Beint í efni

Afmælishátíð Garðabæjar og fleiri viðburðir á afmælisárinu

Málsnúmer 1506161

Ferill máls

Menningar- og safnanefnd Garðabæjar

01

17. fundur

Greint var frá dagskrá afmælishátíðar Garðabæjar sem verður haldin á Garðatorgi laugardaginn 3. september frá kl. 13.30-18. Hönnunarsafn Íslands og Bókasafn Garðabæjar taka þátt í dagskránni með ýmsu móti.

Einnig var sagt frá vel heppnuðum fræðslu- og sögugöngum á árinu, amk ein söguganga til viðbótar verður farin að hausti.
Framundan er samstarf við Gospelkór Jóns Vídalíns um tónleikahald fimmtudaginn 20. október nk. í tilefni af afmæli Garðabæjar og afmæli kórsins á árinu.

Bæjarráð Garðabæjar

02

33. (1750). fundur

Formaður bæjarráðs sem jafnframt er formaður afmælisnefndar kynnti dagskrá afmælishátíðar í tilefni af 40 ára kaupstaðarafmæli Garðabæjar sem haldin verður í nýjum miðbæ við Garðatorg laugardaginn 3. september nk.

Bæjarráð Garðabæjar

03

31. (1748). fundur

Kynntar hugmyndir að dagskrá afmælishátíðar í miðbæ Garðabæjar 3. september nk. í tilefni af 40 ára kaupstaðarafmæli Garðabæjar.

Menningar- og safnanefnd Garðabæjar

04

14. fundur

Fyrirhugað er að halda veglega afmælishátíð í miðbæ Garðabæjar í september nk. í tilefni af 40 ára kaupstaðarafmæli Garðabæjar á yfirstandandi ári.
Umfjöllun um afmæli bæjarins var birt í sérstöku átta síðna afmælisblaði sem var hluti af Garðapóstinum sem kom út um miðjan febrúar sl. Á árinu 2016 er gert ráð fyrir frekari umfjöllun með þeim hætti í Garðapóstinum.
Upplýsinga- og menningarfulltrúi greindi frá hugmynd um samstarf við Gospelkór Jóns Vídalín, t.d. þannig að bærinn styðji við Gospelhátíð í Garðabæ þar sem kórinn verði í aðalhlutverki. Kórinn heldur á þessu ári upp á 10 ára starfsafmæli sitt. Upplýsinga- og menningarfulltrúa var falið að ræða við forsvarsmenn kórsins til að kanna nánar hvort og með hvaða hætti hægt sé að halda slíka hátíð í haust.

Menningar- og safnanefnd Garðabæjar

05

13. fundur

Umræðu haldið áfram frá síðustu fundum um viðburði á afmælisári Garðabæjar. Rætt var með hvaða hætti fastir viðburðir á vegum menningar- og safnanefndar verða hluti af afmælisdagskránni. Sagt var frá tillögu sem var samþykkt á fundi bæjarstjórnar í byrjun janúar sl. um að kynna hina fornu leið, Fógetastíg í Gálgahrauni, í tilefni af 40 ára kaupstaðarafmæli bæjarins.
Rætt var um að skoða hvort hægt sé að bjóða því unga listafólki sem fær úthlutað verkefnastyrk úr Hvatningarsjóði ungra listamanna í ár tækifæri til að koma fram á fyrirhugaðri afmælishátíð í sumar og/eða á öðrum listviðburðum afmælisársins

Bæjarráð Garðabæjar

06

29. (1697). fundur

Bæjarráð samþykkir breytingu á skipun nefndarinnar þannig að í stað bæjarstjóra komi formaður íþrótta- og tómstundaráðs. Nefndina skipa:

Áslaug Hulda Jónsdóttir, formaður bæjarráðs, sem jafnframt er formaður nefndarinnar.
Gunnar Valur Gíslason, formaður safna- og menningarmálanefndar.
Björg Fenger, formaður íþrótta- og tómstundaráðs.
Baldur Ó. Svavarsson, tilnefndur af Æ-lista, Bjartrar framtíðar.
Hafdís Bára Kristmundsdóttir, tilnefnd af S-lista, Samfylkingarinnar og óháðra.
Bjartur Máni Sigurðsson, tilnefndur af M-lista, Fólksins í bænum.

Fylgiskjöl

Bæjarráð Garðabæjar

08

24. (1692). fundur

Afgreiðslu frestað.

Bæjarstjórn Garðabæjar

09

10. fundur

Áslaug Hulda Jónsdóttir, kvaddi sér hljóðs og lagði fram eftirfarandi tillögu.Bæjarstjórn Garðabæjar samþykkir að skipa nefnd í tilefni af 40 ára kaupstaðarafmæli Garðabæjar á árinu 2016. Nefndina skulu skipa formaður bæjarráðs, sem jafnframt er formaður nefndarinnar, bæjarstjóri, formaður menningar- og safnanefndar og þrír fulltrúar tilnefndir af minnihluta bæjarstjórnar. Atkvæði formanns skal hafa aukið vægi ef atkvæði falla jafnt.Tilnefningar á fulltrúum minnihluta skulu liggja fyrir á næsta fundi bæjarráðs ásamt drögum að erindisbréfi fyrir nefndina.Greinargerð:Á fundi hreppsnefndar Garðahrepps sem haldinn var 6. nóvember 1975 samþykkti þáverandi hreppsnefnd að óska eftir því við þingmenn Reykjaneskjördæmis að lagt verði fram frumvarp til laga um kaupstaðarréttindi fyrir sveitarfélagið. Samþykktinni var fylgt eftir með bréfi, dags. 12. nóvember 1975. Frumvarp til laga var lagt fram á Alþingi daginn eftir eða 13. nóvember 1975 og var Ólafur G. Einarsson, flutningsmaður þess. Frumvarpið varð síðan afgreitt sem lög frá Alþingi 12. desember 1975 og hafði þá farið bæði fyrir neðri og efri deild þingsins. Lögin tóku gildi 1. janúar 1976.Í upphafi árs 2016 verða því liðinn 40 ár frá því Garðabær varð sérstakur kaupstaður og þykir ástæða til að minnast þess með viðeigandi viðburðum á árinu 2016.Hlutverk afmælisnefndarinnar er að gera tillögur til bæjarráðs um einstaka viðburði og dagskrá hátíðarhalda. Við samþykkt fjárhagsáætlunar fyrir árið 2016 skal tryggð hæfileg fjárveiting til að standa undir viðburðum að þessu tilefni.
Framkomin tillaga samþykkt samhljóða.