Beint í efni

Tónlistarveisla í skammdeginu 2015

Málsnúmer 1508357

Ferill máls

Menningar- og safnanefnd Garðabæjar

01

12. fundur

Farið yfir hvernig tókst til.

Tónleikar undir yfirskriftinni Tónlistarveisla í skammdeginu voru haldnir á Garðatorgi fimmtudagskvöldið 12. nóvember sl. Sigríður Thorlacius og hljómsveitin Hjaltalín steig á svið og fjölmenni var mætt á torgið til að njóta tónlistarinnar. Eins og undanfarin ár var myndlistarfélagið Gróska með samsýningu í Gróskusalnum á Garðatorgi þetta sama kvöld og ýmsar verslanir voru með opið hús.
Farið var yfir hvernig til tókst.

Menningar- og safnanefnd Garðabæjar

02

11. fundur

Farið var yfir mögulega dagsetningu, tónlistaratriði og drög að kostnaði við Tónlistarveislu í skammdeginu 2015. Stefnt er að því að halda Tónlistarveisluna í ár fimmtudaginn 12. nóvember nk. á Garðatorgi. Rætt var um flytjendur og mun endanleg niðurstaða um flytjendur liggja fyrir á næstu dögum. Upplýsinga- og menningarfulltrúi mun halda nefndinni upplýstri um málið eftir því sem málinu vindur fram.
Gróska, samtök myndlistarmanna og áhugafólks um myndlist í Garðabæ, ætlar sama kvöld eins og fyrri ár að vera með sýningu á verkum sínum í Gróskusalnum á Garðatorgi fyrir gesti og gangandi.

Menningar- og safnanefnd Garðabæjar

03

10. fundur

Farið var yfir mögulegar dagsetningar fyrir Tónlistarveislu í skammdeginu sem hefur farið fram á Garðatorgi í nóvember undanfarin ár. Einnig var rætt um hugsanlega umgjörð og flytjendur.

Upplýsinga- og menningarfulltrúa var falið að vinna áfram að verkefninu.