44. (1761). fundur
44. (1761). fundur
Bæjarráð Garðabæjar
í fundarsal bæjarráðs í Ráðhúsi Garðabæjar við Garðatorg
15.11.2016
Kl. 08:00 - 10:00
Um fundinn
Nefndarmenn
- Áslaug Hulda Jónsdóttir - formaður
- Jóna Sæmundsdóttir - aðalmaður
- Sturla D Þorsteinsson - varamaður
- Steinþór Einarsson - aðalmaður
- Baldur Ólafur Svavarsson - varamaður
- María Grétarsdóttir - áheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
- Gunnar Einarsson - bæjarstjóri
- Guðjón Erling Friðriksson - bæjarritari
- Eysteinn Haraldsson - bæjarverkfræðingur
- Margrét Björk Svavarsdóttir - forstöðumaður fræðslu- og menningarsviðs
- Bergljót K Sigurbjörnsdóttir - félagsmálastjóri
Ritari
- Guðjón Erling Friðriksson,
Dagskrá
Málsnúmer 1609347
01
Afgreiðsla skipulagsnefndar varðandi umsókn um byggingarleyfi fyrir framkvæmdum við Blikanes 10.
Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu skipulagsnefndar að umsókn um byggingarleyfi við núverandi hús við Blikanes 10 verði grenndarkynnt samkvæmt 1. mgr. 44. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
Málsnúmer 1608318
02
Afgreiðsla skipulagsnefndar varðandi umsókn um byggingarleyfi vegna framkvæmda við Haukanes 22.
Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu skipulagsnefndar að grenndarkynning vegna umsóknar um byggingarleyfi fyrir breytingum við húsið að Haukanes 22 falli niður samkvæmt heimild í 2. ml. 3. mgr. 44. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 enda varðar breytingin ekki hagsmuni annarra en umsækjanda og sveitarfélagsins.
Málsnúmer 1605408
03
Afgreiðsla skipulagsnefndar varðandi umsókn um byggingarleyfi vegna framkvæmda við Mávanes 7.
Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu skipulagsnefndar að leyfa útgáfu byggingarleyfis samkvæmt 1. mgr. 44. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 vegna viðbyggingar og breytinga á einbýlishúsinu við Mávanes 7. Grenndarkynning hefur farið fram samkvæmt 2. mgr. sömu greinar og barst engin athugasemd.
Málsnúmer 1610132
04
Afgreiðsla skipulagsnefndar um grenndarkynningu á tillögu að óverulegri breytingu á deiliskipulagi Akra vegna lóðanna við Breiðakur 2-8.
Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu skipulagsnefndar að fram fari grenndarkynning vegna óverulegrar breytingar á deiliskipulagi Akra í tilefni umsóknar um að hafa bílakjallara í fjölbýlishúsinu við Breiðakur 2-8 og fækka bílastæðum ofanjarðar, sbr. 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 og 2. mgr. 44. gr. sömu laga.
Málsnúmer 1608510
05
Afgreiðsla skipulagsnefndar um grenndarkynningu á tillögu að óverulegri breytingu á deiliskipulagi Silfurtúns vegna beiðni um skiptingu eignar að Hörgatúni 1.
Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu skipulagsnefndar að grenndarkynna óverulega breytingu á deiliskipulagi Silfurtúns vegna lóðarinnar við Hörgatún 1 samkvæmt 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010, en í breytingunni felst að leyfa skiptingu einbýlishúss í tvær eignir.
Málsnúmer 1603319
06
Afgreiðsla skipulagsnefndar um breytingu á deiliskipulagi Ásgarðs vegna stækkunar lóðar íþróttasvæðis o.fl.
Bæjarráð samþykkir með vísan til 3. ml. 3. mgr. 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 að samþykkt tillaga um breytingu á deiliskipulagi Ásgarðs verði send til meðferðar Skipulagsstofnunar enda voru ekki gerðar neinar athugasemdir við tillöguna í athugasemdafresti auglýsingar.
Málsnúmer 1603320
07
Afgreiðsla skipulagsnefndar um breytingu á deiliskipulagi Bæjargarðs.
Bæjarráð samþykkir með vísan til 3. ml. 3. mgr. 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 að samþykkt tillaga um breytingu á deiliskipulagi Bæjargarðs verði send til meðferðar Skipulagsstofnunar enda voru ekki gerðar neinar athugasemdir við tillöguna í athugasemdafresti auglýsingar.
Málsnúmer 1606461
08
Afgreiðsla skipulagsnefndar um breytingu á deiliskipulagi viðskiptastrætis Urriðaholts vegna lóðanna við Urriðaholtsstræti 10-12 (Smáíbúðir).
Bæjarráð samþykkir með vísan til 3. ml. 3. mgr. 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 að samþykkt tillaga um breytingu á deiliskipulagi Viðskiptastrætis Urriðaholts vegna lóðarinnar við Urriðaholtsstræti 10-12 verði send til meðferðar Skipulagsstofnunar enda voru ekki gerðar neinar athugasemdir við tillöguna í athugasemdafresti auglýsingar.
Málsnúmer 1611057
09
Bréf húsfélagsins við Löngulínu 15-23 um afmörkun sparkvallar við ylströnd, dags. 30.10.16.
Bæjarráð vísar bréfinu til nánari skoðunar við afgreiðslu fjárhagsáætlunar fyrir árin 2017-2020.
Fylgiskjöl
Málsnúmer 1611101
10
Bréf Reykjavíkurborgar um verklýsingu vegna tillögu um breytingu á aðalskipulagi, dags. 08.11.16.
Bæjarráð vísar bréfinu til umfjöllunar skipulagsnefndar.
Fylgiskjöl
Málsnúmer 1611052
11
Áskorun grunnskólakennara í Garðabæ um kjaramál, dags.04.11.16
Lögð fram áskorun grunnskólakennara til sveitarfélaga um að þegar verði gengið að kröfum kennara um gerð kjarasamnings.
Bæjarstjóri sagði frá fundum með trúnaðarmönnum kennara og skólastjórnendum um stöðu mála.
Fylgiskjöl
Málsnúmer 1611104
12
Bréf Landsnets um Sandskeiðslínu 1 og Kolviðarhólslínu 2, dags. 24.10.16.
Bæjarráð vísar bréfinu til bæjarstjóra.
Fylgiskjöl
Málsnúmer 1611074
13
Bréf Félags eldri borgara í Garðabæ um styrk, dags. 04.11.16.
Bæjarráð vísar bréfinu til nánari skoðunar við afgreiðslu fjárhagsáætlunar fyrir árið 2017.
Fylgiskjöl
Málsnúmer 1611083
14
Bréf Byggingasamvinnufélags eldri borgara í Garðabæ um úthlutun lóðar, dags. 07.11.16.
Málsnúmer 1611115
15
Bréf Neytendasamtakanna um styrk, dags. 08.11.16.
Bæjarráð vísar bréfinu til nánari skoðunar við afgreiðslu fjárhagsáætlunar fyrir árið 2017.
Fylgiskjöl
Málsnúmer 1611127
16
Tillaga um breytingu á samþykkt um stjórn Garðabæjar nr. 773/2013 og breytingu á viðaukum.
Bæjarráð samþykkir að vísa breytingu á samþykkt um stjórn Garðabæjar ásamt viðaukunum til afgreiðslu bæjarstjórnar.
Málsnúmer 1602461
17
Opnun tilboða í framkvæmdir við endurbætur sundlaugarinnar í Ásgarði.
Eftirfarandi tilboð lögð fram eftir yfirferð.
Hagtak ehf. kr. 878.606.808
Þarfaþing ehf. kr. 714.004.843
Ístak ehf. kr. 792.273.962
PK verk ehf. kr. 896.694.132
LNS Saga ehf kr. 753.082.869
Aflþing ehf kr. 749.954.132
Kostnaðaráætlun kr. 584.000.000
Bæjarráð samþykkir að taka tilboði lægstbjóðanda Þarfaþings ehf.. með fyrirvara um að uppfylltir séu allir skilmálar útboðsins og felur bæjarverkfræðingi afgreiðslu málsins. Vakin er athygli á að samkvæmt 76. gr. laga um opinber innkaup þarf að líða 10 daga biðtími frá ákvörðun um töku tilboðs til gerðar samnings.
Fylgiskjöl
Málsnúmer 1605502
18
Fjárhagsáætlun Garðabæjar 2017 - tillaga að álagningu gjalda og gjaldskrár
Lögð fram eftirfarandi tillaga um álagningu fasteignagjalda.
Fasteignaskattur skal vera 0,23% af fasteignamati íbúða og íbúðarhúsa ásamt lóðarréttindum, erfðafestulanda og jarðeigna, sbr. a-lið 3. gr. laga um tekjustofna sveitarfélaga nr. 4/1995.
Fasteignaskattur skal vera 1,65% af öðrum fasteignum, sem metnar eru í fasteignamati, sbr. c-lið 3. gr. laga um tekjustofna sveitarfélaga nr. 4/1995.
Leigugjald á íbúðarhúsalóðum Garðabæjar skal vera 0,4% af fasteignamati lóðar og er þá ekki nýtt að fullu heimild bæjarins sem er 1,0%, samkvæmt niðurstöðu í matsgerð dómkvaddra manna.
Leigugjald á atvinnuhúsalóðum Garðabæjar skal vera 1,0% af fasteignamati lóðar, samkvæmt niðurstöðu í matsgerð dómkvaddra manna.
Vatnsgjald skal vera 0,11% af fasteignamati húsa ásamt lóðarréttindum, sbr. heimild í reglugerð um vatnsveitur.
Aukavatnsskattur skal á árinu 2016 vera 24,9 kr/tonn m.v. BVT í júní 2016 (138,1 stig).
Á Álftanesi skal vatnsgjald vera samkvæmt Gjaldskrá Orkuveitu Reykjavíkur sem innheimtir vatnsgjald samkvæmt samningi.
Holræsa- og rotþróargjöld skulu vera 0,12% af fasteignamati húsa ásamt lóðarréttindum, sbr. samþykkt um fráveitu í Garðabæ nr. 282/2005.
Á Álftanesi skal rotþróargjald vera kr. kr. 28.800.
Sorphreinsigjald skal vera kr. 23.800 á hverja íbúð [sjá gjaldskrá].
Taðþróargjöld í hesthúsahverfi Andvara skulu vera kr. 283.750 á hvert hús. [sjá gjaldskrá].
Fasteignaskattur og holræsagjald sem tekjulágum elli- og örorkulífeyrisþegum er gert að greiða skal lækka að teknu tilliti til viðmiðunartekna. Bæjarstjórn samþykkir að fela bæjarráði að ákvarða viðmiðunartekjur samkvæmt reglum um lækkun fasteignaskatts elli- og örorkulífeyrisþega.
Gjalddagar fasteignagjalda á árinu 2016 verða 15. janúar, 15. febrúar, 15. mars, 15. apríl 15. maí, 15. júní, 15. júlí 15. ágúst. 15. september og 15. október
Lagðar fram tillögur að eftirfarandi gjaldskrám.
Gjaldskrá skólamáltíða
Gjaldskrá leikskóla
Gjaldskrá tómstundaheimila
Gjaldskrá sundlauga
Gjaldskrá bókasafns
Bæjarráð vísar tillögu um álagningu fasteignagjalda og tillögum um gjaldskrár til afgreiðslu bæjarstjórnar.