Beint í efni

16. fundur

13.05.2016
Menningar- og safnanefnd Garðabæjar

16. fundur

Menningar- og safnanefnd Garðabæjar

í turnherbergi 3. hæð á bæjarskrifstofunum við Garðatorg

13.05.2016

Kl. 08:15 - 09:45

Um fundinn

Nefndarmenn

  • Gunnar Valur Gíslason - formaður
  • Torfi Geir Símonarson - aðalmaður
  • Steinunn Vala Sigfúsdóttir - varamaður
  • Sigríður Finnbjörnsdóttir - aðalmaður
  • Erling Jóhannesson - aðalmaður

Starfsmenn

  • Hulda Hauksdóttir - upplýsinga- og menningarfulltrúi

Ritari

  • Hulda Hauksdóttir

Dagskrá

Málsnúmer 1605097

01

Samstarfssamningur við Grósku

Greint var frá fundi formanns og upplýsinga- og menningarfulltrúa með forsvarsmönnum Grósku þar sem farið var yfir starfsemi Grósku og það sem framundan er hjá félaginu. Garðabær hefur verið með samstarfssamning við félagið undanfarin ár og Gróska óskar eftir áframhaldandi samstarfi við bæinn.

Menningar- og safnanefnd leggur til við bæjarráð að samið verði að nýju við Grósku um samstarf til næstu þriggja ára og að undirritun fari fram á menningaruppskeruhátíð 26. maí nk. Nýr samstarfssamningur verður lagður fyrir bæjarráð til samþykktar.

Málsnúmer 1602409

02

Bæjarlistamaður 2016

Framhald umræðu frá síðasta fundi.

Menningar- og safnanefnd samþykkir að leggja til við bæjarráð Garðabæjar að einn listamaður verði útnefndur bæjarlistamaður Garðabæjar í ár. Nefndin leggur til að útnefningin á bæjarlistamanni Garðabæjar verði tilkynnt með formlegum hætti á menningaruppskeruhátíð á Garðaholti 26. maí nk. og fer þess jafnframt á leit við alla þá sem að málinu koma að nafni viðkomandi listamanns verði haldið leyndu þangað til.

Málsnúmer 1601424

03

Hvatningarsjóður ungra listamanna 2016

Umræðu frá síðasta fundi haldið áfram. Fyrirliggjandi umsóknir, sem sendar voru nefndarmönnum með fundarboði, voru lagðar fram og ræddar.

Samþykkt að veita eftirtöldum aðilum styrk úr Hvatningarsjóði ungra listamanna 2016 sem munu jafnframt fá afhent viðurkenningarskjal þar um á uppskeruhátíð menningar og lista þann 26. maí nk.:

Hljómsveitin Hórmónar, (meðlimir: Hjalti Torfason kt. 171095-2639, Brynhildur Karlsdóttir kt. 140694-3639, Örn Gauti Jóhannsson kt. 240295-2299, Urður Bergsdóttir kt. 040395-3269, Katrín Guðbjartsdóttir kt. 180595-3689), styrk samtals að upphæð 250 000 kr, fyrir vinnu við útgáfu á plötu og tónleikahaldi.

Gospelkór Jóns Vídalín, kt. 570169-5649, styrk að upphæð 250 000 kr, fyrir frumsýningu á söngleik.

Málsnúmer 1602408

04

Menningaruppskeruhátíð 2016

Menningaruppskeruhátíð verður haldin fimmtudaginn 26. maí kl. 17:30 í samkomuhúsinu á Garðaholti. Farið var yfir fyrstu drög að dagskrá fyrir hátíðina. Umræður voru um sérstakar viðurkenningar til framlags menningar og lista.

Málsnúmer 1602407

05

Umsókn um styrk vegna útgáfu ljósmyndabókar

Erindi Báru Kristinsdóttur ljósmyndara, dags í febrúar 2016, tekið fyrir á ný.

Menningar- og safnanefnd samþykkir að styrkja verkefnið um 400 000 kr og mælist til þess að verkið og útkoma bókarinnar verði kynnt í Garðabæ, t.d. í samstarfi við Bókasafn Garðabæjar.

Fylgiskjöl

Málsnúmer 1605116

06

Umsókn um styrk vegna tónleikaraðar kennara úr Tónlistarskóla Garðabæjar 2016-2017

Erindi Guðrúnar Dalíu Salómonsdóttur, f.h. kennara úr Tónlistarskóla Garðabæjar, móttekið í maí 2016, um styrk vegna tónleikaraðar tekið fyrir.

Menningar- og safnanefnd samþykkir að styrkja tónleikaröðina að hausti 2016 um upphæð 350 000 kr. og tekur jákvætt í að leggja til sömu fjárhæð næstu vorönn við gerð fjárhagsáætlunar 2017.

Fylgiskjöl

Málsnúmer 1604151

07

Minjagöngur og fræðsla um Krók

Áframhald umræðu frá síðasta fundi um erindi Rúnu K. Tetschner um möguleika til að efla starfsemina í Króki. Upplýsinga- og menningarfulltrúi greindi frá hugmynd um að fá Elínu Vilmundardóttur til að segja frá lífinu í Króki í tengslum við eina sunnudagsopnun í júní. Einnig að farið verði í eina minjagöngu og leiðsögn ætlaða börnum í lok júní /byrjun júlí og meta hvernig til tekst. Skoða möguleika á því að láta útbúa fræðsluefni fyrir börn til að hafa á staðnum í Króki í tengslum við minjagöngu og barnaleiðsögn, t.d. í formi ratleiks. Aðrir þættir er fram koma í erindinu verða skoðaðir með haustinu og við gerð fjárhagsáætlunar næsta árs.

Fylgiskjöl