Styrkir til menningarmála, auglýsing að vori
Ferill máls
Menningar- og safnanefnd Garðabæjar
01
14. fundur
Menningar- og safnanefnd samþykkir að fela upplýsinga-og menningarfulltrúa að auglýsa eftir umsóknum um styrki til verkefna og viðburða á sviði lista og menningarmála í Garðabæ og hvetja íbúa til að koma hugmyndum sínum á framfæri við menningar- og safnanefnd.
Listamenn eða menningarviðburðir skulu tengjast Garðabæ. Í umsókn skal skilgreina verkefni og kostnaðaráætlun skal fylgja með. Tilgreina þarf ósk um styrkupphæð.
Mælst er til að umsækjendur kynni afraksturinn fyrir menningar- og safnanefnd og/eða bæjarbúum.
Menningar- og safnanefnd Garðabæjar
02
13. fundur
Farið var yfir starfsáætlun menningar- og safnanefndar fyrir árið 2016 og fyrirhugaða fundi nefndarinnar á árinu.
Menningar- og safnanefnd Garðabæjar
03
12. fundur
Menningar- og safnanefnd færir félagsmiðstöðvunum Klakanum í Sjálandsskóla og Garðalundi í Garðaskóla hamingjuóskir með frábæran árangur í Hönnunarkeppni Samfés, Stíl 2015, sem fór fram í Hörpu síðustu helgina í nóvember. Lið frá félagsmiðstöðinni Klakanum í Sjálandsskóla sigraði í keppninni og lið úr Garðalundi í Garðaskóla lenti í þriðja sæti auk þess að fá verðlaun fyrir bestu förðunina.
Menningar- og safnanefnd Garðabæjar
04
12. fundur
Áframhald umræðu frá síðasta fundi um viðburði í tengslum við afmælisár Garðabæjar, ýmsa fasta viðburði s.s. Þriðjudagsklassík og Jazzhátíð Garðabæjar.
Starfsáætlun nefndarinnar fyrir árið 2016 lögð fram og rædd.
Umræðu frá síðasta fundi haldið áfram, m.a. um viðburði í tengslum við afmælisár Garðabæjar og ýmsa aðra fasta viðburði á vegum menningar- og safnanefndar.
Menningar- og safnanefnd Garðabæjar
05
11. fundur
Formaður greindi frá umræðu á fyrstu fundum afmælisnefndar sem hefur það hlutverk að gera tillögur til bæjarráðs Garðabæjar um einstaka viðburði og dagskrá hátíðarhalda í tilefni af 40 ára kaupstaðarafmæli Garðabæjar árið 2016. Rætt var um menningarviðburði sem menningarnefnd og aðrir standa að á næsta ári og hvernig væri hægt að tengja þá afmælisárinu.
Fyrir lá minnisblað formanns og upplýsinga- og menningarfulltrúa „Fjárhagsáætlun 2016 - Forsendur, 40 ára kaupstaðarafmæli Garðabæjar 2016“, dags. 08.10.2016, með samantekt á hefðbundnum viðburðum á vegum menningar- og safnanefndar, öðrum hugsanlegum viðburðum sem tengjast menningarstarfsemi og sem tengja mætti afmæli bæjarins á árinu 2016 og ýmsum menningarlegum tímamótum og afmælum stofnana og félagasamtaka í bænum á afmælisárinu.
Í minnisblaðinu er lagt upp með að meginþema menningarviðburða á næsta ári tengist 40 ára kaupstaðarafmæli bæjarins. Hugmyndin er sú að í tilefni afmælisins verði meðal annars föstum menningarviðburðum gert hátt undir höfði á árinu 2016.
Menningar- og safnanefnd Garðabæjar
06
10. fundur
Farið var yfir verkefni framundan og uppfærða starfsáætlun nefndarinnar fyrir tímabilið ágúst 2015-maí 2016. Nefndin samþykkti starfsáætlunina.
Samþykkt að upplýsinga- og menningarfulltrúi auglýsi eftir umsóknum um styrki til viðburða og verkefna á sviði lista- og menningarmála í Garðabæ á árinu 2016 og hvetji íbúa til að koma hugmyndum sínum á framfæri við menningar- og safnanefnd. Í umsókn skal skilgreina verkefni og kostnaðaráætlun skal fylgja með einnig þarf að tilgreina ósk um styrkupphæð. Mælst skal til þess að umsækjendur kynni afrakstur sinn að loknu verki.
Formaður greindi einnig frá skipan afmælisnefndar í tilefni af 40 ára kaupstaðarafmæli Garðbæjar á næsta ári en formaður á sæti í nefndinni. Hlutverk afmælisnefndar verður að gera tillögur til bæjarráðs um einstaka viðburði og dagskrá hátíðarhalda í tilefni afmælisins.