10. fundur
10. fundur
Menningar- og safnanefnd Garðabæjar
í turnherbergi 3. hæð á bæjarskrifstofunum við Garðatorg
28.08.2015
Kl. 08:15 - 09:40
Um fundinn
Nefndarmenn
- Gunnar Valur Gíslason - formaður
- Torfi Geir Símonarson - aðalmaður
- Sigrún Lilja Guðbjartsdóttir - aðalmaður
- Sigríður Finnbjörnsdóttir - aðalmaður
- Erling Jóhannesson - aðalmaður
Starfsmenn
- Hulda Hauksdóttir - upplýsinga- og menningarfulltrúi
Ritari
- Hulda Hauksdóttir
Dagskrá
Málsnúmer 1409376
01
Fjármál menningar- og safnanefndar
Farið var yfir stöðu fjárhags á sviði menningarmála skv. fjárhagsáætlun ársins 2015. Á næsta fundi nefndarinnar verður fjallað um fjárhagsáætlun næsta árs.
Málsnúmer 1505282
02
Styrkbeiðni vegna verkefnisins Töframáttur tónlistar
Tekið var til afgreiðslu bréf Brynhildar Auðbjargardóttur, dags. 27. maí 2015, um styrkbeiðni vegna Töframáttar tónlistar. Bréfið var tekið fyrir í bæjarráði Garðabæjar, 2. júní sl. og vísað til umfjöllunar og afgreiðslu menningar- og safnanefndar.
Menningar- og safnanefnd samþykkir að styrkja verkefnið Töframátt tónlistar með fjárhæð kr. 100.000 vegna samfélagslegs gildis verkefnisins og mælist til þess að verkefnið verði kynnt fyrir þeim stofnunum/félögum sem við á í Garðabæ.
Málsnúmer 1508157
03
Umsókn um styrk vegna þátttöku í kórakeppni
Tekið var til afgreiðslu bréf Kvennakórs Garðabæjar, dags. 10. ágúst 2015, um styrk vegna þátttöku í alþjóðlegri kórakeppninni Canta el mar á Spáni þann 21.-25. október 2015 en í keppninni mun kórinn keppa í tveimur flokkum, almennum kvennakórverkum og kirkjuverkum. Bréfið var tekið fyrir í bæjarráði Garðabæjar þann 18. ágúst sl. og vísað til afgreiðslu menningar- og safnanefndar.
Menningar- og safnanefnd samþykkir að styrkja Kvennakórinn um 200.000 kr. vegna undirbúnings og þátttöku í kórakeppninni.
Málsnúmer 1508419
04
Styrkbeiðni vegna fræðslufundar 3. október 2015
Fyrir var tekið erindi Félags áhugamanna um sögu Bessastaðaskóla, dags. 26. ágúst 2015, um styrk vegna tónlistarflutnings á árlegum fræðslufundi félagsins sem haldinn verður í Bessastaðakirkju 3. október nk. Félagið fékk úthlutað styrk að fjárhæð kr. 150.000 frá bæjarráði sl. vor við afgreiðslu styrkja samkvæmt fjárhagsáætlun til að standa straum af fræðsludagskrá helgaðri Jónasi Hallgrímssyni á fundinum.
Menningar- og safnanefnd samþykkir að styrkja Félag áhugamanna um sögu Bessastaðaskóla að upphæð 100.000 kr. fyrir tónlistaratriði þar sem flutt verður nýtt verk eftir bæjarlistamann Garðabæjar, Karólínu Eiríksdóttur tónskáld.
Málsnúmer 1508357
05
Tónlistarveisla í skammdeginu 2015
Farið var yfir mögulegar dagsetningar fyrir Tónlistarveislu í skammdeginu sem hefur farið fram á Garðatorgi í nóvember undanfarin ár. Einnig var rætt um hugsanlega umgjörð og flytjendur.
Upplýsinga- og menningarfulltrúa var falið að vinna áfram að verkefninu.
Málsnúmer 1508359
06
Verkefni veturinn 2015-2016
Farið var yfir verkefni framundan og uppfærða starfsáætlun nefndarinnar fyrir tímabilið ágúst 2015-maí 2016. Nefndin samþykkti starfsáætlunina.
Samþykkt að upplýsinga- og menningarfulltrúi auglýsi eftir umsóknum um styrki til viðburða og verkefna á sviði lista- og menningarmála í Garðabæ á árinu 2016 og hvetji íbúa til að koma hugmyndum sínum á framfæri við menningar- og safnanefnd. Í umsókn skal skilgreina verkefni og kostnaðaráætlun skal fylgja með einnig þarf að tilgreina ósk um styrkupphæð. Mælst skal til þess að umsækjendur kynni afrakstur sinn að loknu verki.
Formaður greindi einnig frá skipan afmælisnefndar í tilefni af 40 ára kaupstaðarafmæli Garðbæjar á næsta ári en formaður á sæti í nefndinni. Hlutverk afmælisnefndar verður að gera tillögur til bæjarráðs um einstaka viðburði og dagskrá hátíðarhalda í tilefni afmælisins.
Málsnúmer 1508356
07
Listadagar barna og ungmenna 2016
Upplýsinga- og menningarfulltrúi greindi frá fyrirhuguðum undirbúningi vegna listadaga barna og ungmenna sem verða haldnir vorið 2016. Fyrstu listadagar barna og ungmenna voru haldnir árið 2003 og frá árinu 2006 hafa listadagarnir verið haldnir á tveggja ára fresti með þátttöku allra skóla í bænum. Rætt var um tengingar við listastofnanir og listamenn.
Málsnúmer 1501381
08
Niðurstöður af opnum fundi menningar- og safnanefndar
Yfirlit með flokkuðum niðurstöðum af opnum fundi menningar- og safnanefndar frá 29. apríl 2015 var lagt fram. Umræður voru um næstu skref og áformaða vinnu nefndarinnar framundan við gerð aðgerðaáætlunar í menningarmálum bæjarins til næstu ára.