Beint í efni

15. fundur

15.04.2016
Menningar- og safnanefnd Garðabæjar

15. fundur

Menningar- og safnanefnd Garðabæjar

í turnherbergi 3. hæð á bæjarskrifstofunum við Garðatorg

15.04.2016

Kl. 08:15 - 09:30

Um fundinn

Nefndarmenn

  • Gunnar Valur Gíslason - formaður
  • Torfi Geir Símonarson - aðalmaður
  • Steinunn Vala Sigfúsdóttir - varamaður
  • Sigríður Finnbjörnsdóttir - aðalmaður
  • Erling Jóhannesson - aðalmaður

Starfsmenn

  • Hulda Hauksdóttir - upplýsinga- og menningarfulltrúi

Ritari

  • Hulda Hauksdóttir

Dagskrá

Málsnúmer 1508356

01

Listadagar barna og ungmenna 2016

Listadagar barna og ungmenna hefjast í næstu viku og standa frá 21. apríl til 1. maí nk. Bæklingur með dagskrá listadaganna verður dreift í hús í upphafi listadaganna og einnig verður öll dagskrá kynnt á vef Garðabæjar. Fjölbreytt dagskrá verður í boði í skólum bæjarins, söfnum og fleiri stöðum. Landsmót Samtaka íslenskra skólalúðrasveita verður haldið í Garðabæ dagana 29. apríl til 1. maí og landsmótinu lýkur með stórtónleikum í íþróttamiðstöðinni Ásgarði.

Málsnúmer 1601410

02

Jazzhátíð Garðabæjar 2016

Jazzhátíð Garðabæjar er nú haldin í ellefta sinn og að þessu sinni með upphaf að kvöldi til miðvikudaginn 20. apríl með tónleikum fimm ungra hljómsveita úr Tónlistarskóla Garðabæjar. Undirþema jazzhátíðarinnar í ár er tengsl jazz við heimstónlist. Allir kvöldtónleikar fara fram í safnaðarheimili Vídalínskirkju en auk þess verða tónleikar að degi til á laugardegi í félagsmiðstöðinni Jónshúsi og Haukshúsi á Álftanesi.

Dagskránni verður dreift með dreifibréfi í hús um helgina og einnig kynnt á vef Garðabæjar.

Fylgiskjöl

Málsnúmer 1601412

03

Þriðjudagsklassík 2016

Í ár verða haldnir tvennir tónleikar á vorönn dagana 26. apríl og 31. maí en einnig er stefnt að tónleikum í september í tengslum við afmælisár Garðabæjar. Kynntir voru fyrirhugaðir tónleikar á vorönn.

Fylgiskjöl

Málsnúmer 1601424

04

Hvatningarsjóður ungra listamanna 2016

Auglýst var eftir umsóknum um styrki úr Hvatningarsjóði fyrir unga listamenn í mars sl. og var umsóknarfrestur til 12. apríl 2016. Fyrirliggjandi umsóknir voru lagðar fram og ræddar. Umræðu verður haldið áfram á næsta fundi menningar- og safnanefndar 13. maí nk.

Málsnúmer 1602409

05

Bæjarlistamaður 2016

Auglýst var eftir ábendingum um tilnefningu til bæjarlistamanns Garðabæjar 2016 í mars og var frestur auglýstur til 12. apríl 2016. Listi með framkomnum ábendingum var lagður fram og ræddur.

Umræður voru um tilnefningar til bæjarlistamanns Garðabæjar. Málið verður aftur á dagskrá næsta fundar menningar- og safnanefndar 13. maí nk.



Málsnúmer 1604151

06

Minjagöngur og fræðsla um Krók

Erindi frá Rúnu K. Tetschner, dags. 12. apríl 2016, um möguleika til að efla starfsemina í Króki lagt fram. Umræður voru um málið og upplýsinga- og menningarfulltrúa falið að ræða við bréfritara um hugmyndir er fram koma í bréfinu og mögulegar útfærslur á hluta þeirra í sumar. Umræðu verður haldið áfram á næsta fundi nefndarinnar í maí.

Fylgiskjöl

Málsnúmer 1604150

07

Kynning á Bókasafni Garðabæjar

Margrét Sigurgeirsdóttir forstöðumaður Bókasafns Garðabæjar mætir á fundinn.

Margrét Sigurgeirsdóttir, forstöðumaður Bókasafns Garðabæjar, var gestur fundarins undir þessum lið. Margrét tók við starfi forstöðumanns safnsins sl. haust og kynnti starfsemi safnsins í vetur og hugmyndir um framtíðarstarf og hlutverk safnsins.

Umræður voru um starfsemi bókasafnsins. Margréti var þökkuð greinargóð kynning á safninu.