Beint í efni

Hofslundur 19 -Umsókn um byggingarleyfi

Málsnúmer 1603208

Ferill máls

Bæjarstjórn Garðabæjar

01

8. (791). fundur

Bæjarstjórn samþykkir tillögu skipulagsnefndar að leyfa útgáfu á byggingarleyfi samkvæmt 1. mgr. 44. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 vegna endurbyggingar sólskála. Með vísan til heimildar í 2. ml. 3. mgr. sömu greinar fellur grenndarkynning niður þar sem framkvæmdin varðar ekki hagsmuni annarra en umsækjanda og sveitarfélagsins

Bæjarráð Garðabæjar

02

17. (1734). fundur

Bæjarráð samþykkir afgreiðslu byggingarfulltrúa að veita byggingarleyfi vegna endurnýjunar garðskála við Hofslund 19.

Bæjarráð Garðabæjar

03

15. (1732). fundur

Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu skipulagsnefndar að leyfa útgáfu á byggingarleyfi samkvæmt 1. mgr. 44. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 vegna endurbyggingar sólskála. Með vísan til heimildar í 2. ml. 3. mgr. sömu greinar fellur grenndarkynning niður þar sem framkvæmdin varðar ekki hagsmuni annarra en umsækjanda og sveitarfélagsins.

Fylgiskjöl

Skipulagsnefnd Garðabæjar

04

8. fundur

Lögð fram umsókn um byggingarleyfi vegna endurbyggingar sólskála og lítilsháttar stækkunar hans. Skipulagsnefnd gerir ekki athugasemd við að byggingarleyfi verði veitt og fellir niður grenndarkynningu þar sem að byggingarleyfið varðar ekki hagsmuni annarra en umsækjanda og leyfisveitanda.