31. (1748). fundur
31. (1748). fundur
Bæjarráð Garðabæjar
í fundarsal bæjarráðs í Ráðhúsi Garðabæjar við Garðatorg
16.08.2016
Kl. 08:00 - 09:00
Um fundinn
Nefndarmenn
- Áslaug Hulda Jónsdóttir - formaður
- Sigríður Hulda Jónsdóttir - aðalmaður
- Jóna Sæmundsdóttir - aðalmaður
- Steinþór Einarsson - aðalmaður
- Baldur Ólafur Svavarsson - varamaður
- María Grétarsdóttir - áheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
- Gunnar Einarsson - bæjarstjóri
- Guðjón Erling Friðriksson - bæjarritari
- Eysteinn Haraldsson - bæjarverkfræðingur
- Margrét Björk Svavarsdóttir - forstöðumaður fræðslu- og menningarsviðs
- Bergljót K Sigurbjörnsdóttir - félagsmálastjóri
Ritari
- Guðjón Erling Friðriksson
Dagskrá
01
Skólabyrjun - gjaldskrá vegna skólamats
Forstöðumaður fræðslu- og menningarsviðs gerði grein fyrir undirbúningi skólastarfs í leik- og grunnskólum á næsta skólaári. Fjöldi barna í grunnskólum er um 2.500 og hefur fjölgað um 50 frá síðasta ári. Fram kom að öllum sex ára börnum var gefinn kostur að hefja undirbúning fyrir skólastarf í tómstundaheimilum skólanna í viku fyrir skólabyrjun.
Framkvæmdir við breytingar og viðhald á skólahúsnæði hafa gengið vel og hafa m.a verið gerðar breytingar innanhús í Garðaskóla til að rýma fleiri nemendur. Breytingarnar gera það að verkum að útihús við skólann nýtist til að mæta fjölgun nemenda í Flataskóla.
Þá kom fram að öll börn sem eru eins árs fyrir 1. september gefst kostur á leikskólavist á næsta skólaári.
Lögð fram tillaga um hækkun á gjaldskrá skólamálsverða í grunnskólum Garðabæjar þar sem gert er ráð fyrir hækkun á matargjaldi úr kr. 465 í kr. 474.
Bæjarráð vísar gjaldskránni til afgreiðslu bæjarstjórnar.
02
Tilkynning Jafnréttisstofu um landsfund jafnréttisnefnda á Akureyri í september 2016.
03
Tölvubréf frá kínverska sendiráðinu varðandi vinabæjartengsl og heimsókn sendinefndar frá Ganzhou, dags 26.07.16.
Bæjarráð getur eigi orðið við erindinu að þessu sinni.
04
Bréf Mennta- og menningarmálaráðuneytis v/eftirfylgni með úttekt Námsmatsstofnunar á Barnaskóla Hjallastefnunnar í Garðabæ, dags. 08.08.16.
Bæjarráð vísar bréfinu til afgreiðslu fræðslu- og menningarsviðs.
Fylgiskjöl
05
Bréf Bændasamtaka Íslands varðandi ályktanir Búnaðarþings 2016, dags. 09.08.16.
06
Bréf íbúa við Frjóakur varðandi breytingar á graseyjum í götunni, dags. 05.08.16.
Bæjarráð tekur undir sjónarmið í bréfi bæjarverkfræðings til íbúa um að frágangur götunnar er í samræmi við uppdrætti samkvæmt deiliskipulagi en tekur jákvætt í erindi um einstaka breytingar á vegum íbúa í samráði við tækni- og umhverfissvið.
Fylgiskjöl
07
Bréf mannauðsstjóra varðandi afgreiðslu á umsóknum um styrki til háskólanáms
Bæjarráð samþykkir að veita neðangreindum aðilum styrk í formi 10% afsláttar af vinnuskyldu vegna náms skólaárið 2016-2017.
Guðmunda Inga Gunnarsdóttir, kt. 150871-3449, deildarstjóri á leikskólanum Ökrum.
Jóhanna Beck Ingibjargardóttir, kt. 021281-5309, deildarstjóri á leikskólanum Ökrum.
Ragnhildur Gunnlaugsdóttir, kt. 270972-3579, aðstoðarleikskólastjóri á leikskólanum Ökrum.
Stefanía Ólöf Reynisdóttir, kt. 120371-3989, leiðbeinandi 1 í leikskólanum Ökrum.
Fylgiskjöl
08
Erindi umhverfisstjóra um framkvæmdaleyfi vegna endurheimtar votlendis við Kasthúsatjörn, dags. 09.06.16.
Bæjarráð samþykkir að veita leyfi vegna framkvæmda við endurheimt votlendis við Kasthúsatjörn sem eru í samræmi við áætlanir í deiliskipulagi sem samþykkt var á árinu 1988 og gildir fyrir svæðið.
Bæjarráð vísar málinu til áframhaldandi vinnslu á tækni- og umhverfissviði.
Fylgiskjöl
09
Þjónustustefna Garðabæjar 2016
Lögð fram og vísað til afgreiðslu bæjarstjórnar.
Fylgiskjöl
10
Bréf Ingvar Arnarsonar varðandi athugasemd við boðun varamanns á fundi bæjarstjórnar og bæjarráðs í júní, dags. 12.08.16.
Bæjarráð áréttar þá reglu sem kynnt var bæjarfulltrúum í upphafi kjörtímabils að í forföllum aðalmanna skulu þeir annast boðun varamanna í þeirri röð sem þeir hafa verið kosnir.
Bæjarráð telur að ágallar við boðun varamanns á fundi bæjarstjórnar og bæjarráðs í júní sl. gefi ekki tilefni að svo stöddu til breytinga á verklagi þeirrar reglu.
Fylgiskjöl
11
Bréf Velferðarvaktarinnar um hvatningu til sveitarstjórna um að leggja af kostnaðarþátttöku foreldra vegna ritfangakaupa, dags. 09.08.16.
Bæjarráð vísar bréfinu til fræðslu- og menningarsviðs.
Fylgiskjöl
12
Tölvubréf RÚV varðandi spurningakeppnin Útsvar - veturinn 2016-2017, dags. 11.08.16.
Bæjarráð fagnar boði um þátttöku í spurningakeppni Útsvars og staðfestir að Garðabær muni senda lið til keppninnar.
13
Dagskrá afmælishátíðar 3. september í tilefni af 40 ára kaupstaðarafmæli Garðabæjar.
Kynntar hugmyndir að dagskrá afmælishátíðar í miðbæ Garðabæjar 3. september nk. í tilefni af 40 ára kaupstaðarafmæli Garðabæjar.
14
Bréf Hjallastefnunnar um breytingu á núverandi leikskólaleyfi á Vífilsstöðum, dags. 11.08.16.
Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að veita Hjallastefnunni leyfi til að reka leikskóla á Vífilsstöðum fyrir eins til fimm ára börn. Bæjarstjóra falið að ganga frá samningi um skólabrag, innritun, gjaldtöku o.fl. sem lagður skal fyrir bæjarráð.