Fræðslu og sögugöngur 2016
Ferill máls
Umhverfisnefnd Garðabæjar
01
23. fundur
9. júní verður boðið uppá sögugöngu um Fógetastíg í Gálgahrauni. Gangan er í tilefni af 40 ára afmæli Garðabæjar. Ragnheiður Traustadóttir fornleifafræðingur verður með leiðsögn.
Fræðslubæklingur um fornar leiðir í Gálgahrauni hefur verið gefin út og dreift á heimili í bænum.
Mæting er við Hraunsvik í hvammi við jaðar Gálgahrauns, þar sem Gunnar Einarsson bæjarstjóri opnar formlega fyrstu app- gönguleiðina.
Boðið verður uppá súpu í lok göngunnar í Álftaneskaffi við Breiðumýri.
Lögð fram drög að fræðslu- og sögugöngum sem hefjast aftur í ágúst.
Umhverfisnefnd Garðabæjar
02
21. fundur
Fyrsta fræðslu- og söguganga ársins var þann 8. mars þar sem gengið var um Túnahverfi undir leiðsögn Baldurs Svavarssonar. Hann er uppalinn í hverfinu og gerði þar húsakönnun fyrir nokkrum árum.
Þátttaka þessarar fyrstu göngu afmælisársins lofar góðu með framhaldið þar sem um sjötíu manns tóku þátt.
Umhverfisnefnd Garðabæjar
03
20. fundur
Á afmælisári verður fræðslu og sögugöngum fjölgað í samstarfi við menningar og safnanefnd.
Drög að dagskrá liggur fyrir, með fyrstu göngu í mars.
Á afmælisári verður fræðslu og sögugöngum fjölgað í samstarfi við menningar- og safnanefnd.
Drög að dagskrá liggur fyrir með fyrstu göngu í mars.