Gjaldskrá skólamálsverða í grunnskólum Garðabæjar.
Ferill máls
Bæjarstjórn Garðabæjar
01
11. (794). fundur
Guðrún Elín Herbertsdóttir, tók til máls.
María Grétarsdóttir tók til máls.
Sigríður Hulda Jónsdóttir, tók til máls
Bæjarstjórn samþykkir með átta atkvæðum nýja gjaldskrá skólamálsverða í grunnskólum og öðlast hún þegar gildi.
Guðrún Elín Herbertsdóttir, Baldur Ó. Svavarsson og Steinþór Einarsson sitja hjá við afgreiðslu málsins.
Bæjarráð Garðabæjar
02
31. (1748). fundur
Forstöðumaður fræðslu- og menningarsviðs gerði grein fyrir undirbúningi skólastarfs í leik- og grunnskólum á næsta skólaári. Fjöldi barna í grunnskólum er um 2.500 og hefur fjölgað um 50 frá síðasta ári. Fram kom að öllum sex ára börnum var gefinn kostur að hefja undirbúning fyrir skólastarf í tómstundaheimilum skólanna í viku fyrir skólabyrjun.
Framkvæmdir við breytingar og viðhald á skólahúsnæði hafa gengið vel og hafa m.a verið gerðar breytingar innanhús í Garðaskóla til að rýma fleiri nemendur. Breytingarnar gera það að verkum að útihús við skólann nýtist til að mæta fjölgun nemenda í Flataskóla.
Þá kom fram að öll börn sem eru eins árs fyrir 1. september gefst kostur á leikskólavist á næsta skólaári.
Lögð fram tillaga um hækkun á gjaldskrá skólamálsverða í grunnskólum Garðabæjar þar sem gert er ráð fyrir hækkun á matargjaldi úr kr. 465 í kr. 474.
Bæjarráð vísar gjaldskránni til afgreiðslu bæjarstjórnar.