Afgreiðsla skipulagsnefndar um breytingu á deiliskipulagi Bæjargarðs.
Ferill máls
Bæjarráð Garðabæjar
01
44. (1761). fundur
Bæjarráð samþykkir með vísan til 3. ml. 3. mgr. 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 að samþykkt tillaga um breytingu á deiliskipulagi Bæjargarðs verði send til meðferðar Skipulagsstofnunar enda voru ekki gerðar neinar athugasemdir við tillöguna í athugasemdafresti auglýsingar.
Skipulagsnefnd Garðabæjar
02
16. fundur
Lögð fram tillaga að breytingu deiliskipulags Bæjargarðs sem gerir ráð fyrir íþróttavelli og sandblakvöllum við húsið Garð sem fær að standa samkvæmt tillögunni. Tillagan var í auglýsingu frá 7.september til 19.október 2016.
Engar athugasemdir bárust.
Tillagan skoðast því samþykkt í bæjarstjórn 19.maí 2016 sem deiliskipulagsbreyting í samræmi við 3.mgr.41.gr. Skipulagslaga nr.123/2016.
Bæjarráð Garðabæjar
03
26. (1743). fundur
Bæjarráð samþykkir tillögu skipulagsnefndar að auglýsa tillögu að breytingu á deiliskipulagi bæjargarðs samkvæmt 1. mgr. 31. gr. skipulagslaga nr. 123/2010, sbr. 1. mgr. 41. gr. sömu laga, þar sem gert verður ráð fyrir nýjum æfingavelli, strandblakvöllum og að húsið Garður standi áfram.
Skipulagsnefnd Garðabæjar
04
10. fundur
Lögð fram tillaga að breytingu á deiliskipulagi Bæjargarðs að lokinni forkynningu.
Helstu breytingar eru eftirfarandi:
- gert verður ráð fyrir því að húsið Garður standi áfram
- gert verður ráð fyrir sandblakvöll við húsið Garð
- gert verður ráð fyrir æfingavelli vestan við Garð og hlaupabraut umhverfis völlinn.
Forkynning fór fram dagana 26.maí til 14.júní. Haldinn var kynningarfundur í Flataskóla þann 31.maí og var hann vel sóttur.
3 erindi með ábendingum hafa borist og er þeim vísað til skoðunar hjá deiliskipulagshöfundi.
Skipulagsnefnd vísar tillögunni til kynningar í samræmi við 1.mgr. 41.gr. og 1.mgr.43.gr Skipulagslaga nr. 123/2010.
Bæjarstjórn Garðabæjar
05
8. (791). fundur
Bæjarstjórn samþykkir tillögu skipulagsnefndar að kynna samkvæmt 3. mgr. 40. gr. skipulaglaga nr. 123/2010, breytingu á deiliskipulagi Bæjargarðs, sbr. 1. mgr. 43 gr. Fallið skal frá gerð lýsingar.
Bæjarráð Garðabæjar
06
15. (1732). fundur
Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu skipulagsnefndar að kynna samkvæmt 3. mgr. 40. gr. skipulaglaga nr. 123/2010, breytingu á deiliskipulagi Bæjargarðs, sbr. 1. mgr. 43 gr. Fallið skal frá gerð lýsingar.
Fylgiskjöl
Skipulagsnefnd Garðabæjar
07
8. fundur
Lögð fram tillaga aðbreytingu á deiliskipulagi Bæjargarðs.
Helstu breytingar eru eftirfarandi:
- gert verður ráð fyrir því að húsið Garður standi áfram
- gert verður ráð fyrir sandblakvöll við húsið Garð
- gert verður ráð fyrir æfingavelli vestan við Garð og hlaupabraut umhverfis völlinn.
Skipulagsnefnd vísar tillögunni til forkynningar í samræmi við 3.mgr.40.gr. Skipulagslaga. Halda skal kynningarfund á forkynningartíma.
Skipulagsnefnd Garðabæjar
08
7. fundur
Lögð fram tillaga að breytingu á deiliskipulagi Bæjargarðs sem gerir ráð fyrir fótboltavelli og sandblakvöllum austan við Garð.
Vísað til frekari skoðunar hjá tækni-og umhverfissviði.