Styrkbeiðni vegna fræðslufundar 3. október 2015
Ferill máls
Bæjarráð Garðabæjar
02
33. (1701). fundur
Lögð fram til kynningar afgreiðsla menningar- og safnanefndar um að veita Félagi áhugamanna um sögu Bessastaðaskóla styrk að upphæð kr. 100.000 fyrir tónlistaratriði þar sem flutt verður nýtt verk eftir bæjarlistamann Garðabæjar, Karólínu Eiríksdóttur tónskáld.
Fylgiskjöl
Menningar- og safnanefnd Garðabæjar
03
10. fundur
Fyrir var tekið erindi Félags áhugamanna um sögu Bessastaðaskóla, dags. 26. ágúst 2015, um styrk vegna tónlistarflutnings á árlegum fræðslufundi félagsins sem haldinn verður í Bessastaðakirkju 3. október nk. Félagið fékk úthlutað styrk að fjárhæð kr. 150.000 frá bæjarráði sl. vor við afgreiðslu styrkja samkvæmt fjárhagsáætlun til að standa straum af fræðsludagskrá helgaðri Jónasi Hallgrímssyni á fundinum.
Menningar- og safnanefnd samþykkir að styrkja Félag áhugamanna um sögu Bessastaðaskóla að upphæð 100.000 kr. fyrir tónlistaratriði þar sem flutt verður nýtt verk eftir bæjarlistamann Garðabæjar, Karólínu Eiríksdóttur tónskáld.