20. fundur
20. fundur
Umhverfisnefnd Garðabæjar
í turnherbergi 3. hæð á bæjarskrifstofunum við Garðatorg
10.02.2016
Kl. 17:00 - 19:00
Um fundinn
Nefndarmenn
- Jóna Sæmundsdóttir - formaður
- Jóhann Gunnar Jóhannsson - aðalmaður
- Halldór Halldórsson - varamaður
- Huginn Freyr Þorsteinsson - aðalmaður
Starfsmenn
- Erla Bil Bjarnardóttir - umhverfisstjóri
Ritari
- Erla Bil Bjarnardóttir
Dagskrá
01
Kynnisferð í Sorpu
Umhverfisnefnd ásamt bæjarfulltrúum, bæjarstjóra og nokkrum starfsmönnum umhverfissviðs kynntu sér starfsemi Sorpu þann 5. febrúar sl.
Kynnisferðin var afar fróðleg.
02
Stefna um úrgangsforvarnir 2016 - 2027
Lagt fram til kynningar.
Fylgiskjöl
03
Tillögur til fjárhagsáætlunar umhverfismála 2016
Farið yfir fjárveitingar til umhverfismála.
Farið yfir fjárveitingar til umhverfismála.
Nefndin ákveður samkvæmt vöktunaráætlun 2015 að fara í rannsókn á efnamengun Vífilsstaðavatns og Urriðavatns.
Fylgiskjöl
04
Fræðslu og sögugöngur 2016
Á afmælisári verður fræðslu og sögugöngum fjölgað í samstarfi við menningar og safnanefnd.
Drög að dagskrá liggur fyrir, með fyrstu göngu í mars.
Á afmælisári verður fræðslu og sögugöngum fjölgað í samstarfi við menningar- og safnanefnd.
Drög að dagskrá liggur fyrir með fyrstu göngu í mars.
Fylgiskjöl
05
Merkingar hjólastíga fyrir höfuðborgarsvæðið
Garðabær hefur tekið þátt í verkefni sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu við að setja upp samræmdar merkingar á hjólastíga sem samgönguleiðir milli sveitarfélaganna.
Hönnun skiltanna fer fram hjá Mannviti verkfræðistofu, einnig tillögur að staðsetningu í hverju sveitarfélagi.
Kostnaðarskipting hönnunar verksins fer eftir höfðatölu.
Fylgiskjöl
06
Kortavefur - map.is
Ný kortasjá Garðabæjar á slóðinni map.is/gardabaer var gerð aðgengileg íbúum og öðrum áhugasömum fyrr á þessu ári. Á vefnum er landupplýsingakerfi Garðabæjar varpað út til almennings og gert aðgengilegt í venjulegum netvöfrum.
Kortasjáin býður upp á ýmsa möguleika til framtíðar til að koma upplýsingum á framfæri á myndrænan hátt á korti.
07