Beint í efni

8. (791). fundur

19.05.2016
Bæjarstjórn Garðabæjar

8. (791). fundur

Bæjarstjórn Garðabæjar

í Safnaðarheimilinu Kirkjuhvoli

19.05.2016

Kl. 17:00 - 18:30

Um fundinn

Nefndarmenn

  • Sigríður Hulda Jónsdóttir - forseti bæjarstjórnar
  • Áslaug Hulda Jónsdóttir - aðalmaður
  • Gunnar Valur Gíslason - aðalmaður
  • Jóna Sæmundsdóttir - aðalmaður
  • Sturla D Þorsteinsson - aðalmaður
  • Viktoría Jensdóttir - varamaður
  • Björg Fenger - varamaður
  • María Grétarsdóttir - aðalmaður
  • Baldur Ólafur Svavarsson - varamaður
  • Súsanna Björg Vilhjálmsdóttir - varamaður
  • Gísli Geir Jónsson - varamaður

Starfsmenn

  • Guðjón Erling Friðriksson - bæjarritari

Ritari

  • Guðjón Erling Friðriksson,

Fundurinn er hljóðritaður [line][line]Sigríður Hulda Jónsdóttir, forseti bæjarstjórnar setti fund og stjórnaði[line][line]Fundargerð bæjarstjórnar frá 7. apríl 2016 er lögð fram.[line][line]

Dagskrá

Málsnúmer 1604010F

01

Fundargerð bæjarráðs frá 12/4 ´16.

Fundargerðin sem er 12 tl. er samþykkt samhljóða.

Málsnúmer 1604026F

02

Fundargerð bæjarráðs frá 19/4 ´16.

Fundargerðin sem er 10 tl. er samþykkt samhljóða.

Málsnúmer 1604033F

03

Fundargerð bæjarráðs frá 26/4 ´16.

Gunnar Valur Gíslason, ræddi 21. tl., tilkynningu frá fjármálaráðuneytinu og Sambandi ísl sveitarfélaga um samkomulag vegna markmiða um afkomu og efnahag sveitarfélaga.

Fundargerðin sem er 22 tl. er samþykkt samhljóða.

3.1 - 1603208 - Afgreiðsla skipulagsnefndar varðandi umsókn um byggingarleyfi við Hofslund 19.

Bæjarstjórn samþykkir tillögu skipulagsnefndar að leyfa útgáfu á byggingarleyfi samkvæmt 1. mgr. 44. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 vegna endurbyggingar sólskála. Með vísan til heimildar í 2. ml. 3. mgr. sömu greinar fellur grenndarkynning niður þar sem framkvæmdin varðar ekki hagsmuni annarra en umsækjanda og sveitarfélagsins

Fylgiskjöl

3.10 - 1604099 - Afgreiðsla skipulagsnefndar varðandi tillögu að breytingu á deiliskipulagi Urriðaholts vegna Hraungötu 10.

Bæjarstjórn samþykkir tillögu skipulagsnefndar um að hafna umsókn um breytingu á deiliskipulagi vesturhluta Urriðaholts vegna lóðarinnar við Hraungötu 10 en sótt er um að breyta lóðinni úr einbýlishúsalóð í parhúsalóð.

Fylgiskjöl

3.11 - 1604169 - Bréf Fjörukráarinnar varðandi forkaupsrétt og heimild til veðsetningar fasteignar við Hlið, dags. 19.04.16.

Bæjarstjórn samþykkir að falla frá forkaupsrétti vegna fyrirhugaðrar sölu á Hliðsvegi 1 til Landnáms ehf., kt. 640295-2529. Bæjarstjórn samþykkir jafnframt breytingu á kvöð vegna veðsetningar þannig að hámarksfjárhæð hækki í kr. 204.400.000 samkvæmt 4. tl. A-liðar í skjali, dags. 15. mars 2005.

Fylgiskjöl

3.2 - 1512329 - Afgreiðsla skipulagsnefndar varðandi tillögu að stækkun íbúðarhúss við Hagaflöt 22.

Bæjarstjórn samþykkir tillögur skipulagsnefndar að vísa til grenndarkynningar samkvæmt 2. mgr. 43 skipulagslaga nr. 123/2010 óverulegri breytingu á deiliskipulagi Flata vegna viðbyggingar á lóðinni við Hagaflöt 22. Grenndarkynna skal tillöguna eigendum Hagaflatar 20, Bakkaflatar 2 og Lindarflatar 32 og 34.

Fylgiskjöl

3.3 - 1405177 - Afgreiðsla skipulagsnefndar um tillögu að deiliskipulagi Ásbúðar og Holtsbúðar.

Bæjarstjórn samþykkir að afturkalla ákvörðun um samþykkt á deiliskipulagi Ásbúðar og Holtsbúðar frá 6. nóvember 2015 og auglýsa tillögu að sama skipulagi að nýju samkvæmt 1. mgr. 31. gr. skipulagslaga nr. 123/2010, sbr. 1. mgr. 41. gr. en með breytingu á aðkomu að lóðinni við Holtsbúð 87 og nýrri dælustöð fyrir OR í hljóðmön við Hnoðraholtsbraut.

Fylgiskjöl

3.4 - 1603319 - Afgreiðsla skipulagsnefndar um tillögu að breytingu á deiliskipulagi Ásgarðs.

Bæjarstjórn samþykkir tillögu skipulagsnefndar að kynna samkvæmt 3. mgr. 40. gr. skipulaglaga nr. 123/2010, tillögu að breytingu á deiliskipulagi Ásgarðs sbr. 1. mgr. 43 gr. vegna stækkunar byggingarreits o.fl. Fallið skal frá gerð lýsingar.

Fylgiskjöl

3.5 - 1603320 - Afgreiðsla skipulagsnefndar um breytingu á deiliskipulagi Bæjargarðs.

Bæjarstjórn samþykkir tillögu skipulagsnefndar að kynna samkvæmt 3. mgr. 40. gr. skipulaglaga nr. 123/2010, breytingu á deiliskipulagi Bæjargarðs, sbr. 1. mgr. 43 gr. Fallið skal frá gerð lýsingar.

Fylgiskjöl

3.6 - 1604057 - Afgreiðsla skipulagsnefndar varðandi ósk framkvæmdaraðila um breytingu á deiliskipulagi við Unnargrund, breyting vegna skyggnis.

Bæjarstjórn samþykkir tillögur skipulagsnefndar um óverulegar breytingar á skipulagi Grunda og Ása samkvæmt 2. mgr. 43 skipulagslaga nr. 123/2010. Með vísan til heimildar í 2. ml. 3. mgr. 44. gr. sömu laga fellur grenndarkynning niður þar sem breyting á deiliskipulagi varðar ekki hagsmuni annarra en umsækjanda og sveitarfélagsins.

Fylgiskjöl

3.7 - 1604155 - Afgreiðsla skipulagsnefndar varðandi breytingu á deiliskipulagi Iðnbúðar 1.

Bæjarstjórn samþykkir tillögu skipulagsnefndar um að hafna umsókn um breytingu á deiliskipulagi Iðnbúðar og Smiðsbúðar varðandi lóðina við Iðnbúð 1 þar sem sótt er um að breyta þjónusturými í íbúðarými.

Fylgiskjöl

3.8 - 1604158 - Afgreiðsla skipulagsnefndar varðandi tillögu að breytingu á deiliskipulagi Molduhrauns, Vesturhraun 5.

Bæjarstjórn samþykkir tillögu skipulagsnefndar að auglýsa breytingu á deiliskipulagi Molduhrauns samkvæmt 1. mgr. 31. gr. skipulagslaga nr. 123/2010, sbr. 1. mgr. 43. gr. sömu laga vegna stækkunar byggingarreits lóðarinnar við Vesturhraun 5. Fallið er frá kynningu samkvæmt 3. mgr. 40. gr. skipulagslaga þar sem allar meginforsendur liggja fyrir.

Fylgiskjöl

3.9 - 1602361 - Afgreiðsla skipulagsnefndar varðandi fyrirspurn um stækkun hússins við Garðatorg 2.

Bæjarstjórn samþykkir tillögu skipulagsnefndar um víkja frá ákvæði 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 um málsmeðferð vegna óverulegrar breytingar á deiliskipulagi, sbr. heimild í 3. mgr. sömu greinar, við útgáfu á byggingarleyfi vegna stækkunar fjölbýlishússins við Garðatorg 2 sem nemur 20 fermetrum.

Fylgiskjöl

Málsnúmer 1604040F

04

Fundargerð bæjarráðs frá 3/5 ´16.

Fundargerðin sem er 11 tl. er samþykkt samhljóða

Málsnúmer 1605003F

05

Fundargerð bæjarráðs frá 10/5 ´16.

Áslaug Hulda Jónsdóttir ræddi 4. tl., umsókn um byggingarleyfi og lagði fram eftirfarandi tillögu.

„Byggingarleyfi hefur nú verið útgefið fyrir nýbyggingu að Garðatorgi 6. Með því eru hafnar framkvæmdir við síðasta mannvirkið sem rís samkvæmt deiliskipulagi fyrir miðbæ Garðabæjar.

Áður hafa risið verslunar- og þjónustuhúsnæði við Litlatún 1 og 3, íbúðarhúsnæði við Kirkjulund 12-14, bílakjallari í eigu Garðabæjar við Garðatorg, íbúðar- og verslunarhúsnæði við Garðatorg 4 og íbúðarhúsnæði við Garðatorg 2.

Uppbyggingin er í samræmi við forsendur sem byggja á áætlunargerð í deiliskipulagi og mörkuð hefur verið í framkvæmd með samningum Klasa og Garðabæjar með þeim árangri að við Garðatorgið er nú að verða að veruleika nýr miðbær Garðabæjar með nýjum íbúum, verslunum, veitingastarfsemi, menningu í Hönnunarsafni Íslands og á vegum Grósku og þjónustustarfsemi af ýmsum toga.

Í nýjum miðbæ Garðabæjar verða um 132 nýjar íbúðir og má áætla að íbúar muni greiða árlega útsvar sem nemur um 150 mkr og þá má áætla að árlegar tekjur vegna fasteignagjalda verði um 60 mkr. Samtals mun árlegar tekjur Garðabæjar nema um 210 mkr án þess að til komi viðbótarfjárfesting í innviðum eins og uppbyggingu skólahúsnæðis o.fl.

Ástæða er til að fagna góðu samstarfi sem skilað hefur árangri til hagsbóta fyrir samfélagið í Garðabæ.“

Fundargerðin sem er 18 tl. er samþykkt samhljóða.

Málsnúmer 1605014F

06

Fundargerð bæjarráðs frá 17/5 ´16.

María Grétarsdóttir, ræddi 2. tl., Garðatorg 6 ? byggingarleyfi og lagði fram eftirfarandi bókun..

„Í 24. grein sveitarstjórnarlaga nr. 138 frá 2011 er kveðið á um að sveitarstjórnarmönnum beri í hvívetna að gæta að almennum hagsmunum íbúa sveitarfélagsins sem og öðrum almannahagsmunum.

Garðabær hefur í gegnum miðbæjarsamninga við Klasa afhent lóðir endurgjaldslaust sbr. samkomulag um þróun og uppbyggingu miðbæjar í Garðabæ frá 9. maí 2005, samkomulag um úthlutun lóða og sölu byggingarréttar í miðbæ Garðabæjar frá 15. desember 2006 og lóðarleigusamning um lóð í miðbæ Garðabæjar frá 24. maí 2013 auk nokkurra annarra “samkomulaga? og “viðauka?, í miðbæ Garðabæjar og víðar. Einnig hefur Garðabær í gegnum framangreinda samninga tekið á sig kostnað á um annan milljarð króna í formi bílastæðakjallara, leigugreiðslna, eftirgjöf fasteignagjalda og vaxtatekna, frágangs á yfirborði á miðbæjarsvæði auk þess sem Garðabær rekur svæðið. Nú eru að hefjast framkvæmdir við nýjustu byggingu Klasa á miðbæjarsvæðinu og enn og aftur er fyrirtækinu afhent lóð á besta stað í bænum endurgjaldslaust auk þess sem Garðabær mun fjármagna flutning á innkeyrslu af Vífilsstaðavegi inn á Garðatorg.

Fólkið í bænum telur sveitarstjórnarlög gróflega brotin gagnvart íbúum bæjarins þar sem lóðir og skattfé íbúa að fjárhæð allt að þremur milljörðum króna er ráðstafað til einkafyrirtækis án endurgjalds.“

Áslaug Hulda Jónsdóttir, ræddi framkomna bókun og áskildi sér rétt til gagnbókunar.

Gunnar Valur Gíslason, ræddi framkomna bókun.

Baldur Ó. Svavarsson, ræddi framkomna bókun.

Sturla Þorsteinsson, ræddi framkomna bókun.

María Grétarsdóttir, tók til máls að nýju.

Fundargerðin sem er 15 tl. er samþykkt samhljóða.

Málsnúmer 1604013F

07

Fundargerð fjölskylduráðs frá 13/4 ´16.

Fundargerðin lögð fram.

Málsnúmer 1604018F

08

Fundargerð íþrótta- og tómstundaráðs frá 13/4 ´16.

Fundargerðin lögð fram.

Málsnúmer 1604002F

09

Fundargerð leikskólanefndar frá 13/4 ´16.

Fundargerðin lögð fram.

Málsnúmer 1604003F

10

Fundargerð mannréttinda- og forvarnanefndar frá 4/5 ´16.

Fundargerðin lögð fram.

Málsnúmer 1604019F

11

Fundargerð menningar- og safnanefndar frá 15/4 ´16.

Gunnar Valur Gíslason ræddi 1. tl., listadaga barna og ungmenna og 2. tl., jasshátíð.

Fundargerðin lögð fram.

Málsnúmer 1605012F

12

Fundargerð menningar- og safnanefndar frá 13/5 ´16.



Gunnar Valur Gíslason, ræddi 1. tl. samstarfssamning við Grósku, 2 tl. tilnefningu bæjarlistamanns 2016, 3. tl., úthlutun úr hvatningarsjóði ungra listamanna og 6. tl. styrk til tónleikaraðar á vegum kennara í Tónlistarskóla Garðabæjar.

María Grétarsdóttir, ræddi 2. tl., tilnefningu bæjarlistamanns.

Gunnar Valur Gíslason, ræddi 2. tl., tilnefningu bæjarlistamanns.

Baldur Ó. Svavarsson, ræddi 2. tl., tilnefningu bæjarlistamanns.

Gunnar Valur Gíslason, tók til máls að nýju.

Áslaug Hulda Jónsdóttir, ræddi 2. tl., tilnefningu bæjarlistamanns.

Baldur Ó Svavarsson tók til máls að nýju.

Sturla Þorsteinsson, ræddi 2. tl., tilnefningu bæjarlistamanns.

Gunnar Valur Gíslason, tók til máls að nýju og ræddi 4. tl., menningaruppskeruhátíð og sérstakar viðurkenningar til framlags menningar og lista.

Baldur Ó. Svavarsson, tók til máls að nýju.

Fundargerðin lögð fram.

Málsnúmer 1604028F

13

Fundargerð skipulagsnefndar frá 20/4 ´16.

Fundargerðin lögð fram.

Málsnúmer 1604001F

14

Fundargerð skólanefndar grunnskóla Garðabæjar frá 14/4 ´16.

Sturla Þorsteinsson, ræddi 4. tl., umsóknir um stöðu skólastjóra Sjálandsskóla og óskaði nýráðnum skólastjóra, Eddu B. Sigurðardóttur, til hamingju með starfið.

Fundargerðin lögð fram.

Málsnúmer 1604037F

15

Fundargerð skólanefndar tónlistarskóla Garðabæjar frá 12/5 ´16.

Sigríður Hulda Jónsdóttir, ræddi 2. tl., landsmót skólahljómsveita og færði starfmönnum og nemendum Tónlistarskóla Garðabæjar og öðrum sem tóku þátt í mótinu sérstakar þakkir fyrir glæsilegt mót og stórgóða skemmtun.

Sturla Þorsteinsson, ræddi 4. tl., landsmót skólahljómsveita og tók undir orð um frábært landsmót skólahljómsveita.

Fundargerðin lögð fram.

Málsnúmer 1605007F

16

Fundargerð umhverfisnefndar frá 11/5 ´16.

Jóna Sæmundsdóttir, ræddi 1. tl., merkingar hjólastíga fyrir höfuðborgarsvæðið, 4. tl., fræðslu- og sögugöngur og 6. tl., hreinsunarátak.

María Grétarsdóttir, ræddi 6. tl., hreinsunarátak.

Jóna Sæmundsdóttir, tók til máls að nýju.

Áslaug Hulda Jónsdóttir, ræddi 6. tl., hreinsunarátak.

Viktoría Jensdóttir, ræddi 6. tl., hreinsunarátak.

Fundargerðin lögð fram.

Málsnúmer 1604035F

17

Fundargerð ungmennaráðs frá 28/4 ´16.

Áslaug Hulda Jónsdóttir, ræddi störf ungmennaráðs og mikilvægi þess að virkja ráðið til þátttöku í starfsemi og stefnumótun á vegum bæjarins.

Fundargerðin lögð fram.

Málsnúmer 1601267

18

Fundargerðir Strætó bs. frá 4/4, 18/4 og 29/4 ´16.

Gunnar Valur Gíslason ræddi 7. tl., fg. frá 4/4, dómsmál og 4. tl., fg. 29/4, framvindumat vegna tilraunaverkefnis um eflingu almenningssamgangna.

Áslaug Hulda Jónsdóttir, ræddi farþegatalningar á vegum Strætó.

Fundargerðin lögð fram.

Málsnúmer 1601548

19

Fundargerð samstarfsnefndar skíðasvæða höfuðborgarsvæðisins frá 26/4 ´16.

Björg Fenger, ræddi 2. tl., aðsókn að skíðasvæðunum í vetur.

Fundargerðin lögð fram.

Málsnúmer 1501328

20

Fundargerð stjórnar Reykjanesfólkvangs frá 27/4 ´16.

Jóna Sæmundsdóttir, ræddi 1. tl., flutning á starfstöð fólkvangsins til Grindavíkur.

Fundargerðin lögð fram.

Málsnúmer 1601366

21

Fundargerð stjórnar SSH frá 4/4 ´16.

Fundargerðin lögð fram.

Málsnúmer 1601474

22

Fundargerð stjórnar Sorpu frá 22/4 ´16.

Jóna Sæmundsdóttir, ræddi 4. tl., uppgjör endurvinnslustöðva fyrir árið 2015 og 5. tl., endurskoðun rekstraráætlunar endurvinnslustöðva árið 2016.

Fundargerðin lögð fram.

Málsnúmer 1601353

23

Fundargerð stjórnar Slökkviliðs höfuðborgarsvæðisins frá 15/4 ´16.

Fundargerðin lögð fram.

Málsnúmer 1602102

24

Fundargerð Heilbrigðisnefndar Hafnarfjarðar- og Kópavogssvæðis frá 25/4 ´16.

Fundargerðin lögð fram.

Málsnúmer 1503366

25

Stefna í málefnum eldri borgara í Garðabæ.

Sturla Þorsteinsson, mælti fyrir nýrri stefnu í málefnum eldri borgara. Sturla þakkaði öllum sem komið hafa að undirbúningi að gerð stefnunnar og sérstakar þakkir færði hann Ingibjörgu Valgeirsdóttur, framkvæmdastjóra öldrunar- og heimaþjónustu Garðabæjar.

Til máls tóku, María Grétarsdóttir, Baldur Ó Svavarsson og Gunnar Valur Gíslason.

Bæjarstjórn samþykkir samhljóða stefnu í málefnum eldri borgara

Málsnúmer 1406302

26

Tillaga að samþykkt um hænsnahald í Garðabæ.

Jóna Sæmundsdóttir, fylgdi úr hlaði og gerði grein fyrir samþykkt um hænsnahald. Jóna sagði frá vinnu við gerð samþykktarinnar í umhverfsnefnd og samstarfi við heilbrigðiseftirlit.

Bæjarstjórn samþykkir samhljóða samþykkt um hænsnahald.

Málsnúmer 1510181

27

Ferðaþjónusta fyrir fatlað fólk á höfuðborgarsvæðinu.

Gunnar Valur Gíslason, gerði grein fyrir tillögu að nýjum sameiginlegum reglum fyrir ferðaþjónustu fatlaðs fólks.

Bæjarstjórn samþykkir fyrir sitt leyti reglur um ferðaþjónustu fyrir fatlað fólk á höfuðborgarsvæðinu.