Beint í efni

22. fundur

11.05.2016
Umhverfisnefnd Garðabæjar

22. fundur

Umhverfisnefnd Garðabæjar

Bæjarskrifstofa Turni 3. hæð

11.05.2016

Kl. 17:00 - 19:00

Um fundinn

Nefndarmenn

  • Jóna Sæmundsdóttir - formaður
  • Halldór Halldórsson - varamaður
  • Huginn Freyr Þorsteinsson - aðalmaður
  • Erling Jóhannesson - aðalmaður

Starfsmenn

  • Erla Bil Bjarnardóttir - umhverfisstjóri

Ritari

  • Erla Bil Bjarnardóttir

Dagskrá

Málsnúmer 1506075

01

Merkingar hjólastíga fyrir höfuðborgarsvæðið

Merking hjólastíga fyrir höfuðborgarsvæðið hefur verið samstarfsverkefni bæjarfélaganna. Verkefnið sem unnið var af Mannvit verkfræðistofu snerist um hönnun skilta og tillögur að staðsetningu þeirra. Verkefninu er nú lokið.

Nauðsynlegt er að hefja næsta áfanga, það er að koma upp merkingum við hjólaleiðir í Garðabæ.

Málsnúmer 1501328

02

Fundargerðir 2014 - 2018 - Reykjanesfólkvangur

Fundargerðir stjórnar Reykjanesfólkvangs frá 16. mars og 27. apríl 2016 og tillaga stjórnarinnar um breytt fyrirkomulag á starfstöð Fólkvangsins, landverði og formennsku.

Lagt fram til kynningar.

Málsnúmer 1406302

03

Hænsnahald í Garðabæ

Tillaga um hænsnahald í Garðabæ í samstarfi við Heilbrigðiseftirlit Kópavogs og Hafnarfjarðarsvæðis hefur verið í vinnslu um nokkurt skeið.

Tillagan var samþykkt í heilbrigðisnefnd 30. mars sl.

Leitað var umsagnar Matvælastofnunar og jákvætt svar barst þaðan 31. mars sl.

Umhverfisnefnd vísar tillögunni til afgreiðslu bæjaryfirvalda.

Málsnúmer 1601427

04

Fræðslu- og sögugöngur 2016

Skipulagðar fræðslu- og sögugöngur hafa gengið vel undanfarið og verið vel sóttar. Göngur með leiðsögn fræðifólks er samstarfsverkefni umhverfisnefndar og menningar- og safnanefndar.

Þær göngur sem afstaðnar eru:

1. Söguganga um Silfurtúnshverfið, þann 8. mars sl. í leiðsögn Baldurs Svavarssonar arkitekts.

2. Söguganga um Garðahverfi, þann 12 apríl sl. í leiðsögn Arinbjarnar Vilhjálmssonar skipulagsstjóra.

3. Fuglaskoðun við Kasthúsatjörn á Álftanesi, þann 10. maí sl. í leiðsögn fuglafræðinganna Dr. Ólafs Einarssonar og Jóhanns Óla Hilmarssonar.

Útikennsla í boði umhverfisnefndar var þann sama dag með fuglafræðingunum fyrir 5. bekkinga Álftanesskóla.



Þann 9. júní nk. verður söguganga um Fógetastíg. Gangan verður í leiðsögn Ragnheiðar Traustadóttur fornleifafræðings og er afmælisganga í tilefni af fjörtíu ára afmæli Garðabæjar.

Nánar auglýst á www.gardabaer.is

Málsnúmer 1605068

05

Útikennsla um fugla á Álftanesi

Þann 10. maí sl. var útikennsla um fugla fyrir 5. bekkinga í Álftanesskóla. Fuglafræðingarnir Jóhann Óli Hilmarsson og Dr. Ólafur Einarsson höfðu umsjón með kennslunni og kennsluefni í samráði við kennara skólans.

Útikennslan var í boði umhverfisnefndar.

Málsnúmer 1603090

06

Hreinsunarátak 2016 - snyrtilegt umhverfi

Hreinsunarátak vorsins 2016 hefur gengið vel. Átakið í Garðabæ er einstakt og aldrei hafa fleiri hópar óskað eftir þátttöku með því að taka að sér svæði í nærumhverfinu til ruslatínslu.

Starfsmenn bæjarins hirtu jafnóðum upp alla poka og hrúgur eftir hópana.

Í lok átaksins var veittur hvatningarstyrkur til hvers hóps.

Umhverfisnefnd er ánægð með hve bæjarlandið kemur vel undan vetri.