Beint í efni

Listadagar barna og ungmenna 2016

Málsnúmer 1508356

Ferill máls

Menningar- og safnanefnd Garðabæjar

01

15. fundur

Listadagar barna og ungmenna hefjast í næstu viku og standa frá 21. apríl til 1. maí nk. Bæklingur með dagskrá listadaganna verður dreift í hús í upphafi listadaganna og einnig verður öll dagskrá kynnt á vef Garðabæjar. Fjölbreytt dagskrá verður í boði í skólum bæjarins, söfnum og fleiri stöðum. Landsmót Samtaka íslenskra skólalúðrasveita verður haldið í Garðabæ dagana 29. apríl til 1. maí og landsmótinu lýkur með stórtónleikum í íþróttamiðstöðinni Ásgarði.

Menningar- og safnanefnd Garðabæjar

02

14. fundur

Upplýsinga- og menningarfulltrúi greindi frá undirbúningi við Listadaga barna og ungmenna sem verða haldnir í lok apríl, eða nánar tiltekið frá 21. apríl til 1. maí 2016.
Bókasafn Garðabæjar efnir m.a.til teiknimyndasögusamkeppni í tilefni af Listadögunum og í tilefni af 40 ára kaupstaðarafmæli Garðabæjar í ár er þemað „Garðabær eftir 40 ár“. Keppt verður í tveimur flokkum, annars vegar nemendur í 8.-10. bekk og hins vegar í flokki fullorðinna (16 ára og eldri með lögheimili í Garðabæ og nemendur í Fjölbrautaskóla Garðabæjar). Tilkynnt verður um úrslit á Listadögunum og sett verður upp sýning í Bókasafninu á Garðatorgi.

Menningar- og safnanefnd Garðabæjar

03

13. fundur

Sagt frá vinnu við undirbúning Listadaga barna og ungmenna sem verða haldnir síðustu vikuna í apríl eða frá og með Sumardeginum fyrsta 21. apríl til sunnudagsins 1. maí 2016.

Listadagar barna og ungmenna verða haldnir í sjötta sinn dagana 21. apríl - 1. maí nk. Undirbúningsfundir með tengiliðum leikskóla, grunnskóla og Tónlistarskóla eru farnir af stað. Þema Listadaganna í ár er Vorvindar glaðir og á sama tíma í lok apríl verður landsmót íslenskra skólalúðrasveita haldið í Garðabæ.
Upplýsinga- og menningarfulltrúi sagði frá ýmsum hugmyndum sem eru í vinnslu í tengslum við dagskrá listadaganna.

Menningar- og safnanefnd Garðabæjar

04

10. fundur

Upplýsinga- og menningarfulltrúi greindi frá fyrirhuguðum undirbúningi vegna listadaga barna og ungmenna sem verða haldnir vorið 2016. Fyrstu listadagar barna og ungmenna voru haldnir árið 2003 og frá árinu 2006 hafa listadagarnir verið haldnir á tveggja ára fresti með þátttöku allra skóla í bænum. Rætt var um tengingar við listastofnanir og listamenn.