Hreinsunarátak 2016 - snyrtilegt umhverfi
Ferill máls
Umhverfisnefnd Garðabæjar
01
22. fundur
Hreinsunarátak vorsins 2016 hefur gengið vel. Átakið í Garðabæ er einstakt og aldrei hafa fleiri hópar óskað eftir þátttöku með því að taka að sér svæði í nærumhverfinu til ruslatínslu.
Starfsmenn bæjarins hirtu jafnóðum upp alla poka og hrúgur eftir hópana.
Í lok átaksins var veittur hvatningarstyrkur til hvers hóps.
Umhverfisnefnd er ánægð með hve bæjarlandið kemur vel undan vetri.
Umhverfisnefnd Garðabæjar
02
21. fundur
Í undirbúningi eru vorverkefni í snyrtilegum bæ:
1. Hreinsunarátak með þátttöku íbúa, félagasamtaka og skóla á nærumhverfi sínu. Að launum hljóta þau hvatningarstyrk.
Tímabil hreinsunarátaksins verður 16.-30. apríl nk.
2. Vorhreinsun lóða, þar sem garðaúrgangur er fjarlægður við lóðamörk. Framkvæmdin með verktökum tókst vel síðastliðið vor og gert ráð fyrir sama fyrirkomulagi í ár.
Tímabil vorhreinsunar lóða verður 17.-27. maí nk.