Aðventuopnun í Króki
Ferill máls
Menningar- og safnanefnd Garðabæjar
01
18. fundur
Stefnt er að því að hafa opið hús í Króki fyrsta sunnudag í aðventu.
Sérstök barnadagskrá var í Króki 11. september sl. en þá var boðið upp á leiðsögn fyrir börn og listasmiðju. Góð þátttaka var í dagskránni.
Stefnt er að því að hafa sérstaka aðventuopnun í Króki sunnudaginn 27. nóvember nk. Þá verður opið hús milli 13 og 17 með leiðsögn á staðnum og ratleikjum fyrir börn sem hafa verið sérútbúnir fyrir Krók.
Menningar- og safnanefnd Garðabæjar
02
16. fundur
Áframhald umræðu frá síðasta fundi um erindi Rúnu K. Tetschner um möguleika til að efla starfsemina í Króki. Upplýsinga- og menningarfulltrúi greindi frá hugmynd um að fá Elínu Vilmundardóttur til að segja frá lífinu í Króki í tengslum við eina sunnudagsopnun í júní. Einnig að farið verði í eina minjagöngu og leiðsögn ætlaða börnum í lok júní /byrjun júlí og meta hvernig til tekst. Skoða möguleika á því að láta útbúa fræðsluefni fyrir börn til að hafa á staðnum í Króki í tengslum við minjagöngu og barnaleiðsögn, t.d. í formi ratleiks. Aðrir þættir er fram koma í erindinu verða skoðaðir með haustinu og við gerð fjárhagsáætlunar næsta árs.
Fylgiskjöl
Menningar- og safnanefnd Garðabæjar
03
15. fundur
Erindi frá Rúnu K. Tetschner, dags. 12. apríl 2016, um möguleika til að efla starfsemina í Króki lagt fram. Umræður voru um málið og upplýsinga- og menningarfulltrúa falið að ræða við bréfritara um hugmyndir er fram koma í bréfinu og mögulegar útfærslur á hluta þeirra í sumar. Umræðu verður haldið áfram á næsta fundi nefndarinnar í maí.