Beint í efni

Opnun tilboða í framkvæmdir við endurbætur sundlaugarinnar í Ásgarði.

Málsnúmer 1602461

Ferill máls

Bæjarráð Garðabæjar

01

44. (1761). fundur

Eftirfarandi tilboð lögð fram eftir yfirferð.

Hagtak ehf. kr. 878.606.808
Þarfaþing ehf. kr. 714.004.843
Ístak ehf. kr. 792.273.962
PK verk ehf. kr. 896.694.132
LNS Saga ehf kr. 753.082.869
Aflþing ehf kr. 749.954.132

Kostnaðaráætlun kr. 584.000.000

Bæjarráð samþykkir að taka tilboði lægstbjóðanda Þarfaþings ehf.. með fyrirvara um að uppfylltir séu allir skilmálar útboðsins og felur bæjarverkfræðingi afgreiðslu málsins. Vakin er athygli á að samkvæmt 76. gr. laga um opinber innkaup þarf að líða 10 daga biðtími frá ákvörðun um töku tilboðs til gerðar samnings.

Fylgiskjöl

Bæjarráð Garðabæjar

02

34. (1751). fundur

Bæjarverkfræðingur gerði grein fyrir undirbúningi að framkvæmdum við endurbætur sundlaugar. Gert er ráð fyrir að útboðslýsing verði tilbúin fljótlega en stefnt er að því að framkvæmdir geti hafist um miðjan nóvember og er áætlaður framkvæmdartími 12 mánuðir.

Íþrótta- og tómstundaráð Garðabæjar

03

21. fundur

Kynning á stöðu mála við undirbúning viðhalds sundlaugarinnar. Áætlað er að loka sundlauginni Ásgarði 1. nóvember 2016 til 1. nóv 2017 á meðan á framkvæmdum stendur.

Útlitsteikningar vegna lagfæringa á Ásgarðslaug kynntar fundarmönnum.
Áætlað er að framkvæmdir geti hafist 1. nóvember 2016 og standi í 12 mánuði.