11. fundur
11. fundur
Menningar- og safnanefnd Garðabæjar
í Tónlistarskóla Garðabæjar, Kirkjulundi
09.10.2015
Kl. 08:15 - 08:15
Um fundinn
Nefndarmenn
- Gunnar Valur Gíslason - formaður
- Torfi Geir Símonarson - aðalmaður
- Sigrún Lilja Guðbjartsdóttir - aðalmaður
- Sigríður Finnbjörnsdóttir - aðalmaður
- Þóroddur Bjarnason - varamaður
Starfsmenn
- Hulda Hauksdóttir - upplýsinga- og menningarfulltrúi
Ritari
- Hulda Hauksdóttir
Dagskrá
Málsnúmer 1510080
01
Umsóknir um vinnuaðstöðu í Króki veturinn 2015-2016
Samþykkt að leggja til við bæjarstjórn að eftirtalinn listamaður fái afnot af vinnuaðstöðunni í Króki:
Álfheiður Ólafsdóttir, kt. 220263-5689, grafískur hönnuður, til heimilis að Keilufelli 41, Rvk, tímabilið 1. febrúar - 30. apríl 2016.
Verkefni listamanns: Ritun og myndskreyting barnabókar.
Laus tímabil í Króki verða auglýst áfram.
Málsnúmer 1509231
02
Beiðni um styrk vegna uppsetningar söngleiks vor 2016
Fyrir fundinum lá erindi, dags. 16.09.2015, frá leikfélaginu Verðandi í Fjölbrautaskólanum í Garðabæ þar sem óskað er eftir fjárhagslegum styrk til uppsetningar söngleiks á vorönn 2016.
Menningar- og safnanefnd tekur jákvætt í erindið og verður útfærsla á styrkveitingu skoðuð nánar þegar fjárhagsáætlun 2016 liggur fyrir í lok árs.
Samþykkt að upplýsinga- og menningarfulltrúi afli nánari upplýsinga um uppsetningu leikverksins / söngleiksins frá umsækjanda þegar þær liggja fyrir.
Málsnúmer 1508357
03
Tónlistarveisla í skammdeginu 2015
Farið var yfir mögulega dagsetningu, tónlistaratriði og drög að kostnaði við Tónlistarveislu í skammdeginu 2015. Stefnt er að því að halda Tónlistarveisluna í ár fimmtudaginn 12. nóvember nk. á Garðatorgi. Rætt var um flytjendur og mun endanleg niðurstaða um flytjendur liggja fyrir á næstu dögum. Upplýsinga- og menningarfulltrúi mun halda nefndinni upplýstri um málið eftir því sem málinu vindur fram.
Gróska, samtök myndlistarmanna og áhugafólks um myndlist í Garðabæ, ætlar sama kvöld eins og fyrri ár að vera með sýningu á verkum sínum í Gróskusalnum á Garðatorgi fyrir gesti og gangandi.
Málsnúmer 1508359
04
Fjárhagsáætlun 2016
Formaður greindi frá umræðu á fyrstu fundum afmælisnefndar sem hefur það hlutverk að gera tillögur til bæjarráðs Garðabæjar um einstaka viðburði og dagskrá hátíðarhalda í tilefni af 40 ára kaupstaðarafmæli Garðabæjar árið 2016. Rætt var um menningarviðburði sem menningarnefnd og aðrir standa að á næsta ári og hvernig væri hægt að tengja þá afmælisárinu.
Fyrir lá minnisblað formanns og upplýsinga- og menningarfulltrúa „Fjárhagsáætlun 2016 - Forsendur, 40 ára kaupstaðarafmæli Garðabæjar 2016“, dags. 08.10.2016, með samantekt á hefðbundnum viðburðum á vegum menningar- og safnanefndar, öðrum hugsanlegum viðburðum sem tengjast menningarstarfsemi og sem tengja mætti afmæli bæjarins á árinu 2016 og ýmsum menningarlegum tímamótum og afmælum stofnana og félagasamtaka í bænum á afmælisárinu.
Í minnisblaðinu er lagt upp með að meginþema menningarviðburða á næsta ári tengist 40 ára kaupstaðarafmæli bæjarins. Hugmyndin er sú að í tilefni afmælisins verði meðal annars föstum menningarviðburðum gert hátt undir höfði á árinu 2016.
Málsnúmer 1501381
05
Niðurstöður af opnum fundi um menningarmál
Áframhald umræðu frá síðasta fundi um niðurstöður af opnum fundi um menningarmál sl. vor.
Fyrir fundinum lá samantekt upplýsinga- og menningarfulltrúa, dags. 08.10.2015, þar sem niðurstöður opna fundarins hafa verið flokkaðar enn frekar og stillt upp í meginflokka.
Umræður voru um samantektina, farið var yfir helstu áherslur sem þar koma fram og hvernig skal haldið áfram.
Nefndin mun fjalla áfram um málið á næsta fundi.
Málsnúmer 1510082
06
Kynning á Tónlistarskóla Garðabæjar
Laufey Ólafsdóttir, skólastjóri Tónlistarskóla Garðabæjar, sagði frá starfsemi skólans og leiddi fundarmenn um húsakynni skólans að Kirkjulundi.