13. fundur
13. fundur
Menningar- og safnanefnd Garðabæjar
í turnherbergi 3. hæð á bæjarskrifstofunum við Garðatorg
22.01.2016
Kl. 08:15 - 10:00
Um fundinn
Nefndarmenn
- Gunnar Valur Gíslason - formaður
- Steinunn Vala Sigfúsdóttir - varamaður
- Sigrún Lilja Guðbjartsdóttir - aðalmaður
- Sigríður Finnbjörnsdóttir - aðalmaður
- Erling Jóhannesson - aðalmaður
Starfsmenn
- Hulda Hauksdóttir - upplýsinga- og menningarfulltrúi
Ritari
- Hulda Hauksdóttir
Dagskrá
Málsnúmer 1508359
01
Starfsáætlun menningar- og safnanefndar
Farið var yfir starfsáætlun menningar- og safnanefndar fyrir árið 2016 og fyrirhugaða fundi nefndarinnar á árinu.
Málsnúmer 1506161
02
40 ára kaupstaðarafmæli Garðabæjar á árinu 2016
Umræðu haldið áfram frá síðustu fundum um viðburði á afmælisári Garðabæjar. Rætt var með hvaða hætti fastir viðburðir á vegum menningar- og safnanefndar verða hluti af afmælisdagskránni. Sagt var frá tillögu sem var samþykkt á fundi bæjarstjórnar í byrjun janúar sl. um að kynna hina fornu leið, Fógetastíg í Gálgahrauni, í tilefni af 40 ára kaupstaðarafmæli bæjarins.
Rætt var um að skoða hvort hægt sé að bjóða því unga listafólki sem fær úthlutað verkefnastyrk úr Hvatningarsjóði ungra listamanna í ár tækifæri til að koma fram á fyrirhugaðri afmælishátíð í sumar og/eða á öðrum listviðburðum afmælisársins
Málsnúmer 1505136
03
Stefnumótun stjórnar Hönnunarsafns Íslands 2015-2019
Stefnumótun stjórnar Hönnunarsafns Íslands 2015-2019 var tekin fyrir í bæjarráði 12. janúar sl. og vísað til umfjöllunar menningar- og safnanefndar.
Stefnumótun stjórnar Hönnunarsafns Íslands 2015-2019 var tekin fyrir í bæjarráði Garðabæjar 12. janúar sl. og vísað til umfjöllunar í menningar- og safnanefnd.
Stefnumótunin var lögð fram til kynningar. Formaður mun funda með formanni stjórnar Hönnunarsafnsins um stefnumótunina. Málið verður áfram til umræðu á næsta fundi.
Málsnúmer 1601427
04
Fræðslu- og sögugöngur 2016
Samstarf menningar- og safnanefndar, umhverfisnefndar og Bókasafns Garðabæjar um fræðslu- og sögugöngur á árinu 2016.
Umhverfisnefnd hefur árlega staðið fyrir fræðslugöngum að vori og hausti og einnig hefur Bókasafn Garðabæjar í samstarfi við menningar- og safnanefnd staðið fyrir árlegum sögugöngum að vori undanfarin ár. Greint var frá hugmynd um frekara samstarf og fjölgun gangna á þessu ári í tilefni af afmæli bæjarins.
Unnið verður áfram að undirbúningi þessa máls í samstarfi við umhverfisnefnd og Bókasafn Garðabæjar.
Málsnúmer 1512023
05
Vetrarhátíð - safnanótt og sundlauganótt 2016
Farið yfir dagskrá í Garðabæ á Safnanótt föstudaginn 5. febrúar nk. og Sundlauganótt laugardaginn 6. febrúar nk.
Safnanótt verður haldin föstudagskvöldið 5. febrúar nk. og Sundlauganótt laugardagskvöldið 6. febrúar. Söfnum og sundlaugum á höfuðborgarsvæðinu er boðin þátttaka í þessum viðburðum sem eru hluti af Vetrarhátíð. Upplýsinga- og menningarfulltrúi greindi frá dagskrá í Bókasafni Garðabæjar á Garðatorgi og á Álftanesi, Hönnunarsafni Íslands og Króki á Garðaholti á Safnanótt. Álftaneslaug verður með í Sundlauganótt og þar verður dagskrá með svipuðu sniði og í fyrra.
Rætt var um kynningarmál og miðlun á samfélagsmiðlum frá viðburðum kvöldsins og öðrum viðburðum á vegum bæjarins. Mikilvægt er að skoða nánar með hvaða hætti Garðabær getur nýtt sér samfélagsmiðlana til að segja frá viðburðum um leið og þeir eiga sér stað og ná þannig til fleira fólks á öllum aldri.
Málsnúmer 1508356
06
Listadagar barna og ungmenna 2016
Sagt frá vinnu við undirbúning Listadaga barna og ungmenna sem verða haldnir síðustu vikuna í apríl eða frá og með Sumardeginum fyrsta 21. apríl til sunnudagsins 1. maí 2016.
Listadagar barna og ungmenna verða haldnir í sjötta sinn dagana 21. apríl - 1. maí nk. Undirbúningsfundir með tengiliðum leikskóla, grunnskóla og Tónlistarskóla eru farnir af stað. Þema Listadaganna í ár er Vorvindar glaðir og á sama tíma í lok apríl verður landsmót íslenskra skólalúðrasveita haldið í Garðabæ.
Upplýsinga- og menningarfulltrúi sagði frá ýmsum hugmyndum sem eru í vinnslu í tengslum við dagskrá listadaganna.
Málsnúmer 1601410
07
Jazzhátíð Garðabæjar 2016
Fyrstu hugmyndir að dagskrá fyrir Jazzhátíðina 2016 kynntar. Dagsetningar 21.-23. apríl nk.
Jazzhátíð Garðabæjar heldur upp á 10 ára afmæli sitt í vor. Sigurður Flosason sér um listræna stjórnun. Upplýsinga- og menningarfulltrúi greindi var frá fyrstu hugmyndum um dagskrá á hátíðinni. Hátíðin hefst að venju að kvöldi til Sumardaginn fyrsta, þann 21. apríl nk. og stendur til 23. eða 24. apríl.
Áfram verður unnið að dagskrá og umræðu haldið áfram á næsta fundi.
Málsnúmer 1601412
08
Þriðjudagsklassík 2016
Drög að dagskrá fyrir tónleikaröðina Þriðjudagsklassík á vorönn.
Drög að dagskrá fyrir tónleikaröðina Þriðjudagsklassík 2016 var lögð fram. Tónleikarnir hefjast í mars og standa fram í maí og mögulega júní í sal Tónlistarskóla Garðabæjar. Rætt var um hvernig til tókst í fyrra og um fyrirkomulag tónleikanna.
Einnig var sagt frá fyrirhugaðri Góugleði Kvennakórs Garðabæjar sem áformað er að halda í mars nk. Þá ætlar kórinn m.a. að flytja verk eftir núverandi bæjarlistamann, tónskáldið Karólínu Eiríksdóttur.
Málsnúmer 1601424
09
Hvatningarsjóður ungra listamanna 2016
Farið yfir reglur um Hvatningarsjóð ungra listamanna, auglýsing.
Farið var yfir reglur um Hvatningarsjóð ungra listamanna. Fyrirhugað er að auglýsa eftir umsóknum nú á vorönn eins og fyrri ár.
Málsnúmer 1601420
10
Styrkumsókn vegna tískusýningar nemenda við FG vorið 2015
Styrkbeiðni frá nemendum í lokaáfanga fata- og textílhönnunarbrautar Fjölbrautaskólans í Garðabæ vegna tískustýningar vorið 2016, dags. 7. janúar 2016.
Lagt var fram erindi, dags. 7. janúar 2016, frá kennslustjóra á fata-og textílhönnunarbraut Fjölbrautaskólans í Garðabæ, f.h. nemenda, um styrk vegna lokasýningar nemenda.
Umræður voru um styrkveitingar til lokasýninga nemenda í FG almennt og skoðað verður hvernig megi koma þeim í samræmdan farveg.
Menningar- og safnanefnd samþykkir að veita fjárstyrk að fjárhæð kr. 100.000 til að standa straum af kostnaði við sýninguna.