Beint í efni

22. (1739). fundur

14.06.2016
Bæjarráð Garðabæjar

22. (1739). fundur

Bæjarráð Garðabæjar

í fundarsal bæjarráðs í Ráðhúsi Garðabæjar við Garðatorg

14.06.2016

Kl. 08:00 - 10:00

Um fundinn

Nefndarmenn

  • Áslaug Hulda Jónsdóttir - formaður
  • Sigríður Hulda Jónsdóttir - aðalmaður
  • Jóna Sæmundsdóttir - aðalmaður
  • Steinþór Einarsson - aðalmaður
  • Baldur Ólafur Svavarsson - varamaður
  • María Grétarsdóttir - áheyrnarfulltrúi

Starfsmenn

  • Guðjón Erling Friðriksson - bæjarritari
  • Eysteinn Haraldsson - bæjarverkfræðingur
  • Margrét Björk Svavarsdóttir - forstöðumaður fræðslu- og menningarsviðs

Ritari

  • Guðjón Erling Friðriksson,

Dagskrá

Málsnúmer 1503196

01

Fjárhagsáætlun Garðabæjar fyrir árið 2016 - Viðauki 2

Á fund bæjarráðs mætti Lúðvík Hjalti Jónsson, fjármálastjóri, og gerði grein fyrir tillögu að viðauka nr. 2 við fjárhagsáætlun 2016.

Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja eftirfarandi viðauka við fjárhagsáætlun 2016 samkvæmt 2. mgr. 63. gr. sveitarstjórnarlaga nr. 138/2011.

Viðauki vegna launahækkana kr. 253.816.736.

Ofangreindum viðauka skal mætt með lækkun á varasjóði kr. 190.000.000 (31-6-916-7179) og lækkun á handbæru fé í árslok sem nemur kr. 63.816.737.

Fylgiskjöl

Málsnúmer 1605183

02

Drög að samningi við UMFÁ um rekstur knattspyrnuvalla.

Bæjarráð samþykkir samning við UMFÁ um rekstur knattspyrnuvalla og er fjármögnun hans samkvæmt lið 06-621 í fjárhagsáætlun 2016.

Fylgiskjöl

Málsnúmer 1605076

03

Tillaga skólanefndar Tónlistarskóla Garðabæjar um skólagjöld skólaárið 2016-2017.

Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu skólanefndar Tónlistaskóla Garðabæjar um gjaldskrá vegna skólagjalda skólaárið 2016 - 2017.

Fylgiskjöl

Málsnúmer 1512139

04

Bréf umhverfisstjóra varðandi framkvæmdir við endurheimt votlendis við Kasthúsatjörn, dags. 09.06.16.

Bæjarráð vísar bréfinu til nánari skoðunar bæjarstjóra og til afgreiðslu fjárhagsáætlunar fyrir árið 2017.

Fylgiskjöl

Málsnúmer 1606213

05

Bréf Sigurjóns Daða Sigurðssonar varðandi námsvist í tónlistarskóla utan Garðabæjar, dags. 01.06.16.

Bæjarráð vísar bréfinu til afgreiðslu bæjarstjóra.

Fylgiskjöl

Málsnúmer 1601348

06

Uppsögn samnings við Heilsugæslu Garðabæjar um greiðslu launakostnaðar starfsmanns, dags 14.07.16.

Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að segja upp samningi við Heilsugæsluna á höfuðborgarsvæðinu um greiðslu launakostnaðar.

Málsnúmer 1606217

07

Umsagnarbeiðni vegna umsóknar um veitingaleyfi fyrir golfskála Setbergs

Bæjarráð gerir ekki athugasemdir við að umbeðið leyfi verði veitt.

Málsnúmer 1606139

08

Bréf Jöfnunarsjóðs sveitarfélaga um sérstakt framlag vegna langtímaleigusamninga, dags. 02.06.16.

Málsnúmer 1603160

09

Umsókn Helgu Krisjánsdóttur um námsleyfi, dags. 08.03.16.

Bæjarráð samþykkir að veita umsækjanda launað námsleyfi sem nemur 10% stöðuhlutfalli í sex mánuði.

Fylgiskjöl

Málsnúmer 1604305

10

Bréf Jöfnunarsjóðs sveitarfélaga um stuðning við tónlistarnám, dags. 07.06.16.

Málsnúmer 1606230

11

Umsókn Hjallastefnunnar um starfsemi dagvistar fyrir börn á Vífilsstöðum

Bæjarráð samþykkir að ganga til samninga við Hjallastefnuna um vistunarúrræði fyrir 9 - 12 mánaða gömul börn á grundvelli þeirra reglna sem gilda samkvæmt reglugerð um dagggæslu í heimahúsum.

Áslaug Hulda Jónsdóttir, vék sæti við umfjöllun og afgreiðslu málsins.

Málsnúmer 1601001

12

Gerð og staðfesting kjörskrár vegna forsetakosninga 25. júní 2016.

Bæjarritari lagði fram eintak af kjörskrá fyrir Garðabæ vegna forsetakosninga sem fram eiga að fara 25. júní 2016.

Á kjörskrá eru samtals 11.230 kjósendur. Í Fjölbrautaskólanum í Garðabæ er fjöldi kjósenda 9.509 og í Álftanesskóla 1.721. Kjósendum hefur fjölgað um 698 frá síðustu Alþingiskosningum 2013 eða um 6,6%.

Bæjarráð staðfestir með vísan til 22. gr. laga um kosningar til Alþingis nr. 24/2000, sbr. lög um framboð og kjör forseta Íslands nr. 36/1945 kjörskrá Garðabæjar til að gilda við forsetakosningar 25. júní 2016.

Kjörskráin skal auglýst og liggja frammi almenningi til sýnis í þjónustuveri Garðabæjar í Ráðhúsinu við Garðatorg frá 15. júní til kjördags.