Beint í efni

Styrkumsókn til endurheimt votlendis

Málsnúmer 1512139

Ferill máls

Umhverfisnefnd Garðabæjar

01

31. fundur

Endurheimt votlendis við Kasthúsatjörn.

Framkvæmd við endurheimt votlendis austan Kasthúsatjarnar er lokið með því að fylla mold í skurði á svæðinu. Framkvæmdaferlið kynnt fyrir umhverfisnefnd.

Bæjarráð Garðabæjar

02

31. (1748). fundur

Bæjarráð samþykkir að veita leyfi vegna framkvæmda við endurheimt votlendis við Kasthúsatjörn sem eru í samræmi við áætlanir í deiliskipulagi sem samþykkt var á árinu 1988 og gildir fyrir svæðið.

Bæjarráð vísar málinu til áframhaldandi vinnslu á tækni- og umhverfissviði.

Fylgiskjöl

Bæjarráð Garðabæjar

03

22. (1739). fundur

Bæjarráð vísar bréfinu til nánari skoðunar bæjarstjóra og til afgreiðslu fjárhagsáætlunar fyrir árið 2017.

Fylgiskjöl

Umhverfisnefnd Garðabæjar

04

23. fundur

Endurheimt votlendis við Kasthúsatjörn.

Þann 09.12.2015 var sótt um styrk í styrktarsjóð Landgræðslunnar til að endurheimta votlendið við Kasthúsatjörn.
Fulltrúi Landgræðslunnar kom 26.04.16 í vettvangsskoðun.

Þann 1. júní sl. barst tilkynning frá Landgræðslu ríkisins um að ákvörðun hafi verið tekin um að verkefnið um endurheimt votlendis við Kasthúsatjörn, hljóti styrk til framkvæmda sem stuðla að því að koma vatnsbúskap svæðisins sem næst fyrra horfi.

8. júní sl. barst formlegt svar og upphæð styrks alls kr.1.447.500.-

Umhverfisnefnd óskar eftir framkvæmdaleyfi til bæjaryfirvalda.