02.16.

Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu samráðshóps SSH um breytingu á pöntunar- og opnunartíma þjónustuvers vegna ferðaþjónustu fatlaðs fólks á höfuðborgarsvæðinu.

Fylgiskjöl

Málsnúmer 1602261

14

Minnisblað upplýsingastjóra um notkun Garðabæjar á samfélagsmiðlum, dags. 12.02.16.

Á fund bæjarráð mætti Guðfinna B. Kristjánsdóttir, upplýsingastjóri og gerði grein fyrir minnisblaði um notkun Garðabæjar á samfélagsmiðlum þar sem m.a. kemur fram að Garðabær starfrækir í dag facebook-síðu en hefur ekki enn farið inn á aðra samfélagsmiðla. Í minnisblaðinu er jafnframt gerð grein fyrir innrivef starfsmanna, hugmyndum um að endurhanna ytri vefi Garðabæjar og að kanna möguleika á að útbúa Garðabæjarapp þar sem gönguleiðir og útivistarsvæði Garðabæjar verða kynnt.

Fylgiskjöl

Málsnúmer 1602298

15

Útboð framkvæmda við hljóð- og lóðargirðingar á samgöngustíg yfir Arnarneshæð.

Bæjarráð samþykkir að auglýst verði opið útboð vegna framkvæmda við hljóð- og lóðargirðingar á samgöngustíg yfir Arnarneshæð.

Fylgiskjöl

Málsnúmer 1602346

16

Bréf Menntamálastofnunar um innleiðingu rafrænna prófa í grunnskólum, dags. 18.02.16.

Bæjarráð vísar bréfinu til afgreiðslu fræðslu- og menningarsviðs.

Fylgiskjöl