Beint í efni

Bréf kennara við Tónlistarskóla Garðabæjar varðandi skerðingu á sumarlaunum vegna verkfalls, dags. 08.06.2015.

Málsnúmer 1501137

Ferill máls

Bæjarráð Garðabæjar

01

28. (1696). fundur

Bæjarráð samþykkir að horft verði til þess að kennarar við Tónlistarskóla Garðabæjar lögðu á sig aukavinnu í kjölfar verkfalls, sem unnin var utan reglubundins vinnutíma, til að tryggja árangur nemenda og gera þeim kleift að ljúka námi á viðkomandi önn með fullnægjandi hætti.

Bæjarráð tekur undir sjónarmið tónlistarkennara um að sanngjarnt sé að virða trúmennsku þeirra við nemendur og starfsemi skólans með því að meta ofangreint vinnuframlag þeirra.

Bæjarráð felur bæjarstjóra afgreiðslu og úrlausn málsins.

Fylgiskjöl

Bæjarráð Garðabæjar

02

24. (1692). fundur

Lagt fram bréf kennara við Tónlistarskóla Garðabæjar þar sem farið er fram á endurskoðun á þeirri samþykkt bæjarráðs frá fundi 26. maí sl. um skerðingu á sumarhluta launa tónlistarskólakennara vegna verkfalls haustið 2014.$line$$line$Bæjarráð vísar málinu til bæjarstjóra.

Fylgiskjöl

Bæjarráð Garðabæjar

03

20. (1688). fundur

Lögð fram tilkynning frá kjarasviði Sambands íslenskra sveitarfélaga um skerðingu á sumarhluta launa tónlistarkennara vegna verkfalls haustið 2014. $line$$line$Bæjarráð samþykkir skerðingu sumarhluta launa tónlistarkennara á þann hátt sem lagt er til samkvæmt ofangreindri tilkynningu.

Fylgiskjöl