Beint í efni

14. fundur

26.02.2016
Menningar- og safnanefnd Garðabæjar

14. fundur

Menningar- og safnanefnd Garðabæjar

í turnherbergi 3. hæð á bæjarskrifstofunum við Garðatorg

26.02.2016

Kl. 08:15 - 10:00

Um fundinn

Nefndarmenn

  • Gunnar Valur Gíslason - formaður
  • Torfi Geir Símonarson - aðalmaður
  • Steinunn Vala Sigfúsdóttir - varamaður
  • Sigríður Finnbjörnsdóttir - aðalmaður
  • Erling Jóhannesson - aðalmaður

Starfsmenn

  • Hulda Hauksdóttir - upplýsinga- og menningarfulltrúi

Ritari

  • Hulda Hauksdóttir

Dagskrá

Málsnúmer 1510223

01

Íbúakönnun - þjónustukönnun 2015

Lögð var fram til kynningar könnun Capacent sem var gerð haustið 2015 á ánægju íbúa með þjónustu sveitarfélaga landsins og samanburð milli sveitarfélaga ásamt breytingum frá fyrri mælingum.

Farið var yfir helstu þætti könnunarinnar.

Fylgiskjöl

Málsnúmer 1506161

02

40 ára kaupstaðarafmæli Garðabæjar á árinu 2016

Fyrirhugað er að halda veglega afmælishátíð í miðbæ Garðabæjar í september nk. í tilefni af 40 ára kaupstaðarafmæli Garðabæjar á yfirstandandi ári.

Umfjöllun um afmæli bæjarins var birt í sérstöku átta síðna afmælisblaði sem var hluti af Garðapóstinum sem kom út um miðjan febrúar sl. Á árinu 2016 er gert ráð fyrir frekari umfjöllun með þeim hætti í Garðapóstinum.

Upplýsinga- og menningarfulltrúi greindi frá hugmynd um samstarf við Gospelkór Jóns Vídalín, t.d. þannig að bærinn styðji við Gospelhátíð í Garðabæ þar sem kórinn verði í aðalhlutverki. Kórinn heldur á þessu ári upp á 10 ára starfsafmæli sitt. Upplýsinga- og menningarfulltrúa var falið að ræða við forsvarsmenn kórsins til að kanna nánar hvort og með hvaða hætti hægt sé að halda slíka hátíð í haust.

Málsnúmer 1505136

03

Stefnumótun stjórnar Hönnunarsafns Íslands 2015-2019

Umræðu haldið áfram frá síðasta fundi.

Í framhaldi af umræðu á síðasta fundi átti formaður menningar- og safnanefndar fund með formanni stjórnar Hönnunarsafnsins og forstöðumanni fræðslu- og menningarsviðs Garðabæjar um stefnumótunina.

Margrét Björk Svavarsdóttir, forstöðumaður fræðslu- og menningarsviðs, mætti til fundar við menningar- og safnanefnd, gerði grein fyrir vinnu stjórnar Hönnunarsafnsins við stefnumótunina og fór yfir markmið stjórnarinnar til ársins 2019 og helstu þætti greinargerðar með stefnumótuninni.

Menningar- og safnanefnd lýsir yfir ánægju sinni með fyrirliggjandi stefnumótun stjórnar Hönnunarsafns Íslands til ársins 2019.

Fylgiskjöl

Málsnúmer 1601427

04

Fræðslu- og sögugöngur 2016

Farið nánar yfir dagsetningar á vorönn og staðfestar fræðslu- og sögugöngur í samstarfi menningar- og safnanefndar, umhverfisnefndar og Bókasafns Garðabæjar.

Upplýsinga- og menningarfulltrúi kynnti dagsetningar á fyrirhuguðum fræðslu- og sögugöngum vorsins. Göngurnar eru samstarfsverkefni umhverfisnefndar, menningar- og safnanefndar og Bókasafns Garðabæjar. Fyrirhugaðir göngudagar að vori eru: 8. mars, 12. apríl og 10. maí.

Fleiri göngur eru á dagskrá með haustinu.

Málsnúmer 1601412

05

Þriðjudagsklassík 2016

Farið yfir dagskrá á ný og hugmyndir að breytingum.

Eftir viðræður upplýsinga- og menningarfulltrúa við Ingibjörgu Guðjónsdóttur, listrænan stjórnanda tónleikaraðarinnar Þriðjudagsklassík 2016 liggur fyrir hugmynd stjórnandans um að hafa tvenna tónleika í tónleikaröðinni Þriðjudagsklassík á vorönn og aftur tvenna tónleika í tónleikaröðinni á haustönn, þar af aðra tónleikana á svipuðum tíma og afmælishátíð Garðabæjar verður haldin í haust.

Áfram verður unnið að dagskrá tónleikaraðarinnar og verður dagskráin kynnt nefndarmönnum þegar hún liggur fyrir.

Menningar- og safnanefnd leggur áherslu á að um viðburði sem öðlast hafa fastan sess í menningarlífi bæjarins verði gerður samstarfssamningur til lengri tíma. Með hliðsjón af því leggur nefndin til að leitað verði samninga við Ingibjörgu Guðjónsdóttur, listrænan stjórnanda, um samstarf varðandi tónleikaröðina Þriðjudagsklassík til lengri tíma, t.d. næstu þriggja ára.

Málsnúmer 1601410

06

Jazzhátíð Garðabæjar 2016

Sigurður Flosason, tónlistarmaður og listrænn stjórnandi jazzhátíðar Garðabæjar 2016 er um þessar mundir að vinna drög að dagskrá jazzhátíðarinnar en hugmyndin er að vera með undirliggjandi heimstónlistarþema að þessu sinni.

Jazzhátíðin hefst að kvöldi til sumardaginn fyrsta og fyrirhugaðir eru a.m.k. þrennir kvöldtónleikar en einnig tónleikar að degi til laugardaginn 23. apríl.

Áfram verður unnið að dagskrá hátíðarinnar og verður dagskráin kynnt nefndarmönnum þegar hún liggur fyrir.

Menningar- og safnanefnd leggur áherslu á að um viðburði sem öðlast hafa fastan sess í menningarlífi bæjarins verði gerður samstarfssamningur til lengri tíma. Með hliðsjón af því leggur nefndin til að leitað verði samninga við Sigurð Flosason, listrænan stjórnanda, um samstarf varðandi Jazzhátíð Garðabæjar til lengri tíma, t.d. næstu þriggja ára.

Málsnúmer 1508359

07

Styrkir til menningarmála, auglýsing að vori

Menningar- og safnanefnd samþykkir að fela upplýsinga-og menningarfulltrúa að auglýsa eftir umsóknum um styrki til verkefna og viðburða á sviði lista og menningarmála í Garðabæ og hvetja íbúa til að koma hugmyndum sínum á framfæri við menningar- og safnanefnd.

Listamenn eða menningarviðburðir skulu tengjast Garðabæ. Í umsókn skal skilgreina verkefni og kostnaðaráætlun skal fylgja með. Tilgreina þarf ósk um styrkupphæð.

Mælst er til að umsækjendur kynni afraksturinn fyrir menningar- og safnanefnd og/eða bæjarbúum.

Málsnúmer 1508356

08

Listadagar barna og ungmenna 2016

Upplýsinga- og menningarfulltrúi greindi frá undirbúningi við Listadaga barna og ungmenna sem verða haldnir í lok apríl, eða nánar tiltekið frá 21. apríl til 1. maí 2016.

Bókasafn Garðabæjar efnir m.a.til teiknimyndasögusamkeppni í tilefni af Listadögunum og í tilefni af 40 ára kaupstaðarafmæli Garðabæjar í ár er þemað „Garðabær eftir 40 ár“. Keppt verður í tveimur flokkum, annars vegar nemendur í 8.-10. bekk og hins vegar í flokki fullorðinna (16 ára og eldri með lögheimili í Garðabæ og nemendur í Fjölbrautaskóla Garðabæjar). Tilkynnt verður um úrslit á Listadögunum og sett verður upp sýning í Bókasafninu á Garðatorgi.

Málsnúmer 1602409

09

Bæjarlistamaður 2016

Farið yfir reglur, auglýsing að vori

Farið var yfir gildandi reglur um bæjarlistamann Garðabæjar. Samþykkt að fela upplýsinga- og menningarfulltrúa að auglýsa eftir ábendingum um bæjarlistamann Garðabæjar í mars og verður farið yfir ábendingar á fundi nefndarinnar í apríl.

Málsnúmer 1601395

10

Styrkbeiðni vegna ferðar til Dublin

Umsókn Álftaneskórsins, dags. 13. janúar 2016 um styrk vegna tónleikaferðar. Bæjarráð Garðabæjar vísar bréfinu til umfjöllunar menningar- og safnanefndar.

Bréf Álftaneskórsins, dags. 13. janúar sl., um styrk vegna tónleikaferðar tekið fyrir. Bæjarráð Garðabæjar vísaði bréfinu til umfjöllunar menningar- og safnanefndar.

Samkvæmt fyrirliggjandi vinnureglum veitir menningar- og safnanefnd að jafnaði ekki ferðastyrki. Nefndin telur hins vegar mikilvægt að hlúð sé að kórastarfsemi í bænum og samþykkir að veita Álftaneskórnum styrk að fjárhæð 100.000 kr. vegna vortónleika sem verða haldnir í Bessastaðakirkju um miðjan maí nk. til undirbúnings fyrir tónleikaferðalag kórsins.

Fylgiskjöl

Málsnúmer 1602407

11

Umsókn um styrk vegna útgáfu ljósmyndabókar

Umsókn Báru Kristinsdóttur ljósmyndara, dags. í febrúar, um styrk vegna útgáfu ljósmyndabókar.

Umsókn Báru Kristinsdóttur ljósmyndara, dags. í febrúar 2016, um styrk vegna útgáfu ljósmyndabókar var tekið fyrir. Upplýsinga- og menningarfulltrúi greindi frá fundi með umsækjanda og sagði nánar frá verkefninu.

Vísað til áframhaldandi umræðu á næsta fundi.

Fylgiskjöl