11. (794). fundur
11. (794). fundur
Bæjarstjórn Garðabæjar
í Safnaðarheimilinu Kirkjuhvoli
18.08.2016
Kl. 17:00 - 18:30
Um fundinn
Nefndarmenn
- Gunnar Valur Gíslason - forseti bæjarstjórnar
- Sigríður Hulda Jónsdóttir - aðalmaður
- Áslaug Hulda Jónsdóttir - aðalmaður
- Sigurður Guðmundsson - aðalmaður
- Jóna Sæmundsdóttir - aðalmaður
- Sturla D Þorsteinsson - aðalmaður
- Almar Guðmundsson - aðalmaður
- Guðrún Elín Herbertsdóttir - aðalmaður
- Baldur Ólafur Svavarsson - varamaður
- María Grétarsdóttir - aðalmaður
- Steinþór Einarsson - aðalmaður
Starfsmenn
- Gunnar Einarsson - bæjarstjóri
Ritari
- Guðjón E. Friðriksson
Fundurinn er hljóðritaður.[line][line]Gunnar Valur Gíslason, forseti bæjarstjórnar setti fund og stjórnaði.[line][line]Forseti bauð bæjarfulltrúa velkomna til starfa að loknu sumarfríi og sérstaklega bauð hann velkominn Almar Guðmundsson bæjarfulltrúa sem kemur nú til starfa í bæjarstjórn eftir tveggja ára leyfi.[line][line]Fundargerð bæjarstjórnar frá 16. júní 2016 er lögð fram.[line][line]Guðrún Elín Herbertsdóttir, kvaddi sér hljóðs og ræddi hljóðupptökur af fundum bæjarstjórnar og lagði til að þær verði fyrr eða sem fyrst eftir fund aðgengilegar á vef bæjarins.[line]
Dagskrá
01
Fundargerð bæjarráðs frá 21/6 ´16.
Steinþór Einarsson ræddi 7. tl., stefnu Húsfélagsins að Löngulínu 2 á hendur bænum vegna vanrækslu við byggingareftirlit.
Gunnar Einarsson, bæjarstjóri ræddi sama mál
Fundargerðin sem er 8 tl. er samþykkt samhljóða.
02
Fundargerð bæjarráðs frá 24/6 ´16.
Fundargerðin sem er 2 tl. er samþykkt samhljóða.
03
Fundargerð bæjarráðs frá 28/6 ´16.
Fundargerðin sem er 8 tl. er samþykkt samhljóða.
04
Fundargerð bæjarráðs frá 5/7 ´16.
Steinþór Einarsson, ræddi 3. tl., niðurstöður í samkeppni um rammaskipulag Lyngássvæðisins og 14. tl., erindi Strætó varðandi leið 23.
Sigurður Guðmundsson, ræddi 3. tl., niðurstöður í samkeppni um rammaskipulag Lyngássvæðisins og 10. tl., tilkynningu Orkusjóðs um styrki til uppbyggingar á innviðum fyrir rafbíla.
Jóna Sæmundsdóttir, ræddi 10. tl., tilkynningu Orkusjóðs um styrki til uppbyggingar á innviðum fyrir rafbíla.
Gunnar Einarsson, bæjarstjóri ræddi 3. tl., niðurstöður í samkeppni um rammaskipulag Lyngássvæðisins og 14. tl., erindi Strætó varðandi leið 23.
Guðrún Elín Herbertsdóttir, ræddi 3. tl., niðurstöður í samkeppni um rammaskipulag Lyngássvæðisins.
Fundargerðin sem er 28 tl. er samþykkt samhljóða.
05
Fundargerð bæjarráðs frá 12/7 ´16.
Fundargerðin sem er 10 tl. er samþykkt samhljóða.
06
Fundargerð bæjarráðs frá 19/7 ´16.
Fundargerðin sem er 7 tl. er samþykkt samhljóða.
07
Fundargerð bæjarráðs frá 26/7 ´16.
Steinþór Einarsson ræddi 2. tl., áskorun til íbúa um hirðingu einkalóða og 4. tl., rekstur grenndargáma.
Jóna Sæmundsdóttir, ræddi 4. tl., rekstur grenndargáma.
Guðrún Elín Herbertsdóttir, ræddi 4. tl., rekstur grenndargáma.
María Grétarsdóttir, ræddi 2. tl., áskorun til íbúa um hirðingu lóða.
Fundargerðin sem er 4 tl. er samþykkt samhljóða.
08
Fundargerð bæjarráðs frá 9/8 ´16.
Gunnar Valur Gíslason, ræddi 8. tl., bréf Reykvískra lögmanna vegna úrskurðar kærunefndar útboðsmála þar sem fjallað var um samning Hafnarfjarðarbæjar um akstur fyrir fatlað fólk.
Steinþór Einarsson, ræddi sama mál og lagði til að teknar verði saman upplýsingar um stöðu kærumála og dómsmála hjá byggðasamlögunum.
Fundargerðin sem er 8 tl. er samþykkt samhljóða
09
Fundargerð bæjarráðs frá 16/8 ´16.
Steinþór Einarsson, ræddi 11. tl., bréf Velferðarvaktarinnar um hvatningu til sveitarstjórnar um að leggja af kostnaðarþátttöku foreldra vegna ritfangakaupa grunnskólabarna.
Sigríður Hulda Jónsdóttir, ræddi sama mál.
Sigurður Guðmundsson, ræddi 12. tl., erindi RÚV varðandi spurningakeppnina Útsvar.
Sturla Þorsteinsson, ræddi 10. tl., bréf Ingvars Arnarsonar varðandi athugasemd við boðun varamanns á fundi bæjarráðs og bæjarstjórnar í júní.
Fundargerðin sem er 14 tl. er samþykkt samhljóða.
9.14 - 1608204 - Bréf Hjallastefnunnar um breytingu á núverandi leikskólaleyfi á Vífilsstöðum, dags. 11.08.16.
Sigríður Hulda Jónsdóttir, ræddi 14. tl., bréf Hjallastefnunnar um leikskólaleyfi.
Bæjarstjórn samþykkir með 10 atkvæðum að veita Hjallastefnunni leyfi til að reka leikskóla á Vífilsstöðum fyrir eins til fimm ára börn. Bæjarstjóra er falið að ganga frá samningi um skólabrag, innritun, gjaldtöku o.fl. sem lagður skal fyrir bæjarráð.
Sturla Þorsteinsson, vék sæti við umræðu og afgreiðslu á ofangreindu máli.
Fylgiskjöl
12
Fundargerð skipulagsnefndar frá 30/6 ´16.
Steinþór Einarsson, ræddi 4. tl., deiliskipulag vegna breytinga á gatnamótum Hafnarfjarðarvegar og Vífilsstaðavegar.
Gunnar Einarsson, bæjarstjóri ræddi sama mál.
Steinþór Einarsson, tók til máls að nýju.
Gunnar Einarsson, bæjarstjóri tók til máls að nýju.
Gunnar Valur Gíslason, ræddi 22. tl., tillögu að deiliskipulagi byggðar við Bessastaðatjörn og benti á að samhliða verði skoðað að gera deiliskipulag fyrir norðurnesið.
Fundargerðin lögð fram.
14
Fundargerð umhverfisnefndar frá 10/8 ´16.
Guðrún Elín Herbertsdóttir, ræddi 1. tl., viðurkenningar fyrir snyrtilegt umhverfi.
Jóna Sæmundsdóttir, ræddi 5. tl., uppbyggingu ferðamannastaða og 7. tl., umhverfisvöktun 2016.
Fundargerðin lögð fram.
16
Fundargerðir stjórnar Strætó bs. frá 10/6, 24/6 og 8/7 ´16.
Gunnar Valur Gíslason ræddi 1. tl., fg. frá 8/7, leiðarkerfi og 2. tl., fg 8/7 dóma Héraðsdóms Reykjavíkur.
Guðrún Elín Herbertsdóttir ræddi 1. tl., frá fg. 8/7, leiðarkerfi.
Sigurður Guðmundsson, ræddi 1. tl., fg. frá 8/7, leiðarkerfi.
Fundargerðirnar lagðar fram.
17
Fundargerðir stjórnar SSH frá 20/6 og 1/7 ´16.
Sigurður Guðmundsson, ræddi 2. tl., fg. frá 1/7 framtíð almenningssamgagna á höfuðborgarsvæðinu og spurði um stöðu mála varðandi samstarfssamning um fluglestina.
Gunnar Einarsson, bæjarstjóri ræddi sama mál.
Fundargerðirnar lagðar fram.
18
Fundargerðir stjórnar Sorpu bs. frá 24/6 og 15/7 ´16.
Sturla Þorsteinsson, ræddi 3. tl., fg. frá 24/6 samráðsnefnd Sorpu og atvinnulífsins, 5. tl., fg. frá 24/6 framlengingu á samningi við Sorpstöð Suðurlands, 8. tl., fg. frá 24/6 breytingu á gjaldskrá og 1. tl., fg. 15/7 niðurstöðu samkeppnisviðræðna um gas- og jarðgerðarstöð.
Almar Guðmundsson, ræddi 1. tl., niðurstöðu samkeppnisviðræðna um gas- og jarðgerðarstöð og fjallaði almennt um útboðsmál og umfang í rekstri Sorpu.
Jóna Sæmundsdóttir, ræddi sama mál.
Steinþór Einarsson, ræddi sama mál.
Baldur Ó. Svavarsson, sama mál.
Sturla Þorsteinsson, tók til máls að nýju.
Gunnar Einarsson, ræddi sama mál.
Fundargerðirnar lagðar fram.
19
Fundargerðir svæðisskipulagsnefndar höfuðborgarsvæðisins frá 18/3 og 10/6 ´16.
Fundargerðirnar lagðar fram.
20
Gjaldskrá skólamálsverða í grunnskólum Garðabæjar.
Guðrún Elín Herbertsdóttir, tók til máls.
María Grétarsdóttir tók til máls.
Sigríður Hulda Jónsdóttir, tók til máls
Bæjarstjórn samþykkir með átta atkvæðum nýja gjaldskrá skólamálsverða í grunnskólum og öðlast hún þegar gildi.
Guðrún Elín Herbertsdóttir, Baldur Ó. Svavarsson og Steinþór Einarsson sitja hjá við afgreiðslu málsins.
21
Þjónustustefna Garðabæjar 2016.
Steinþór Einarsson, tók til máls.
Gunnar Einarsson, bæjarstjóri tók til máls.
Bæjarstjórn samþykkir þjónustustefnu Garðabæjar 2016.