33. (1701). fundur
33. (1701). fundur
Bæjarráð Garðabæjar
í fundarsal bæjarráðs í Ráðhúsi Garðabæjar við Garðatorg
01.09.2015
Kl. 08:00 - 10:00
Um fundinn
Nefndarmenn
- Sigurður Guðmundsson - aðalmaður
- Sturla D Þorsteinsson - aðalmaður
- Gunnar Valur Gíslason - varamaður
- Halldór Jörgen Jörgensson - aðalmaður
- María Grétarsdóttir - aðalmaður
- Steinþór Einarsson - áheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
- Gunnar Einarsson - bæjarstjóri
- Eysteinn Haraldsson - bæjarverkfræðingur
- Margrét Björk Svavarsdóttir - forstöðumaður fræðslu- og menningarsviðs
- Bergljót K Sigurbjörnsdóttir - félagsmálastjóri
- Hulda Hauksdóttir - upplýsinga- og menningarfulltrúi
Ritari
- Hulda Hauksdóttir
Dagskrá
Málsnúmer 1409324
01
Lántaka, tilboð vegna stækkunar skuldabréfaflokks.
Á fund bæjarráðs mætti Lúðvík Hjalti Jónsson fjármálastjóri ásamt Ellert Hlöðverssyni og Ingvari Arnarssyni frá Íslandsbanka.
Lögð fram tilboð er bárust í skuldabréfaútboði Garðabæjar vegna lántöku allt að kr. 470.000.000
Bæjarráð samþykkir að heimila bæjarstjóra að semja um lántöku allt að fjárhæð kr. 430.000.000 verðtryggt með 2,90 % vöxtum. Um er að ræða viðbót við áður útgefinn skuldabréfaflokk GARD -13.1. Bæjarráð vísar málinu til afgreiðslu bæjarstjórnar.
Málsnúmer 1409324
02
Staða málaflokka fyrstu 6 mánuði ársins.
Lúðvík Hjalti Jónsson, fjármálastjóri gerði grein fyrir málaflokkayfirliti fyrir tímabilið janúar-júní 2015.
Fylgiskjöl
Málsnúmer 1508444
03
Árshlutareikningur Sorpu bs, janúar-júní 2015.
Málsnúmer 1508354
04
Bréf Elísabetar Halldórsdóttur varðandi eftirlitsmyndavélar í Garðabæ, dags. 24.08.2015.
Málsnúmer 1508381
05
Erindi UMF Stjörnunnar um lækkun fasteignagjalda árið 2015, dags. 24.08.2015.
Bæjarráð samþykkir að veita UMF-Stjörnunni styrk að fjárhæð kr. 1.074.165 til greiðslu fasteignagjalda 2015.
Fylgiskjöl
Málsnúmer 1508380
06
Umsagnarbeiðni vegna rekstrarleyfis fyrir gistiheimili að Eyvindarholti 1
Bæjarráð gerir ekki athugasemd við að umbeðið leyfi verði veitt.
Fylgiskjöl
Málsnúmer 1411305
07
Vörðuvegur 1 - 3 - Umsókn um byggingarleyfi
Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja að fallið verði frá grenndarkynningu vegna stækkunar byggingarreits, heimili hæðarkóta stigahúss 12,5m eða 0,5 ofar en skilmálar segja til um og heimili misstóra glugga og útdregna sem uppbrot á norðurhlið hússins þar sem um óverulegt frávik er að ræða sem skerðir í engu hagsmuni nágranna hvað varðar landnotkun, útsýni, skuggavarp eða innsýni, sbr. 3. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
Bæjarráð samþykkir afgreiðslu byggingarfulltrúa um að veita byggingarleyfi vegna byggingar Urriðaholtsskóla við Vörðuveg 1-3.
Fylgiskjöl
Málsnúmer 1508398
08
Bréf lögmanna Sundagörðum vegna Goðatúns 32, dags. 24.08.2015.
Bæjarráð felur Andra Árnasyni, hrl. að gæta hagsmuna bæjarins í málinu.
Fylgiskjöl
Málsnúmer 1508456
09
Bréf Nordik lögfræðiþjónustu vegna stofnkostnaðar, viðhalds og endurnýjunar á búnaði leikskólans Sjálands, dags. 26.08.2015.
Bæjarráð vísar málinu til bæjarstjóra.
Fylgiskjöl
Málsnúmer 1505282
10
Afgreiðsla menningar- og safnanefndar um styrkveitingu til verkefnisins Töframáttar tónlistar.
Lögð fram til kynningar samþykkt menningar- og safnanefndar um að veita verkefninu Töframætti tónlistar, styrk að upphæð kr. 100.000.
Fylgiskjöl
Málsnúmer 1508157
11
Afgreiðsla menningar- og safnanefndar um styrkveitingu til Kvennakórs Garðabæjar vegna þátttöku í kórakeppni.
Lögð fram til kynningar samþykkt menningar- og safnanefndar um að veita Kvennakór Garðabæjar styrk að upphæð kr. 200.000 vegna undirbúnings og þátttöku í alþjóðlegri kórakeppni.
Fylgiskjöl
Málsnúmer 1508419
12
Afgreiðsla menningar- og safnanefndar vegna styrks til fræðslufundar Félags áhugamanna um sögu Bessastaðaskóla.
Lögð fram til kynningar afgreiðsla menningar- og safnanefndar um að veita Félagi áhugamanna um sögu Bessastaðaskóla styrk að upphæð kr. 100.000 fyrir tónlistaratriði þar sem flutt verður nýtt verk eftir bæjarlistamann Garðabæjar, Karólínu Eiríksdóttur tónskáld.