Hagaflöt 22 - Umsókn um byggingarleyfi
Ferill máls
Bæjarráð Garðabæjar
01
7. (1773). fundur
Bæjarráð samþykkir afgreiðslu byggingarfulltrúa að veita Auði Stefánsdóttur, kt. 061269-3639 leyfi fyrir viðbyggingu við núverandi einbýlishús að Hagaflöt 22.
Bæjarráð Garðabæjar
02
26. (1743). fundur
Bæjarráð samþykkir að tillaga að óverulegri breytingu á deiliskipulagi Flata vegna lóðarinnar nr. 22 við Hagaflöt verði send Skipulagsstofnun og til birtingar í B-deild Stjórnartíðinda samkvæmt 3. ml. 2. mgr. 43. skipulagsaga nr. 123/2010.
Skipulagsnefnd Garðabæjar
03
10. fundur
Tillaga að breytingu á deiliskipulagi Flata sem nær til lóðarinnar við Hagaflöt 22 lögð fram að lokinni grenndarkynningu sem fór fram 10. maí til 7.júní. Engar athugasemdir bárust og samþykkir skipulagsnefnd því tillöguna sem óverulega breytingu á deiliskipulagi Flata.
Bæjarstjórn Garðabæjar
04
8. (791). fundur
Bæjarstjórn samþykkir tillögur skipulagsnefndar að vísa til grenndarkynningar samkvæmt 2. mgr. 43 skipulagslaga nr. 123/2010 óverulegri breytingu á deiliskipulagi Flata vegna viðbyggingar á lóðinni við Hagaflöt 22. Grenndarkynna skal tillöguna eigendum Hagaflatar 20, Bakkaflatar 2 og Lindarflatar 32 og 34.
Bæjarráð Garðabæjar
05
15. (1732). fundur
Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tillögur skipulagsnefndar að vísa til grenndarkynningar samkvæmt 2. mgr. 43 skipulagslaga nr. 123/2010 óverulegri breytingu á deiliskipulagi Flata vegna viðbyggingar á lóðinni við Hagaflöt 22. Grenndarkynna skal tillöguna eigendum Hagaflatar 20, Bakkaflatar 2, Lindarflatar 32 og 34.
Fylgiskjöl
Skipulagsnefnd Garðabæjar
06
8. fundur
Lögð fram tillaga að stækkun íbúðarhúss fyrir aftan bílageymslu. Ákvæði um lengd veggjar bílageymslu á lóðarmörkum gerir ráð fyrir 7,5 m hámarkslengd.
Skipulagsnefnd metur tillöguna sem óverulega breytingu deiliskipualgs Flata í sarmæmi við 2.mgr.43.gr.og vísar henni til grenndarkynningar. Grenndarkynna skal eigendum Hagaflatar 20, Bakkaflatar 2, Lindarflatar 32 og Lindarflatar 34.