34. (1751). fundur
34. (1751). fundur
Bæjarráð Garðabæjar
í fundarsal bæjarráðs í Ráðhúsi Garðabæjar við Garðatorg
06.09.2016
Kl. 08:00 - 09:30
Um fundinn
Nefndarmenn
- Sigríður Hulda Jónsdóttir - aðalmaður
- Jóna Sæmundsdóttir - aðalmaður
- Almar Guðmundsson - varamaður
- Halldór Jörgen Jörgensson - aðalmaður
- Steinþór Einarsson - aðalmaður
- María Grétarsdóttir - áheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
- Gunnar Einarsson - bæjarstjóri
- Guðjón Erling Friðriksson - bæjarritari
- Eysteinn Haraldsson - bæjarverkfræðingur
- Margrét Björk Svavarsdóttir - forstöðumaður fræðslu- og menningarsviðs
- Bergljót K Sigurbjörnsdóttir - félagsmálastjóri
Ritari
- Guðjón Erling Friðriksson,
Dagskrá
01
Málefni Sorpu bs.
Á fund bæjarráðs mætti Björn Halldórsson, framkvæmdastjóri Sorpu bs. Björn gerði grein fyrir árshlutareikningi janúar - júní, stöðu endurvinnslustöðvanna, sagði frá stöðu kærumála og kynnti áform um gas- og jarðgerðarstöð.
Lúðvík Hjalti Jónsson, fjármálastjóri sat fund bæjarráðs undir þessum dagskrárlið.
02
Fjárhagsáætlun Garðabæjar 2016 - viðaukar 3 - 9.
Lúðvík Hjalti Jónsson, fjármálastjóri gerði grein fyrir tillögu að viðauka nr. 3-9 við fjárhagsáætlun 2016.
Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja eftirfarandi viðauka við fjárhagsáætlun 2016 samkvæmt 2. mgr. 63. gr. sveitarstjórnarlaga nr. 138/2011.
Viðauki 3 Ísafold 100,0 mkr
Viðauki 4 Sumarátak 51,0 mkr
Viðauki 5 Fjölgun nemenda og sérkennsla 40,0 mkr
Viðauki 6 Leikskólinn Ásar - sérkennsla 12,0 mkr
Viðauki 7 Barnavernd og liðveisla 17,0 mkr
Viðauki 8 Heimaþjónusta 16,0 mkr
Viðauki 9 Hækkun útsvars 240,0 mkr
Útgjaldaaukningu samkvæmt viðaukum 3-8 verður mætt með hækkun útsvarstekna, sbr. viðauki 9.
Fylgiskjöl
03
Fjárhagsáætlun Garðabæjar 2016 - málaflokkayfirlit janúar - júní.
Lúðvík Hjalti Jónsson, fjármálastjóri gerði grein fyrir málaflokkayfirliti fyrir tímabilið janúar til júní 2016 og svaraði fyrirspurnum.
Fylgiskjöl
04
Minnisblað Sambands íslenskra sveitarfélaga um forsendur fyrir fjárhagsáætlun 2017 (2017-2020), dags. 30.08.16.
05
Hraunhólar 5 - Umsókn um byggingarleyfi
Bæjarráð samþykkir afgreiðslu byggingarfulltrúa að veita Páli Þóri Jónssyni, kt. 280675-4669, byggingarleyfi fyrir byggingu einbýlishúss að Hraunhólum 5.
06
Samningur við skátafélögin um bætt aðgengi o.fl. varðandi húsnæði félaganna við Bæjarbraut.
Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja samning við skátafélögin um bætt aðgengi og viðhaldsframkvæmdir við skátaheimilið við Bæjarbraut.
Fylgiskjöl
07
Bréf HBH varðandi hraðahindrun í Hraunhólum, dags. 31.08.16.
Bæjarráð vísar bréfinu til nánari skoðunar tækni- og umhverfissviðs.
Fylgiskjöl
08
Bréf HBH varðandi hljóðvist við Hraunhóla, dags. 31.08.16.
Bæjarráð vísar bréfinu til nánari skoðunar tækni- og umhverfissviðs.
Fylgiskjöl
09
Bréf Sambands íslenskra sveitarfélaga um úthlutun úr námsgagnasjóði, 26.08.16.
10
Bréf HBH og ÁJ varðandi hljóðvist í Súlunesi, dags. 29.08.16.
Bæjarráð vísar bréfinu til nánari skoðunar tækni- og umhverfissviðs.
Fylgiskjöl
11
Staða undirbúnings framkvæmda við endurbætur á sundlauginni við Ásgarð.
Bæjarverkfræðingur gerði grein fyrir undirbúningi að framkvæmdum við endurbætur sundlaugar. Gert er ráð fyrir að útboðslýsing verði tilbúin fljótlega en stefnt er að því að framkvæmdir geti hafist um miðjan nóvember og er áætlaður framkvæmdartími 12 mánuðir.
12
Bréf Hestamannafélagsins Spretts um fegrun umhverfis á Kjóavöllum, dags. 31.08.16.
Bæjarráð vísar bréfinu til nánari skoðunar við afgreiðslu fjárhagsáætlunar fyrir árið 2017.
Fylgiskjöl
13
Bréf Shantha Mudiyanselage um aðstöðu fyrir bílaþrif í bílakjallara, dags. 24.08.16.
Bæjarráð tekur jákvætt í erindið enda verði samningur gerður til reynslu og öll tilskilin leyfi fengin fyrir starfseminni. Bæjarráð vísar afgreiðslu málsins til bæjarstjóra.