Vetrarhátíð - safnanótt og sundlauganótt 2016
Ferill máls
Menningar- og safnanefnd Garðabæjar
01
13. fundur
Farið yfir dagskrá í Garðabæ á Safnanótt föstudaginn 5. febrúar nk. og Sundlauganótt laugardaginn 6. febrúar nk.
Safnanótt verður haldin föstudagskvöldið 5. febrúar nk. og Sundlauganótt laugardagskvöldið 6. febrúar. Söfnum og sundlaugum á höfuðborgarsvæðinu er boðin þátttaka í þessum viðburðum sem eru hluti af Vetrarhátíð. Upplýsinga- og menningarfulltrúi greindi frá dagskrá í Bókasafni Garðabæjar á Garðatorgi og á Álftanesi, Hönnunarsafni Íslands og Króki á Garðaholti á Safnanótt. Álftaneslaug verður með í Sundlauganótt og þar verður dagskrá með svipuðu sniði og í fyrra.
Rætt var um kynningarmál og miðlun á samfélagsmiðlum frá viðburðum kvöldsins og öðrum viðburðum á vegum bæjarins. Mikilvægt er að skoða nánar með hvaða hætti Garðabær getur nýtt sér samfélagsmiðlana til að segja frá viðburðum um leið og þeir eiga sér stað og ná þannig til fleira fólks á öllum aldri.
Menningar- og safnanefnd Garðabæjar
02
12. fundur
Safnanótt og sundlauganótt eru hluti af Vetrarhátíð sem verður haldin dagana 4.-7. febrúar 2016. Safnanótt verður haldin föstudagskvöldið 5. febrúar og sundlauganótt laugardagskvöldið 6. febrúar. Garðabær hefur verið þátttakandi í Safnanótt frá árinu 2010 þegar söfnum á öllu höfuðborgarsvæðinu bauðst að vera með. Vel hefur tekist til með dagskrána á söfnum í Garðabæ á Safnanótt undanfarin ár og hugmyndavinna að dagskrá næstu Safnanætur er hafin. Sundlaugum á öllu höfuðborgarsvæðinu býðst núna að vera með í Sundlauganótt og Álftaneslaug hefur verið með síðustu tvö ár og góð aðsókn hefur verið í laugina á þessu kvöldi.