Styrkumsókn vegna tískusýningar nemenda við FG vorið 2015
Málsnúmer 1601420
Ferill máls
Menningar- og safnanefnd Garðabæjar
01
13. fundur
Styrkbeiðni frá nemendum í lokaáfanga fata- og textílhönnunarbrautar Fjölbrautaskólans í Garðabæ vegna tískustýningar vorið 2016, dags. 7. janúar 2016.
Lagt var fram erindi, dags. 7. janúar 2016, frá kennslustjóra á fata-og textílhönnunarbraut Fjölbrautaskólans í Garðabæ, f.h. nemenda, um styrk vegna lokasýningar nemenda.
Umræður voru um styrkveitingar til lokasýninga nemenda í FG almennt og skoðað verður hvernig megi koma þeim í samræmdan farveg.
Menningar- og safnanefnd samþykkir að veita fjárstyrk að fjárhæð kr. 100.000 til að standa straum af kostnaði við sýninguna.