Hænsnahald í Garðabæ
Ferill máls
Umhverfisnefnd Garðabæjar
01
29. fundur
Samþykkt um hænsnahald í Garðabæ var samþykkt frá Umhverfis- og auðlindarráðuneytinu 17. nóvember 2016.
Umsóknareyðublað verður útbúið og sett upp á vef bæjarins.
Lagt fram.
Fylgiskjöl
Bæjarstjórn Garðabæjar
02
10. (793). fundur
Bæjarstjórn samþykkir samhljóða samþykkt um hænsnahald í Garðabæ.
Samþykktin skal send umhverfis- og auðlindaráherra til staðfestingar samkvæmt 25. gr. laga um hollustuhætti og og mengunarvarnir nr. 7/1998.
Bæjarstjórn Garðabæjar
03
8. (791). fundur
Jóna Sæmundsdóttir, fylgdi úr hlaði og gerði grein fyrir samþykkt um hænsnahald. Jóna sagði frá vinnu við gerð samþykktarinnar í umhverfsnefnd og samstarfi við heilbrigðiseftirlit.
Bæjarstjórn samþykkir samhljóða samþykkt um hænsnahald.
Bæjarráð Garðabæjar
04
18. (1735). fundur
Bæjarráð vísar samþykkt um hænsnahald til afgreiðslu bæjarstjórnar.
Umhverfisnefnd Garðabæjar
05
22. fundur
Tillaga um hænsnahald í Garðabæ í samstarfi við Heilbrigðiseftirlit Kópavogs og Hafnarfjarðarsvæðis hefur verið í vinnslu um nokkurt skeið.
Tillagan var samþykkt í heilbrigðisnefnd 30. mars sl.
Leitað var umsagnar Matvælastofnunar og jákvætt svar barst þaðan 31. mars sl.
Umhverfisnefnd vísar tillögunni til afgreiðslu bæjaryfirvalda.
Umhverfisnefnd Garðabæjar
06
21. fundur
Lögð fram drög að samþykkt um hænsnahald í Garðabæ.
Umhverfisnefnd Garðabæjar
07
15. fundur
Lögð fram ný samþykkt um hænsnahald í Mosfellsbæ, utan skipulagðra landbúnaðarsvæða.
Nefndin leggur til að umhverfisstjóri vinni tillögu að samþykkt um hænsnahald í Garðabæ í samstarfi við Heilbrigðiseftirlitið.
Umhverfisnefnd Garðabæjar
08
1. fundur
Kynntar fyrirspurnir um hænsnahald í Garðabæ og kvartanir af hænsnahaldi.
Ákveðið að nefndin vinni að gerð samþykktar um hænsnahald í Garðabæ.