Samstarf Wapp og Garðabæjar - fleiri leiðarlýsingar
Ferill máls
Umhverfisnefnd Garðabæjar
01
27. fundur
Framhald á samstarfi við Einar Skúlason Wapp, þann 8. október var bætt við leiðum á appið það er leiðarlýsing á hringleið "Garðabær Hraunleið" um Garðahraun og Svínahraun um 7.13 km að lengd.
Framhald á samstarfi við Einar Skúlason um Wapp. Þann 8. október var bætt við leiðarlýsingu á appið. Um er að ræða hringleið "Garðabær Hraunleið" um Garðahraun og Svínahraun 7.13 km að lengd.
Í vinnslu eru leiðarlýsingar umhverfis Bessastaðatjörn og hjóla- og hlaupaleiðir á Álftanesi.
Nefndin minnir á að wappið er öllum frítt fyrsta árið. Unnið verður að því að kynna verkefnið nánar.
Fylgiskjöl
Umhverfisnefnd Garðabæjar
02
23. fundur
Samningur um Wapp fyrir Garðabæ var undirritaður í Gálgahrauni 02.06.16. Samningurinn varðar birtingu göngu-, hjóla og hlaupaleiða í Garðabæ í leiðsagnarappinu Wappinu. Gunnar Einarsson bæjarstjóri f.h. Garðabæjar og Einar Skúlason framkvæmdastjóri Wapp undirrituðu samninginn að viðstöddum Jónu Sæmundsdóttur formanni umhverfisnefndar, Gunnari Val Gíslasyni formanni menningar- og safnanefndar, Björgu Fenger formanni ÍTG, Huldu Hauksdóttur og Erlu Biljar Bjarnardóttur starfsmönnum nefndanna.
Appið verður formlega opnað við upphaf afmælisgöngu eftir Fógetastígnum sem einnig er nefndur Álftanesgata 9. júní nk.
Bæjarráð Garðabæjar
03
20. (1737). fundur
Lagt fram minnisblað um gerð leiðsagnarapps fyrir snjallsíma þar sem í boði eru hreyfileiðir og söguleiðir innan Garðabæjar. Heildarkostnaður við verkefnið er um 1,3 mkr.
Bæjarráð samþykkir að ganga til samninga við Wapp Walking app ehf. á grundvelli fyrirliggjandi minnisblaðs og felur bæjarstjóra afgreiðslu málsins.