Jazzhátíð Garðabæjar 2016
Ferill máls
Menningar- og safnanefnd Garðabæjar
01
15. fundur
Jazzhátíð Garðabæjar er nú haldin í ellefta sinn og að þessu sinni með upphaf að kvöldi til miðvikudaginn 20. apríl með tónleikum fimm ungra hljómsveita úr Tónlistarskóla Garðabæjar. Undirþema jazzhátíðarinnar í ár er tengsl jazz við heimstónlist. Allir kvöldtónleikar fara fram í safnaðarheimili Vídalínskirkju en auk þess verða tónleikar að degi til á laugardegi í félagsmiðstöðinni Jónshúsi og Haukshúsi á Álftanesi.
Dagskránni verður dreift með dreifibréfi í hús um helgina og einnig kynnt á vef Garðabæjar.
Fylgiskjöl
Menningar- og safnanefnd Garðabæjar
02
14. fundur
Sigurður Flosason, tónlistarmaður og listrænn stjórnandi jazzhátíðar Garðabæjar 2016 er um þessar mundir að vinna drög að dagskrá jazzhátíðarinnar en hugmyndin er að vera með undirliggjandi heimstónlistarþema að þessu sinni.
Jazzhátíðin hefst að kvöldi til sumardaginn fyrsta og fyrirhugaðir eru a.m.k. þrennir kvöldtónleikar en einnig tónleikar að degi til laugardaginn 23. apríl.
Áfram verður unnið að dagskrá hátíðarinnar og verður dagskráin kynnt nefndarmönnum þegar hún liggur fyrir.
Menningar- og safnanefnd leggur áherslu á að um viðburði sem öðlast hafa fastan sess í menningarlífi bæjarins verði gerður samstarfssamningur til lengri tíma. Með hliðsjón af því leggur nefndin til að leitað verði samninga við Sigurð Flosason, listrænan stjórnanda, um samstarf varðandi Jazzhátíð Garðabæjar til lengri tíma, t.d. næstu þriggja ára.
Menningar- og safnanefnd Garðabæjar
03
13. fundur
Fyrstu hugmyndir að dagskrá fyrir Jazzhátíðina 2016 kynntar. Dagsetningar 21.-23. apríl nk.
Jazzhátíð Garðabæjar heldur upp á 10 ára afmæli sitt í vor. Sigurður Flosason sér um listræna stjórnun. Upplýsinga- og menningarfulltrúi greindi var frá fyrstu hugmyndum um dagskrá á hátíðinni. Hátíðin hefst að venju að kvöldi til Sumardaginn fyrsta, þann 21. apríl nk. og stendur til 23. eða 24. apríl.
Áfram verður unnið að dagskrá og umræðu haldið áfram á næsta fundi.