Beint í efni

12. fundur

04.12.2015
Menningar- og safnanefnd Garðabæjar

12. fundur

Menningar- og safnanefnd Garðabæjar

í turnherbergi 3. hæð á bæjarskrifstofunum við Garðatorg

04.12.2015

Kl. 08:15 - 09:45

Um fundinn

Nefndarmenn

  • Gunnar Valur Gíslason - formaður
  • Torfi Geir Símonarson - aðalmaður
  • Sigrún Lilja Guðbjartsdóttir - aðalmaður
  • Sigríður Finnbjörnsdóttir - aðalmaður
  • Erling Jóhannesson - aðalmaður

Starfsmenn

  • Hulda Hauksdóttir - upplýsinga- og menningarfulltrúi

Ritari

  • Hulda Hauksdóttir

Dagskrá

Málsnúmer 1503196

01

Fjárhagsáætlun Garðabæjar fyrir árið 2016 (2017-2019)

Lúðvík Hjalti Jónsson fjármálastjóri mætti á fundinn og fór yfir forsendur og helstu tölur i fjárhagsáætlun Garðabæjar fyrir árið 2016 (2017-2019). Síðari umræða um fjárhagsáætlun fór fram á fundi bæjarstjórnar 3. desember sl. þar sem áætlunin var samþykkt.

Málsnúmer 1510080

02

Umsóknir um vinnuaðstöðu í Króki veturinn 2015-2016

Samþykkt var að eftirtaldir listamenn/fræðimenn fái afnot af vinnuaðstöðunni í Króki:

Guðrún Dóra Brynjólfsdóttir, kt. 160975-5049, til heimilis að Vesturtúni 31, Garðabæ, tímabilið 13. nóvember - 4. janúar 2016. Verkefni: Ritgerðarskrif í skipulagsfræði, um hvernig nýta megi aðgerðaráætlun í aðalskipulagi þegar kemur að því að skipuleggja ferðaþjónustu í sveitarfélagi.

Bergur Þór Ingólfsson, kr. 060169-4899, til heimilis að Tunguvegi 62, Reykjavík, tímabilið: 1. maí - 30. júní. Verkefni: Handritaskrif að kvikmyndinni Horn á höfði.

Áður var búið að úthluta tímabili í Króki frá febrúar fram í apríl 2016.

Málsnúmer 1508357

03

Tónlistarveisla í skammdeginu 2015

Farið yfir hvernig tókst til.

Tónleikar undir yfirskriftinni Tónlistarveisla í skammdeginu voru haldnir á Garðatorgi fimmtudagskvöldið 12. nóvember sl. Sigríður Thorlacius og hljómsveitin Hjaltalín steig á svið og fjölmenni var mætt á torgið til að njóta tónlistarinnar. Eins og undanfarin ár var myndlistarfélagið Gróska með samsýningu í Gróskusalnum á Garðatorgi þetta sama kvöld og ýmsar verslanir voru með opið hús.

Farið var yfir hvernig til tókst.

Málsnúmer 1512023

04

Vetrarhátíð - safnanótt og sundlauganótt 2016

Safnanótt og sundlauganótt eru hluti af Vetrarhátíð sem verður haldin dagana 4.-7. febrúar 2016. Safnanótt verður haldin föstudagskvöldið 5. febrúar og sundlauganótt laugardagskvöldið 6. febrúar. Garðabær hefur verið þátttakandi í Safnanótt frá árinu 2010 þegar söfnum á öllu höfuðborgarsvæðinu bauðst að vera með. Vel hefur tekist til með dagskrána á söfnum í Garðabæ á Safnanótt undanfarin ár og hugmyndavinna að dagskrá næstu Safnanætur er hafin. Sundlaugum á öllu höfuðborgarsvæðinu býðst núna að vera með í Sundlauganótt og Álftaneslaug hefur verið með síðustu tvö ár og góð aðsókn hefur verið í laugina á þessu kvöldi.

Málsnúmer 1508359

05

Verkefni veturinn 2015-2016

Áframhald umræðu frá síðasta fundi um viðburði í tengslum við afmælisár Garðabæjar, ýmsa fasta viðburði s.s. Þriðjudagsklassík og Jazzhátíð Garðabæjar.

Starfsáætlun nefndarinnar fyrir árið 2016 lögð fram og rædd.

Umræðu frá síðasta fundi haldið áfram, m.a. um viðburði í tengslum við afmælisár Garðabæjar og ýmsa aðra fasta viðburði á vegum menningar- og safnanefndar.

Málsnúmer 1509191

06

Beiðni 23 Frames um styrk vegna framleiðslu kvikmyndar.

Bréf Guðfinns Ýmis Harðarsonar framleiðanda, f.h. 23 Frames, dags. 12. september 2015, um styrk vegna framleiðslu kvikmyndar tekið fyrir.

Menningar- og safnanefnd getur ekki orðið við erindinu.

Fylgiskjöl

Málsnúmer 1510221

07

Styrkbeiðni vegna tónleika í Garðakirkju í desember 2015

Bréf Camerartica, dags. 15. október 2015, um styrk vegna tónleikahalds í Garðakirkju mánudaginn 21. desember nk. tekið fyrir.

Menningar- og safnanefnd samþykkir að veita kammerhópnum Camerarctica styrk að upphæð 150 000 kr vegna tónleikanna.

Fylgiskjöl

Málsnúmer 1510222

08

Ósk um endurnýjun samstarfssamnings milli Kvennakórs Garðabæjar og Garðabæjar

Bréf Kvennakórs Garðabæjar, dags. 19.10.15, um endurnýjun samstarfssamnings milli kórsins og Garðabæjar tekið fyrir. Bæjarráð Garðabæjar tók bréfið fyrir á fundi sínum 27. október sl. og vísaði því til umfjöllunar menningar- og safnanefndar.

Menningar- og safnefnd tekur jákvætt í erindið og mælir með því að gerður verði samstarfssamningur við kórinn til þriggja ára frá 2016-2018.

Fylgiskjöl

Málsnúmer 1501381

09

Opinn fundur menningar- og safnanefndar

Áframhald umræðu frá síðasta fundi þar sem farið var yfir samantekt með flokkuðum niðurstöðum frá opnum fundi menningar- og safnanefndar sl. vor.

Kynnt voru drög að formi um vegvísi um menningarmál í Garðabæ. Umræðu verður framhaldið á næsta fundi nefndarinnar.

Málsnúmer 1508359

10

Önnur mál

Menningar- og safnanefnd færir félagsmiðstöðvunum Klakanum í Sjálandsskóla og Garðalundi í Garðaskóla hamingjuóskir með frábæran árangur í Hönnunarkeppni Samfés, Stíl 2015, sem fór fram í Hörpu síðustu helgina í nóvember. Lið frá félagsmiðstöðinni Klakanum í Sjálandsskóla sigraði í keppninni og lið úr Garðalundi í Garðaskóla lenti í þriðja sæti auk þess að fá verðlaun fyrir bestu förðunina.