8. fundur
8. fundur
Skipulagsnefnd Garðabæjar
í turnherbergi 3. hæð á bæjarskrifstofunum við Garðatorg
20.04.2016
Kl. 08:00 - 10:00
Um fundinn
Nefndarmenn
- Sigurður Guðmundsson - formaður
- Lúðvík Örn Steinarsson - aðalmaður
- Guðrún Dóra Brynjólfsdóttir - aðalmaður
- Gísli Geir Jónsson - aðalmaður
- Súsanna Björg Vilhjálmsdóttir - aðalmaður
Starfsmenn
- Arinbjörn Vilhjálmsson - skipulagsstjóri
- Eysteinn Haraldsson - bæjarverkfræðingur
- Anna Guðrún Gylfadóttir - byggingarfulltrúi
- Anna María Guðmundsdóttir - þjónustufulltrúi
- Guðfinna Björk Kristjánsdóttir - upplýsingastjóri
- Gunnar Einarsson - bæjarstjóri
Ritari
- Arinbjörn Vilhjálmsson
Dagskrá
Málsnúmer 1302243
01
Aðalskipulag Garðabæjar, endurskoðun.
Aðalskipulagsráðgjafar fóru yfir nokkur atriði varðandi stefnumótun aðalskipulagstillögunnar. Eftirfarandi ráðgjafar voru viðstaddir fundinn: Árni Ólafsson TAGGOF, Eva Dís Þórðardóttir Eflu, Óskar Örn Gunnarsson Landmótun, Bergþóra Kristinsdóttir Eflu og Yngvi Þór Loftsson Landmótun.
Málsnúmer 1405177
02
Búðir, Ásbúð og Holtsbúð, deiliskipulag.
Lögð fram tillaga að deiliskipulagi Ásbúðar og Holtsbúðar.
Þær breytingar hafa verið gerðar á auglýstri og samþykktri tillögu að aðkoma að lóðinni Holtsbúð 87 verður frá Karlabraut og frá Holtsbúð. Nú verður að auki gert ráð fyrir dælustöð OR inni í hljóðmön við Hnoðraholtsbraut.
Skipulagsnefnd leggur til að bæjarstjórn afturkalli fyrri samþykkt á tillögu að deiliskipulagi Búða frá 6.nóvember 2015.
Skipulagsnefnd leggur til við bæjarstjórn að framlagðir tillögu verði vísað til auglýsingar í samræmi við 1.mgr.41.gr. skipulagslaga.
Málsnúmer 1603319
03
Ásgarður, breyting á deiliskipulagi.
Lögð fram tillaga að breytingu á deiliskipulagi Ásgarðs. Helstu breytingar eru:
-nýr byggingarreitur þar sem gervigrasvöllur er við hlið battavalla
-nýr byggingarreitur við norðausturenda stúku
-ljósamöstur við æfingavöll næst Flataskóla
-stækkun æfingavalla næst Stekkjarflöt, tilfærsla ljósamastra að Stekkjarflöt
Skipulagsnefnd vísar tillögunni til forkynningar í samræmi við 3.mgr.40.gr. Skipulagslaga. Halda skal kynningarfund á forkynningartíma.
Málsnúmer 1603320
04
Bæjargarður, breyting deiliskipulags.
Lögð fram tillaga aðbreytingu á deiliskipulagi Bæjargarðs.
Helstu breytingar eru eftirfarandi:
- gert verður ráð fyrir því að húsið Garður standi áfram
- gert verður ráð fyrir sandblakvöll við húsið Garð
- gert verður ráð fyrir æfingavelli vestan við Garð og hlaupabraut umhverfis völlinn.
Skipulagsnefnd vísar tillögunni til forkynningar í samræmi við 3.mgr.40.gr. Skipulagslaga. Halda skal kynningarfund á forkynningartíma.
Málsnúmer 1604057
05
Unnargrund,dsk breyting vegna skyggnis
Lögð fram ósk framkvæmdaraðila um efirfarandi breytingar á deiliskipulaginu:
Eftirfarandi eru óskir okkar um deiliskipulagsbreytingu/frávik vegna Unnargrundar, sbr. fyrri erindi og símtal fyrr í dag.
1. Gólfhæð. Húsin eru þannig hæðarsett að endanleg gólfhæð, yfirborð gólfefnis, er sett í þá hæð sem fram kemur á lóðarblöðum. Gólfhiti verður í húsunum, þannig að steypt plata er um 100 mm neðar.
2. Mænishæð er 4,3 m yfir gólfi, sem er hámarkshæð skv. skilmálum. Vegna mikillar húsdýptar er nauðsynlegt að fullnýta þessa hæð, þannig að hæð hússins við útvegg verði ekki of lítil. Þakgluggar, sem ná yfir mæni, standa örlítið upp úr þaki, þannig að hægt sé að ganga tryggilega frá þeim án lekahættu.
3. Þak yfir inngangi. Yfir inngangi er flatt þak á litlum hluta hússins (innan við 4 m²). Þetta er gert til að brjóta upp framhliðina, gera húsið fínlegra og inngang meira aðlaðandi.
4. Skyggni yfir inngangi. Óskað er eftir því að skyggni yfir inngangi standi fram um u.þ.b. 1 m, og myndi þannig skjól fyrir þann sem stendur við útidyrnar.
5. Kaldir veggir. Út frá útveggjum á nokkrum stöðum standa kaldir veggstubbar, eins konar „uggar“. Þetta er gert til að brjóta upp veggfleti og gefa húsinu svip og fínlegt yfirbragð. Óskað er eftir að þessir veggstubbar megi standa allt að 40 cm út fyrir byggingarreit.
6. Lengd útveggja. Húsbreiddir eru 12,88 ? 13,00 m, en samfelld lengd útveggjar má ekki vera meiri en 8 m. Gaflveggir eru brotnir upp með gluggasetningu og með veggstubb eða „ugga“, sbr. að framan, þannig að vegglengdir hvorum megin við uggann verða innan marka. Óskað er eftir að þessi útfærsla sé samþykkt.
Skipulagsnefnd metur breytingarnar sem óverulegar breytingar á deiliskipulagi sbr. 2.mgr. 43.gr. Skipulagslaga en fellir grenndarkynningu niður í samræmi við 3.mgr. 44.gr. sömu laga þar þar sem málið varðar enga nema framkvæmdaraðila og bæjarfélagið.
Gísli Geir Jónsson vék af fundi undir þessum lið.
Málsnúmer 1603207
06
Goðatún 22, fyrirspurn um bílskýli
Lögð fram fyrirspurn um afstöðu nefndarinnar til hugmyndar um bílskýli framan við bílageymslu.
Skipulagsnefnd svarar því til að umrædd framkvæmd er innan byggingarreits og gerir því ekki athugasemd við að veitt verði byggingarleyfi fyrir framkvæmdinni. Þar sem að næsta hús liggur að lóðarmörkum og fyrir utan byggingarreit deiliskipulags þarf að vera samþykki íbúða lóðar númer 20. Hægt er að byggja 17 m2 við húsið án þess að gera þurfi deiliskipualgsbreytingu þar sem hámarksnýtingarhlutfall er 0.3.
Málsnúmer 1604155
07
Iðnbúð 1 - dsk breyting
Með vísan í afgreiðslu bæjarstjórnar þann 4.desember 2014 og afgreiðslu skipulagsnefndar 20.nóvember sama ár er tillögunni hafnað. (sjá mál númer 1411163)
Málsnúmer 1604158
08
Vesturhraun 5 - Umsókn um dsk breytingu
Lögð fram tilllaga að breytingu deiliskipulags Molduhrauns sem gerir ráð fyrir stækkun byggingarreits lóðarinnar Vesturhraun 5 til vesturs.
Tillögunn er vísað til kynningar í samræmi við 1.mgr.43.gr.Skipulagslaga nr 123/2010.
Málsnúmer 1602361
09
Garðatorg 2, fyrirspurn um stækkun.
Lögð fram fyrirspurn um stækkun 7 hæðar hússins um 20 m2. Lagt fram minnisblað frá verktaka byggingarinnar þar sem fram kemur að breytingin er til bóta fyrir bygginguna.
Skipulagsnefnd gerir ekki athugasemd við að vikið verði frá ákvæði 2.mgr.43.gr. við veitingu byggingarleyfis þar sem að um svo óverulegt frávik er að ræða að hagsmunir nágranna skerðast í engu hvað varað landnotkun, útsýni, skuggavarp eða innsýn smb. 3.mgr. sömu greinar.
Málsnúmer 1512329
10
Hagaflöt 22 - Umsókn um byggingarleyfi
Lögð fram tillaga að stækkun íbúðarhúss fyrir aftan bílageymslu. Ákvæði um lengd veggjar bílageymslu á lóðarmörkum gerir ráð fyrir 7,5 m hámarkslengd.
Skipulagsnefnd metur tillöguna sem óverulega breytingu deiliskipualgs Flata í sarmæmi við 2.mgr.43.gr.og vísar henni til grenndarkynningar. Grenndarkynna skal eigendum Hagaflatar 20, Bakkaflatar 2, Lindarflatar 32 og Lindarflatar 34.
Málsnúmer 1604099
11
Hraungata 10, dsk breyting
Lögð fram tillag að breytingu deiliskipulags Urriðaholts sem gerir ráð fyrir að einbýlishús að Hraungötu 10 breytist í parhús.
Tillögunni hafnað.
Málsnúmer 1603208
12
Hofslundur 19 -Umsókn um byggingarleyfi
Lögð fram umsókn um byggingarleyfi vegna endurbyggingar sólskála og lítilsháttar stækkunar hans. Skipulagsnefnd gerir ekki athugasemd við að byggingarleyfi verði veitt og fellir niður grenndarkynningu þar sem að byggingarleyfið varðar ekki hagsmuni annarra en umsækjanda og leyfisveitanda.
Málsnúmer 1603374
13
Akrabraut 1, fyrirspurn
Lögð fram fyrirspurn um breytingu á deiliskipulagi sem gerir ráð fyrir stækkun byggingarreits á verslunarlóðinn Akrarbraut 1 í átt að Ljósakri. Vísað til frekari skoðunar hjá tækni og umhverfissviði.