24. (1692). fundur
24. (1692). fundur
Bæjarráð Garðabæjar
í fundarsal bæjarráðs í Ráðhúsi Garðabæjar við Garðatorg
23.06.2015
Kl. 08:00 - 10:00
Um fundinn
Nefndarmenn
- Áslaug Hulda Jónsdóttir - formaður
- Sigurður Guðmundsson - aðalmaður
- Sturla D Þorsteinsson - aðalmaður
- Halldór Jörgen Jörgensson - aðalmaður
- María Grétarsdóttir - aðalmaður
- Steinþór Einarsson - áheyrnarfulltrúi
- Guðjón Erling Friðriksson - bæjarritari
- Margrét Björk Svavarsdóttir - forstöðumaður fræðslu- og menningarsviðs
Ritari
- Guðjón E. Friðriksson,
Dagskrá
01
Bréf Hestamannafélagsins Sóta varðandi byggingu reiðgerðis, dags. 08.06.2015.
02
Tilkynning frá Þjóðskrá Íslands um fasteignamat 2016, dags. 02.06.2015.
03
Bréf fjölskylduráðs varðandi endurskoðun framkvæmdaráætlunar á sviði barnaverndar, dags. 16.06.2015.
Bæjarráð samþykkir tillögu fjölskylduráðs um framkvæmdaáætlun Garðabæjar í barnaverndarmálum kjörtímabilið 2014 - 2018, sbr. ákvæði 9. gr. barnaverndarlaga nr. 80/2002.
Fylgiskjöl
04
Bréf Lex, lögmannsstofu varðandi framlengingu fyrningarfrests í máli Akrakots, dags. 10.06.2015.
Lagt fram bréfs Lex, lögmannsstofu, dags. 10. júní sl., varðandi fyrningarfrest á meintri fjárkröfu eigenda Akrakots vegna skipulagsbreytinga á Álftanesi. $line$Í september 2008 höfðuðu eigendur Akrakots skaðabótamál á hendur Sveitarfélaginu Álftanesi en málið var fellt niður af þeirra hálfu í nóvember 2012 af réttarfarsástæðum. Áttu eigendur Akrakots þess kost skv. 11. gr. laga nr. 14/1905 um fyrningu skulda o.fl., sbr. 22. gr. laga nr. 150/2007 um fyrningu kröfuréttinda, að höfða nýtt mál innan 6 mánaða þannig að fyrningarrof á grundvelli fyrri málshöfðunar stæði. $line$Bótaskylda af hálfu sveitarfélagsins hefur ekki verið viðurkennd, en aðilar hafa átt í viðræðum um breytingar á umræddu skipulagi. Með vísan til framangreinds lýsir Garðabær því yfir að hann samþykki að bera ekki fyrir sig fyrningu á þeim grundvelli að nýtt mál hafi ekki verið höfðað innan greinds 6 mánaða frests. Er þetta háð því að slíkt mál verði höfðað eigi síðar en 31. desember 2016. $line$Áréttað er að í þessu felst hins vegar ekki nokkurs konar viðurkenning á bótaskyldu eða að fallið sé frá nokkrum þeim málsástæðum sem byggt var á í tilvísuðu dómsmáli er höfðað var árið 2008 og fellt niður árið 2012, m.a. þess efnis að meint krafa hafi þá verið fyrnd.
Fylgiskjöl
05
Tilkynning frá Sambandi íslenskra sveitarfélaga í tilefni af 70 ára afmæli sambandsins.
06
Bréf kennara við Tónlistarskóla Garðabæjar varðandi skerðingu á sumarlaunum vegna verkfalls, dags. 08.06.2015.
Lagt fram bréf kennara við Tónlistarskóla Garðabæjar þar sem farið er fram á endurskoðun á þeirri samþykkt bæjarráðs frá fundi 26. maí sl. um skerðingu á sumarhluta launa tónlistarskólakennara vegna verkfalls haustið 2014.$line$$line$Bæjarráð vísar málinu til bæjarstjóra.
Fylgiskjöl
07
Tilnefning fulltrúa í afmælisnefnd í tilefni af 40 ára kaupstaðarafmæli Garðabæjar á árinu 2016.
Afgreiðslu frestað.
08
Umsókn um byggingarleyfi - Brúarflöt 9, dags. 18.06.2015.
Bæjarráð samþykkir afgreiðslu byggingarfulltrúa á byggingarleyfi vegna viðbyggingar og breytinga á einbýlishúsinu við Brúarflöt 9.
Fylgiskjöl
09
Útboð skólamálsverða í Sjálandsskóla
Forstöðumaður fræðslu- og menningarsviðs upplýsti um að ekkert tilboð hafi borist í útboði á skólamálsverðum í Sjálandsskóla.$line$$line$Bæjarráð vísar málinu til nánari skoðunar bæjarstjóra.