23. fundur
23. fundur
Umhverfisnefnd Garðabæjar
í turnherbergi 3. hæð á bæjarskrifstofunum við Garðatorg
08.06.2016
Kl. 17:00 - 19:00
Um fundinn
Nefndarmenn
- Jóna Sæmundsdóttir - formaður
- Jóhann Gunnar Jóhannsson - aðalmaður
- Halldór Halldórsson - varamaður
- Sveinbjörg Vilhjálmsdóttir - varamaður
- Erling Jóhannesson - aðalmaður
Starfsmenn
- Erla Bil Bjarnardóttir - umhverfisstjóri
Ritari
- Erla Bil Bjarnardóttir
Dagskrá
Málsnúmer 1605436
01
Samstarf Wapp og Garðabæjar um skráningu og birtingu leiðarlýsinga
Samningur um Wapp fyrir Garðabæ var undirritaður í Gálgahrauni 02.06.16. Samningurinn varðar birtingu göngu-, hjóla og hlaupaleiða í Garðabæ í leiðsagnarappinu Wappinu. Gunnar Einarsson bæjarstjóri f.h. Garðabæjar og Einar Skúlason framkvæmdastjóri Wapp undirrituðu samninginn að viðstöddum Jónu Sæmundsdóttur formanni umhverfisnefndar, Gunnari Val Gíslasyni formanni menningar- og safnanefndar, Björgu Fenger formanni ÍTG, Huldu Hauksdóttur og Erlu Biljar Bjarnardóttur starfsmönnum nefndanna.
Appið verður formlega opnað við upphaf afmælisgöngu eftir Fógetastígnum sem einnig er nefndur Álftanesgata 9. júní nk.
Málsnúmer 1512139
02
Styrkumsókn til endurheimt votlendis
Endurheimt votlendis við Kasthúsatjörn.
Þann 09.12.2015 var sótt um styrk í styrktarsjóð Landgræðslunnar til að endurheimta votlendið við Kasthúsatjörn.
Fulltrúi Landgræðslunnar kom 26.04.16 í vettvangsskoðun.
Þann 1. júní sl. barst tilkynning frá Landgræðslu ríkisins um að ákvörðun hafi verið tekin um að verkefnið um endurheimt votlendis við Kasthúsatjörn, hljóti styrk til framkvæmda sem stuðla að því að koma vatnsbúskap svæðisins sem næst fyrra horfi.
8. júní sl. barst formlegt svar og upphæð styrks alls kr.1.447.500.-
Umhverfisnefnd óskar eftir framkvæmdaleyfi til bæjaryfirvalda.
Málsnúmer 1605446
03
Afturköllun friðlýsingar
Auglýsing um niðurfellingu friðlýsingar um náttúruvættið Búrfell, Búrfellsgjá og eystri hluta Selgjár.
Friðlýsing eldstöðvarinnar Búrfells, Búrfellsgjár og eystri hluta Selgjár sem náttúruvætti nr. 511/2014 var undirrituð 30.04.2014 í húsi Náttúrufræðistofnunnar Íslands.
Þessi áfangi friðlýsingar var gríðarlega mikilvægur og hafði umhverfisnefndin unnið að því til fjölda ára að friðlýsa eldstöðina með hraunelfuni til sjávar.
Umhverfisnefnd harmar þessa niðurstöðu.
Málsnúmer 1606092
04
Salerni við stönd sjálands
Salerni á útivistarsvæði við strönd Sjálands.
Ákveðið hefur verið staðsetja bráðabirgða salerni við strönd Sjálands.
Aðstaðan verður yfir sumarmánuðina enda mikil aðsókn að svæðinu á sólríkum dögum.
Málsnúmer 1601594
05
Göngustígur að Vífilsstaðavatni
Göngustígur að Vífilsstaðavatni hefur verið í undirbúningi. Göngustígurinn verður sunnan Vífilsstaða, milli undirgangna undir Reykjanesbraut og Elliðavatnsvegar þar sem fyrirhuguð eru undirgöng síðar.
Framkvæmdin hefur verið boðin út og á fundi bæjarráðs 7. júní sl. var samþykkt að leita samninga við lægstbjóðanda í framkvæmdina.
Umhverfisnefnd fagnar lagningu þessarar fallegu og öruggu leiðar að friðlandi Vífilsstaðavatns.
Málsnúmer 1602298
06
Samgöngustígur yfir Arnarneshæð - hljóð/ lóðagirðingar
Kynntur var samgöngustígur sem er hjóla- og gönguleið yfir Arnarneshæð. Stígurinn er hluti samgönguleiðar sem liggur vestan Hafnarfjarðarvegar í gegnum Garðabæ og er mikil framkvæmd sem unnin hefur verið í góðu samráði við íbúa.
Áætluð verklok eru 1. júlí. nk.
Ástæða er til að fagna þessari samgöngubót með formlegri opnun.
Málsnúmer 1602108
07
Fræðslu og sögugöngur 2016
9. júní verður boðið uppá sögugöngu um Fógetastíg í Gálgahrauni. Gangan er í tilefni af 40 ára afmæli Garðabæjar. Ragnheiður Traustadóttir fornleifafræðingur verður með leiðsögn.
Fræðslubæklingur um fornar leiðir í Gálgahrauni hefur verið gefin út og dreift á heimili í bænum.
Mæting er við Hraunsvik í hvammi við jaðar Gálgahrauns, þar sem Gunnar Einarsson bæjarstjóri opnar formlega fyrstu app- gönguleiðina.
Boðið verður uppá súpu í lok göngunnar í Álftaneskaffi við Breiðumýri.
Lögð fram drög að fræðslu- og sögugöngum sem hefjast aftur í ágúst.
Málsnúmer 1606095
08
Evrópsksamgönguvika 2016
Evrópsksamgönguvika 16. - 22. september
Lögð fram fundargerð undirbúningshóps Evrópskusamgönguvikunnar sem haldin verður daganna 16. - 22. september.
Málsnúmer 1606183
09
Gerlamælingar í yfirborðsvatni og sjó á svæði Garðabæjar, maí 2016
Bréf Heilbrigðiseftirlitsins með niðurstöðum gerlamælinga í yfirborðsvatni og sjó, sýnataka fór fram í maí 2016.
Á fundi heilbrigðisnefndar 30. maí s.l. var fjallað um niðurstöður síðustu mælinga. Var það mat nefndarinnar að niðurstöður örverumælinga í fjörum í Garðabæ uppfylli almennar kröfur sem hægt er að gera til útivistar í þéttbýli. Það mat byggir á niðurstöðum mælinga en einnig á að áfram verði unnið að því að finna rangtengingar og gera við bilanir þegar þær finnast.