15. (1732). fundur
15. (1732). fundur
Bæjarráð Garðabæjar
í fundarsal bæjarráðs í Ráðhúsi Garðabæjar við Garðatorg
26.04.2016
Kl. 08:00 - 09:00
Um fundinn
Nefndarmenn
- Sigurður Guðmundsson - aðalmaður
- Sturla D Þorsteinsson - aðalmaður
- Jóna Sæmundsdóttir - varamaður
- María Grétarsdóttir - aðalmaður
- Steinþór Einarsson - áheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
- Gunnar Einarsson - bæjarstjóri
- Guðjón Erling Friðriksson - bæjarritari
- Eysteinn Haraldsson - bæjarverkfræðingur
- Margrét Björk Svavarsdóttir - forstöðumaður fræðslu- og menningarsviðs
Ritari
- Guðjón Erling Friðriksson,
Halldór Jörgensson, boðaði forföll.
Dagskrá
Málsnúmer 1603208
01
Afgreiðsla skipulagsnefndar varðandi umsókn um byggingarleyfi við Hofslund 19.
Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu skipulagsnefndar að leyfa útgáfu á byggingarleyfi samkvæmt 1. mgr. 44. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 vegna endurbyggingar sólskála. Með vísan til heimildar í 2. ml. 3. mgr. sömu greinar fellur grenndarkynning niður þar sem framkvæmdin varðar ekki hagsmuni annarra en umsækjanda og sveitarfélagsins.
Fylgiskjöl
Málsnúmer 1512329
02
Afgreiðsla skipulagsnefndar varðandi tillögu að stækkun íbúðarhúss við Hagaflöt 22.
Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tillögur skipulagsnefndar að vísa til grenndarkynningar samkvæmt 2. mgr. 43 skipulagslaga nr. 123/2010 óverulegri breytingu á deiliskipulagi Flata vegna viðbyggingar á lóðinni við Hagaflöt 22. Grenndarkynna skal tillöguna eigendum Hagaflatar 20, Bakkaflatar 2, Lindarflatar 32 og 34.
Fylgiskjöl
Málsnúmer 1405177
03
Afgreiðsla skipulagsnefndar um tillögu að deiliskipulagi Ásbúðar og Holtsbúðar.
Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að afturkalla ákvörðun um samþykkt á deiliskipulagi Ásbúðar og Holtsbúðar frá 6. nóvember 2015 og auglýsa að nýju samkvæmt 1. mgr. 31. gr. skipulagslaga nr. 123/2010, sbr. 1. mgr. 41. gr. tillögu að sama skipulagi með breytingu á aðkomu að lóðinni við Holtsbúð 87 og nýrri dælustöð fyrir OR í hljóðmön við Hnoðraholtsbraut.
Fylgiskjöl
Málsnúmer 1603319
04
Afgreiðsla skipulagsnefndar um tillögu að breytingu á deiliskipulagi Ásgarðs.
Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu skipulagsnefndar að kynna samkvæmt 3. mgr. 40. gr. skipulaglaga nr. 123/2010, tillögu að breytingu á deiliskipulagi Ásgarðs sbr. 1. mgr. 43 gr. Fallið skal frá gerð lýsingar.
Fylgiskjöl
Málsnúmer 1603320
05
Afgreiðsla skipulagsnefndar um breytingu á deiliskipulagi Bæjargarðs.
Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu skipulagsnefndar að kynna samkvæmt 3. mgr. 40. gr. skipulaglaga nr. 123/2010, breytingu á deiliskipulagi Bæjargarðs, sbr. 1. mgr. 43 gr. Fallið skal frá gerð lýsingar.
Fylgiskjöl
Málsnúmer 1604057
06
Afgreiðsla skipulagsnefndar varðandi ósk framkvæmdaraðila um breytingu á deiliskipulagi við Unnargrund, breyting vegna skyggnis.
Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tillögur skipulagsnefndar um óverulegar breytingar á skipulagi Grunda og Ása samkvæmt 2. mgr. 43 skipulagslaga nr. 123/2010. Með vísan til heimildar í 2. ml. 3. mgr. 44. gr. sömu laga fellur grenndarkynning niður þar sem breyting á deiliskipulagi varðar ekki hagsmuni annarra en umsækjanda og sveitarfélagsins.
Sturla Þorsteinsson, vék af fundi við afgreiðslu málsins.
Fylgiskjöl
Málsnúmer 1604155
07
Afgreiðsla skipulagsnefndar varðandi breytingu á deiliskipulagi Iðnbúðar 1.
Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu skipulagsnefndar um að hafna umsókn um breytingu á deiliskipulagi Iðnbúðar og Smiðbúðar varðandi lóðina við Iðnbúð 1 þar sem sótt er um að breyta þjónusturými í íbúðarými.
Málsnúmer 1604158
08
Afgreiðsla skipulagsnefndar varðandi tillögu að breytingu á deiliskipulagi Molduhrauns, Vesturhraun 5.
Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu skipulagsnefndar að auglýsa breytingu á deiliskipulagi Molduhrauns samkvæmt 1. mgr. 31. gr. skipulagslaga nr. 123/2010, sbr. 1. mgr. 43. gr. sömu laga vegna stækkunar byggingarreits lóðarinnar við Vesturhraun 5. Fallið er frá kynningu samkvæmt 3. mgr. 40. gr. skipulagslaga þar sem allar meginforsendur liggja fyrir.
Fylgiskjöl
Málsnúmer 1602361
09
Afgreiðsla skipulagsnefndar varðandi fyrirspurn um stækkun hússins við Garðatorg 2.
Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu skipulagsnefndar um víkja frá ákvæði 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 um málsmeðferð vegna óverulegrar breytingar á deiliskipulagi, sbr. heimild í 3. mgr. sömu greinar, við útgáfu á byggingarleyfi vegna stækkunar fjölbýlishússins við Garðatorg 2 sem nemur 20 fermetrum.
Fylgiskjöl
Málsnúmer 1604099
10
Afgreiðsla skipulagsnefndar varðandi tillögu að breytingu á deiliskipulagi Urriðaholts vegna Hraungötu 10.
Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu skipulagsnefndar um að hafna umsókn um breytingu á deiliskipulagi vesturhluta Urriðaholts vegna lóðarinnar við Hraungötu 10 en sótt er um að breyta lóðinni úr einbýlishúsalóð í parhúsalóð.
Málsnúmer 1604169
11
Bréf Fjörukráarinnar varðandi forkaupsrétt og heimild til veðsetningar fasteignar við Hlið, dags. 19.04.16.
Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja að falla frá forkaupsrétti vegna fyrirhugaðrar sölu á Hliðsvegi 1 til Landnáms ehf., kt. 640295-2529.
Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja breytingu á kvöð vegna veðsetningar þannig að hámarksfjárhæð hækki í kr. 204.400.000 samkvæmt 4. tl. A-liðar í skjali, dags. 15. mars 2005.
Fylgiskjöl
Málsnúmer 1510006
12
Bréf ráðuneytis v/úttekt Námsmatsstofnunar á Barnaskóla Hjallastefnunnar í Garðabæ, dags. 07.04.16.
Málsnúmer 1604187
13
Bréf Landskerfis bókasafna hf. um aðalfund 2016, dags. 14.04.16.
Málsnúmer 1512294
14
Bréf velferðarráðuneytis varðandi samning um yfirtöku á rekstri Ísafoldar, dags. 15.04.16.
Í bréfinu kemur fram að ráðuneytið hafi ekki fjárheimildir til að hækka daggjöld Ísafoldar né hafi það heimildir til að taka yfir reksturinn.
Bæjarráð lýsir furðu á afstöðu ráðuneytisins sem er þvert á fyrri yfirlýsingar um að ráðherra hafi samþykkt að taka yfir reksturinn og falið starfmönnum ráðuneytisins að undirbúa málið í samstarfi við Garðabæ.
Bæjarstjóri gerði grein fyrir úttekt sem nýlega hefur verið gerð á kostnaðarútreikningi á rekstri hjúkrunarheimila. Það eru helstu niðurstöður þær að daggjöld þurfi að hækka verulega miðað við þær kröfur sem gerðar eru um mönnum hjúkrunarheimila í ummönnunarmódeli Landlæknis.
Fylgiskjöl
Málsnúmer 1505187
15
Hofsstaðir - kauptilboð
Bæjarráð samþykkir kauptilboð í eignina að fjárhæð kr. 57.000.000 með fyrirvara um að ástandskoðun fari fram.
Bæjarráð samþykkir að útbúin verði kvöð sem gildi í 10 ár vegna hugsanlegrar sölu eignarinnar til þriðja aðila sem byggingarlóðar. Andvirði 15% byggingarréttar skal þá greidd seljendum.
Málsnúmer 1604216
16
Bréf Golfklúbbs Garðabæjar og Kópavogs um heimild til veðsetningar íþróttamiðstöðvar, dags. 19.04.16.
Bæjarráð samþykkir að veita Golfklúbbi Kópavogs og Garðabæjar heimild til veðsetningar íþróttamiðstöðvar vegna lántöku hjá Arion banka allt að fjárhæð kr. 150.000.000. Varðandi heimild til veðsetningar er vísað til samnings aðila um byggingu íþróttamiðstöðvar, dags. 29. janúar 2015 og yfirlýsingar um kvöð, dags 16. mars 2016.
Fylgiskjöl
Málsnúmer 1604217
17
Bréf íbúa við Engimýri 2 um leyfi fyrir girðingu við lóðarmörk, dags. 12.04.16.
Bæjarráð vísar erindinu til nánari skoðunar tækni- og umhverfissviðs.
Fylgiskjöl
Málsnúmer 1604227
18
Bréf Samgöngustofu varðandi umsögn um staðsetningu ökutækjaleigu, dags. 19.04.16.
Bæjarráð gerir ekki athugasemdir við að starfsleyfi Okkar bílaleigu, Kauptúni 6 verði endurnýjað en um er að ræða starfsemi á vegum Toyota á Íslandi.
Fylgiskjöl
Málsnúmer 1604244
19
Bréf Sambands ísl. sveitarfélaga varðandi viljayfirlýsingu við Sýslumannafélag Íslands um framkvæmd utankjörfundaratkvæðagreiðslu, dags. 19.04.16.
Málsnúmer 1604251
20
Bréf UMF Stjörnunnar um leyfi til að halda lokahóf öldungamóts í blaki í Mýrinni, dags. 20.04.16.
Bæjarráð tekur jákvætt í erindið og felur bæjarstjóra afgreiðslu þess.
Fylgiskjöl
Málsnúmer 1512293
21
Tilkynning frá fjármálaráðuneytinu og Sambandi ísl. sveitarfélaga um samkomulag vegna markmiða um afkomu og efnahag sveitarfélaga árin 2017-2021, dags. 18.04.16.
Málsnúmer 1604252
22
Bréf Alþingis um tillögu til þingsályktunar um fjögurra ára samgönguáætlun 2015-2018, 638. mál., dags. 20.04.16.
Bæjarráð lýsir ánægju með tillögu um fjárveitingu að fjárhæð 350 mkr til endurbóta á gatnamótum og Hafnarfjarðarvegar og Vífilsstaðavegar og leggur áherslu á að tillaga að deiliskipulagi liggi fyrir sem fyrst.