Beint í efni

Bréf Lex, lögmannsstofu varðandi framlengingu fyrningarfrests í máli Akrakots, dags. 10.06.2015.

Málsnúmer 1506169

Ferill máls

Bæjarráð Garðabæjar

01

24. (1692). fundur

Lagt fram bréfs Lex, lögmannsstofu, dags. 10. júní sl., varðandi fyrningarfrest á meintri fjárkröfu eigenda Akrakots vegna skipulagsbreytinga á Álftanesi. $line$Í september 2008 höfðuðu eigendur Akrakots skaðabótamál á hendur Sveitarfélaginu Álftanesi en málið var fellt niður af þeirra hálfu í nóvember 2012 af réttarfarsástæðum. Áttu eigendur Akrakots þess kost skv. 11. gr. laga nr. 14/1905 um fyrningu skulda o.fl., sbr. 22. gr. laga nr. 150/2007 um fyrningu kröfuréttinda, að höfða nýtt mál innan 6 mánaða þannig að fyrningarrof á grundvelli fyrri málshöfðunar stæði. $line$Bótaskylda af hálfu sveitarfélagsins hefur ekki verið viðurkennd, en aðilar hafa átt í viðræðum um breytingar á umræddu skipulagi. Með vísan til framangreinds lýsir Garðabær því yfir að hann samþykki að bera ekki fyrir sig fyrningu á þeim grundvelli að nýtt mál hafi ekki verið höfðað innan greinds 6 mánaða frests. Er þetta háð því að slíkt mál verði höfðað eigi síðar en 31. desember 2016. $line$Áréttað er að í þessu felst hins vegar ekki nokkurs konar viðurkenning á bótaskyldu eða að fallið sé frá nokkrum þeim málsástæðum sem byggt var á í tilvísuðu dómsmáli er höfðað var árið 2008 og fellt niður árið 2012, m.a. þess efnis að meint krafa hafi þá verið fyrnd.

Fylgiskjöl