Beint í efni

Endurnýjun samstarfssamnings við Grósku.

Málsnúmer 1605097

Ferill máls

Bæjarráð Garðabæjar

01

19. (1736). fundur

Menningar- og safnanefnd Garðabæjar

02

16. fundur

Greint var frá fundi formanns og upplýsinga- og menningarfulltrúa með forsvarsmönnum Grósku þar sem farið var yfir starfsemi Grósku og það sem framundan er hjá félaginu. Garðabær hefur verið með samstarfssamning við félagið undanfarin ár og Gróska óskar eftir áframhaldandi samstarfi við bæinn.

Menningar- og safnanefnd leggur til við bæjarráð að samið verði að nýju við Grósku um samstarf til næstu þriggja ára og að undirritun fari fram á menningaruppskeruhátíð 26. maí nk. Nýr samstarfssamningur verður lagður fyrir bæjarráð til samþykktar.