Beint í efni

21. fundur

09.03.2016
Umhverfisnefnd Garðabæjar

21. fundur

Umhverfisnefnd Garðabæjar

í turnherbergi 3. hæð á bæjarskrifstofunum við Garðatorg

09.03.2016

Kl. 17:00 - 17:00

Um fundinn

Nefndarmenn

  • Jóna Sæmundsdóttir - formaður
  • Jóhann Gunnar Jóhannsson - aðalmaður
  • Huginn Freyr Þorsteinsson - aðalmaður
  • Erling Jóhannesson - aðalmaður

Starfsmenn

  • Erla Bil Bjarnardóttir - umhverfisstjóri

Ritari

  • Erla Bil Bjarnardóttir

Dagskrá

Málsnúmer 1603091

01

Trjágróður á lóðamörkum

Kynnt var niðurstaða könnunar garðyrkjudeildar á trjágróðri á lóðamörkum sem gerð var á tímabilinu nóvember 2015 - mars 2016. Send verða bréf út til eigenda með athugasemdum vegna 128 lóða. Athugasemdum fækkaði milli ára vegna lóða á Álftanesi.

Fáeinir hafa ítrekað fengið athugasemdabréf síðastliðin 2 - 5 ár.

Auglýsing verður birt í Garðapóstinum "Klippið trjágróður frá stéttum og stígum".

Fylgiskjöl

Málsnúmer 1603090

02

Hreinsunarátak 2016 - snyrtilegt umhverfi

Í undirbúningi eru vorverkefni í snyrtilegum bæ:

1. Hreinsunarátak með þátttöku íbúa, félagasamtaka og skóla á nærumhverfi sínu. Að launum hljóta þau hvatningarstyrk.

Tímabil hreinsunarátaksins verður 16.-30. apríl nk.

2. Vorhreinsun lóða, þar sem garðaúrgangur er fjarlægður við lóðamörk. Framkvæmdin með verktökum tókst vel síðastliðið vor og gert ráð fyrir sama fyrirkomulagi í ár.

Tímabil vorhreinsunar lóða verður 17.-27. maí nk.

Málsnúmer 1602382

03

Umhverfisvöktun 2016

Verkefni umhverfisvöktunar í ár verða sýnatökur og mælingar á næringarefnum og efnamengun í Vífilsstaðavatni og Urriðavatni.

Samið hefur verið við Heilbrigðiseftirlit Hafnarfjarðar og Kópavogssvæðis um verkefnið.

Fylgiskjöl

Málsnúmer 1406302

04

Hænsnahald í Garðabæ

Lögð fram drög að samþykkt um hænsnahald í Garðabæ.

Málsnúmer 1603092

05

Fræðsla um gróður og umhverfi

Fyrirhugað er að bjóða uppá fræðslu um gróður og umhverfismál í Bókasafni Garðabæjar síðdegis dagana 31. mars, 14. apríl og 28. apríl.

Leiðbeinendur verða Erla Bil Bjarnardóttir umhverfisstjóri, Smári Guðmundsson garðyrkjustjóri og Linda Björk Jóhannsdóttir verkstjóri garðyrkjudeildar.

Málsnúmer 1602108

06

Fræðslu og sögugöngur 2016

Fyrsta fræðslu- og söguganga ársins var þann 8. mars þar sem gengið var um Túnahverfi undir leiðsögn Baldurs Svavarssonar. Hann er uppalinn í hverfinu og gerði þar húsakönnun fyrir nokkrum árum.

Þátttaka þessarar fyrstu göngu afmælisársins lofar góðu með framhaldið þar sem um sjötíu manns tóku þátt.

Málsnúmer 1603013

07

Beiðni um styrk vegna Yrkjusjóðs 2016

Lögð fram styrkbeiðni vegna Yrkjusjóðs 2016.

Umhverfisnefnd samþykkir styrk til Yrkjusjóðs.

Fylgiskjöl