Beiðni um styrk vegna uppsetningar söngleiks vor 2016
Málsnúmer 1509231
Ferill máls
Menningar- og safnanefnd Garðabæjar
01
11. fundur
Fyrir fundinum lá erindi, dags. 16.09.2015, frá leikfélaginu Verðandi í Fjölbrautaskólanum í Garðabæ þar sem óskað er eftir fjárhagslegum styrk til uppsetningar söngleiks á vorönn 2016.
Menningar- og safnanefnd tekur jákvætt í erindið og verður útfærsla á styrkveitingu skoðuð nánar þegar fjárhagsáætlun 2016 liggur fyrir í lok árs.
Samþykkt að upplýsinga- og menningarfulltrúi afli nánari upplýsinga um uppsetningu leikverksins / söngleiksins frá umsækjanda þegar þær liggja fyrir.