Beint í efni

Bréf HBH og ÁJ varðandi hljóðvist í Súlunesi, dags. 29.08.16.

Málsnúmer 1602298

Ferill máls

Bæjarráð Garðabæjar

01

34. (1751). fundur

Bæjarráð vísar bréfinu til nánari skoðunar tækni- og umhverfissviðs.

Fylgiskjöl

Umhverfisnefnd Garðabæjar

02

23. fundur

Kynntur var samgöngustígur sem er hjóla- og gönguleið yfir Arnarneshæð. Stígurinn er hluti samgönguleiðar sem liggur vestan Hafnarfjarðarvegar í gegnum Garðabæ og er mikil framkvæmd sem unnin hefur verið í góðu samráði við íbúa.
Áætluð verklok eru 1. júlí. nk.

Ástæða er til að fagna þessari samgöngubót með formlegri opnun.

Bæjarráð Garðabæjar

03

10. (1727). fundur

Lögð fram eftirfarandi tilboð í framkvæmdir við lóðar- og hljóðavarnargirðingar á göngu- og hjólreiðastíg yfir Arnarneshæð.

Skrauta ehf. kr. 37.000.000
Endalaus verk ehf. kr. 43.498.700
X - JB ehf. kr. 44.284.740
Markverk ehf. kr. 37.991.784
Stálborg ehf kr. 43.288.046
Steinhella ehf kr. 32.046.900
Öryggisgirðingar ehf kr. 58.715.719
Biggi ehf. kr. 76.061.500
Sumargarður ehf. kr. 47.157.960

Kostnaðaráætlun kr. 54.450.000

Lagt fram bréf lægstbjóðanda, Steinhellu ehf., dags. 10. mars 2016 þar sem farið er fram á að falla frá tilboði vegna mistaka í tilboðsgerð.

Bæjarráð samþykkir að taka tilboði næstlægst bjóðanda með fyrirvara um að uppfylltir séu allir skilmálar útboðsins og felur bæjarverkfræðingi afgreiðslu málsins. Vakin er athygli á að samkvæmt 76. gr. laga um opinber innkaup þarf að líða 10 daga biðtími frá ákvörðun um töku tilboðs til gerðar samnings.

Bæjarráð Garðabæjar

04

7. (1724). fundur

Bæjarráð samþykkir að auglýst verði opið útboð vegna framkvæmda við hljóð- og lóðargirðingar á samgöngustíg yfir Arnarneshæð.

Fylgiskjöl